Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 81
BREIÐFIRÐINGUR
79
Skoravík vildi hún vera, hún stóð þar djúpum rótum, enda unni
hún hinni fögru og oft stórbrotnu íslenzku náttúru og batt
tryggð við þá móður, sem hefur alið okkur öll og skilað áfram í
þessu lífi, móður jörð, þar er ómetanlegt að geta fundið
fegurðina í kyrrð og unaði íslenzkrar náttúru, því þar er líka bezt
að komast í snertingu við uppsprettu alls lífs og finna þar þann
lífsanda, sem í augum okkar kristinna manna er æðstur á himni
og jörð. Ég hygg líka, að snar þáttur í eðlisgerð Kristínar hafi
verið trú hennar og sú vitund, að guðleg forsjón væri það afl í
þessum heimi, sem hefði allt í sinni almáttugu hendi.
Kristín gerði ekki miklar kröfur sjálfri sér til handa, var
nægjusöm og þakklát fyrir það, sem fyrir hana var gert. Hún lézt
á Landakotsspítala í Reykjavík, 89 ára að aldri, og var jarðsett á
Staðarfelli 4. júlí 1980.
Þórey Kristín Þorleifsdóttir, Búðardai,
andaðist 24. marz 1980. Hún var fædd að Þambárvöllum í Bitru
hinn 18. febrúar árið 1902. Voru foreldrar hennar Þorleifur
Jónsson, Ólafssonar frá Hornsstöðum og kona hans Elísabet
Kristmundsdóttir, Guðmundssonar, frá Þverá í Núpsdal.
Þórey ólst upp með foreldrum sínum, ásamt þrem systkinum, á
ýmsum stöðum hér í Dölum, einkum þó í Laxárdal og í Saurbæ,
til fullorðinsára.
Árið 1922, hinn 1. janúar, gekk hún að eiga eftirlifandi
eiginmann sinn Árna L. Tómasson frá Lambastöðum. Þau hófu
þegar búskap á Lambastöðum og bjuggu þar til ársins 1943, er
þau fluttu til Búðardals, þar sem þau áttu heimili æ síðan. Þau
bjuggu fyrst í gamla kaupfélagshúsinu í Búðardal, síðan í
Vík og mörg síðustu árin í skjóli sonar síns og tengdadóttur í
Hvammi. Þau eignuðust tvo syni, Harald í Búðardal og Gunnar,
sem þau misstu aðeins 4 ára gamalan.
Þórey var um margt sérstæð kona. Á heimili hennar sátu