Breiðfirðingur - 01.04.1981, Qupperneq 53
BREIÐFIRÐINGUR
51
alfaravegr, nema þeirra, sem fara milli Knappadals og útbæja í
Hörðadalshrepp, og er þar nú lítt vegað yfir.
Selárdalr; sá bær heitir svo enn, og dalrinn eins, sem bærinn
stendr í, nema hvað hann er stundum kallaðr Hólsdalr að
austanverðu, þar sem Hóll á land að. Selárdalr hefir dregið nafn
af ánni, sem eptir honum rennr, og hefir öndverðlega heitið
Selá, máske af því, að selför hafí verið höfð yfír ána frá
Ketilsstöðum, eða náðzt í henni selr; en alþýðu saga er: að Selr
hafí heitið sá, sem fyrst hafí búið í Selárdal, og hafí bærinn,
dalrinn og áin dregið nafn af, og sé hann grafinn í Selhól, sem er
yzt í túngunni milli Skraumu og Hafradalsár; jörð þessi var XVI
hundruð, og er það enn rúmlega við hið nýja jarðamat.
Skraumuhlaupsá; hún rennr eptir Selárdal endilöngum, en
eptir að Hafradalsá kemr í hann, fellr hún eptir djúpum
gljúfrum, milli Ketilstaða og Álfatraða, í útnorðr til
Hvammsfjarðar, en upptök hennar eru á Hítardalsheiði,
gagnvart Hítarár upptökum, svo þær skera af að mestu leyti hið
forna Snæfellsnes, og Skraumuhlaupsá skildi Snæfellsnes og
Dalasýslu fyrrum. Nú er áin optast kölluð Skrauma, en
upphaflega hefir hún heitið Selá, eins og áðr er sagt, að minnsta
kosti fyrir ofan ármót, þar sem Hafradalsá rennr í hana; sagt er,
að áin dragi nafn af tröllkonu, sem hafí heitið Skrauma, og hafi
hlaupið yfír ána á stokknum fyrir neðan Hörtlafoss; en að
mennsk kona hefði farið yfír hana á hlaupinu fyrir ofan
Hörtlafoss. Væri máski ekki ómögulegt, þareð léttir menn og
huggóðir hafa hlaupið yfir hana á þessari öld.1
Snóksdalr; þessi bær stendr upp í dal, sem gengr upp í hálsinn,
milli Miðdala og Hörðadals, og er hann í Miðdalahrepp; þar er
önnur kirkjan í Miðdala prestakalli; jörðin hefir verið talin LX
hundraða, hálf eign kirkjunnar og hálf bónda eign; nú telst
jörðin XXXII hundruð með hjáleigu Gilsbakka. Sögn manna
er, að dalr þessi hafí dregið nafn af hesti, sem Snókr hafi