Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 36

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 36
34 BREIÐFIRÐINGUR Ég er fædd í Knarrarhöfn í Hvammssveit, sunnudaginn (trínitatis) í 8. viku sumars, sem þá var 12. júní 1892. Faðir minn, Þorgils Friðriksson og móðir mín, Halldóra I. Sigmundsdóttir, byrjuðu búskap það vor. Þau fengu til ábúðar hálfa jörðina Knarrarhöfn, á hinni hálflendunni bjó Guðmundur, bróðir föður míns, með bústýru sinni, Olöfu Magnúsdóttur. Knarrarhöfn var talin flutningsjörð og húsakynnin með betra móti, bærinn var rúmbetri en víða annars staðar og þótti, á sinni tíð, bera af hvað handbragð snerti. Hann var byggður árið 1874, af Jóhannesi snikkara, sem var hálfbróðir föður míns og orðlagður fyrir að vera góður og hraðhentur smiður. Fjögur burstaþil vissu fram á hlaðið, það voru baðstofa, göng með dyralofti, eldiviðarhús og skemma. Fram af innganginum var skyggni, - oftast tekið frá á sumrin -. Skyggnið var úr tré, hurðir á báðum hliðum, opnaðar og gengið um þær dyr, eftir því sem vindurinn blés, alltaf undan vindi, svo að ekki blési inn í bæinn. Fyrir innan skyggnið var svo bæjardyrahurðin, þar fyrir innan var eins og tæpt stafgólf að annarri hurð, en til hægri handar voru dyr inn í litla, þiljaða kompu, (kofa) sem afi og amma höfðu til afnota. Fyrir innan innri hurðina, - sem oftast var látin standa ólokuð á daginn - komu moldargöng, til hægri voru dyr inn í búr, þil var á milli þess og gangsins. Inni í búrinu var laus stigi upp í búrloftið, sem var yfir kofanum. Ekki hafa moldargöngin verið vel slétt, einu sinni var ég að sópa þau, með hríssóp, þá gekk amma um og hrasaði um stein eða ójöfnu, ég hef víst eitthvað reynt að vorkenna henni, því amma sagði: Steinunn segir öll von er að eigi bágt að þramma, götu lífsins grýtta hér, gamalmennið amma.

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.