Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 56
54
BREIÐFIRÐINGUR
og Þröskuldadals, sem gengr inn af Hítardal. Helgusæng er lág
uppi í fjallinu, og Helguhóll er neðanvert við Dúnkárdal;það er
stór hóll í miðjum flóa, norðanvert við Stángá, og vestanvert við
Dúnká. Þessi örnefni segja menn draga nafn af Helgu Bárðar
dóttur Snæfellsáss, og er sagt, Helga hafi búið seinustu ár æfi
sinnar í fellinu, og haft legurúm sitt í Helgusæng, en verið heygð
í Helguhól, þá hún andaðist.
Tregasteinn; það er hár klettstrípr, sem stendr hátt í
Hólsfjalli, upp undan Seljalandi; geta fáir menn komizt upp á
hann. Þar eiga ernir opt hreiðr. Það er gömul saga, að eitt sinn
hafi örn hremmt barn frá Hóli, á öðru eða þriðja árinu, og flogið
með það í hreiðr sitt á steininum, en móðir barnsins hafi hlaupið
á eptir upp undir steininn, og hafí þar sprúngið af mæði og
harmi, og síðan sé steinninn kallaðr Tregasteinn.
III. Ornefni eptir fornbréfum.
Hrafnabjarga máldaga frá 1393. Snóksdals kirkju máldögum
og Hólmlátrs dómi frá 1509.
Arnardalr er í Hólmlátrs fjalli, þar sem Gunnarstaða-á hefír
upptök, og eiga Gunnarstaðir hann hálfan móts við Hólmlátr.
Botn hjá Svínbjúg; það er botninn á Selárdal, eptir því sem
Þórugil ræðr austan til; Bustar- eða Svínbjúgs-hryggr þar
gagnvart vestan til. Þessi botn er nú almennt kallaðr Snóksdals
botn, þar hann er Snókdals-kirkju land, og hefír þar opt verið
selstaða frá Snóksdal.
Dalahólmi.Það er syðsti hólmi á Lækjarskógsfjörum, og er nú
kallaðr Húshólmi, síðan Daði Guðmundsson í Snóksdal hafði
þar hús til að geyma í skreið og fleira, sem hann lét flytja sjóveg
undan Jökli; hólmi þessi er Snóksdalskirkju eign; og eru þar nú
engar nytjar, að teljandi sé.
Dúnkr, sjá Dúnkaðarstaðir: á Dúnki var sett bænhús 1569, en
af tekið 1763.