Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 38
36
BREIÐFIRÐINGUR
borð, sem haft var til að leggja á það matarílát og annað, undir
því voru geymdir kembukassar og fleira dót. Svo var 1 rúm
undir þeirri hlið. En amma og afi höfðu sitt rúm þversum við
gaflinn og svo lítið borð og koffort undir glugganum, eða við
endann á vinnukonurúminu, svo hafði afi skáphillur, sem komið
var fyrir inn í baðstofugaflinum, þar geymdi hann fornaldar-
sögurnar og margt dót. Lítill vegglampi lýsti þennan hluta
baðstofunnar, en í hinum hluta hennar var 10 eða 12 línu
hengilampi, sem hengdur var upp í mæninn á daginn.
Undir baðstofunni var stofa, 2 stafgólf, miðgólf og kames. A
stofuþilinu voru 2 gluggar, hvor með 6 rúðum, hún var vel
þiljuð en lágt til lofts; þvert undir loftinu var stór biti og þurftu
háir menn að beygja sig undir hann.
Eitt rúm var í stofunni og stórt rauðmálað borð, enginn stóll,
en kistum var raðað undir glugga og hlið. Bókahilla var þar.
Gólffjalir voru á miðgólfinu, þar var vefstóllinn o.fl. Kamesið
var vel þiljað, þar voru 2 rúm og borð á milli þeirra; þar bjuggu
Guðmundur og Olöf. Utan á baðstofuþilið var svartur pappi
(tjörupappi) festur með hvítum trérimlum, en torfbekkur var
hlaðinn, sem náði upp undir stofugluggann (gluggatóft).
Þessi bær stóð óbreyttur til 1922, þá var baðstofan byggð upp,
orðin gisin og farin að hallast. Arið 1935 kenndi ég um tíma
börnum í gömlu, góðu stofunni.
Arið 1950 var byggt nýtt íbúðarhús á jörðinni og fólkið flutti
úr þessum bæ, sem veitt hafði skjól og yl 15-20 manns,
(heimilisfólki) á ári í 75 ár.
Fyrir utan vesturhlið bæjarins var stór kálgarður, annar
kálgarður var fyrir framan hlaðið, vestanvert, niður með þeim
kálgarðsvegg að austan, var tröð niður að fjósinu, sem var fyrir
neðan bæjarhólinn. Fjósið tók 6 kýr, tvísett, tréflór á milli bása,
svo innri hurð, en þar fyrir framan hallandi helluflór, sem ekki