Fréttablaðið - 10.11.2018, Side 34
Hver ertu þegar þú ert ekki þú sjálfur?Þessari spurn-ingu reynir ljóða-slammskáldið Jón Magnús Arnarsson
að svara í nýju verki sem var frum-
sýnt í gærkvöldi. Tvískinnungi.
Verkið er að hluta til byggt á reynslu
hans sjálfs af neyslu og stormasömu
ástarsambandi.
Jón Magnús hefur verið edrú í eitt
og hálft ár. Er þetta hans upprisu-
saga?
„Það að ég hafi skrifað verkið. Og
að það sé verið að setja það á svið.
Það er mín upprisusaga. En verkið
sjálft, sagan, hún er að hluta til
byggð á lífi mínu og reynslu áður en
ég komst á þann stað að geta nýtt
reynsluna til að skrifa leikrit,“ segir
hann. „Þetta eru sumpart minn-
ingar og tilfinningar úr minni fortíð.
Ég leyfi skáldskapnum að flæða yfir
það sem raunverulega gerðist. Í leik-
ritinu eru atburðir sem raunverulega
gerðust. Samtöl sem áttu sér stað. En
mestmegnis skáldskapur,“ útskýrir
hann.
Verkið fjallar um átök í lífi leik-
arapars. Þau eru ástfangin í hlut-
verkum sínum á sviði og eiga einnig
í brothættu sambandi utan sviðs.
Í forgrunni eru samskipti fólks í
samböndum, hvernig það er sjaldn-
ast einn algildur sannleikur þegar
tveir deila lífi. Leikritið er í bundnu
máli og með aðalhlutverk fara Þur-
íður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur
Ari Stefánsson. Leikstjóri er Ólafur
Egilsson.
Þó að Jón Magnús þreyti frumraun
sína í leikhúsinu með sínu fyrsta
handriti er hann ekki ókunnugur
skáldskap. Hann er Íslandsmeistari
í ljóðaslammi.
„Ég er á leiðinni á Evrópumeistara-
mót til Búlgaríu í lok nóvember. Svo
fer ég seinna á heimsmeistaramótið
í Nottingham 2019. Ég hef verið að
reyna að starta þessari senu með
Ólöfu Rún Benediktsdóttir mynd-
listakonu.
Þetta form tvinnar saman leik- og
ljóðlist. Það er mikið um bundið mál
þó stíllinn sé frjálslegur og virðist
höfða bæði til yngri og eldri kyn-
slóða.“
Jón Magnús greinir heiðarlega frá
fortíð sinni.
„Ég var í stormasömu sambandi
þar sem var mikið djamm. Við
vorum bæði tvö svamlandi um í
brestasúpu. Ég byggi svolítið á því
þótt ég víxli oft hlutverkum okkar.
Sambandið var markað af líferni
okkar. Maður var sjálfur rosalega
týndur og brotinn.
Hann segir tímann líða á ógnar-
hraða í sinnuleysi neyslunnar.
„Áður en maður veit af er maður
orðinn tvítugur. Svo er maður allt
í einu orðinn þrítugur. Svo þrjátíu
og fimm! Og alltaf að spóla í sama
farinu. Þegar neyslan hefst svona
snemma. Á þessum mótunarárum,
þá staðnar maður á ýmsum sviðum.
Það vindur upp á sig því þegar maður
er dofinn í neyslu þá verða verkfærin
bitlaus. Maður nær ekki að vinna úr
lífinu. Hvort sem það eru bara ósköp
hversdagslegir hlutir, samskipti við
fólk eða áföll. Maður er bara fastur í
því að vera ekki maður sjálfur,“ segir
Jón Magnús hreinskilnislega.
Hvernig náðir þú því að komast
hingað?
„Ég varð loksins edrú fyrir einu
og hálfu ári síðan. Endanlega. Ég var
tuttugu og fimm ára gamall þegar ég
fór að brjótast um og reyna að losna.
Ég náði að klára stúdentspróf í fjar-
námi og að gera einstaka hluti sem
gerðu mér gott. Ég fór til dæmis út til
Kaupmannahafnar í diplómanám í
leiklist. Eins konar trúðaskóla. En var
samt útúrdjammaður allan tímann.
En ég var þó að gera aðra hluti en
sömu gömlu tugguna í Reykjavík.
En svo kom ég heim aftur úr námi
og datt beint í sama farið og aftur í
sambandið,“ segir hann frá.
Hvað með hana? Sem þú skrifar
um, gerir þú það í sátt við hana?
„Ég greindi henni frá því að ég
hefði skrifað þetta. Hún var bara
sátt við það. Þetta er heldur ekki
realískt heimildarverk. Þó að rauði
þráðurinn sé úr mínu lífi og byggi á
reynslu minni og tilfinningum,“ segir
Jón Magnús.
„Leikritið var uppgjör mitt við
óheiðarleikann. Svona líferni kallar
á að ljúga að sjálfum sér. Fegra hlut-
ina þótt allt sé komið í óefni. Sem
dæmi var ég líka að selja á þessum
tíma. Fyrst var það aðallega gras en í
kringum helgarnar seldi ég líka smá-
skammta af spítti og kóki. Ég gerði
þetta aðallega til að fjármagna eigin
neyslu. Ég var enginn gangster. Þetta
var bara ákveðin lausn. Mér fannst
rökrétt að gera þetta í staðinn fyrir
að vinna eins og brjálæðingur fyrir
neyslunni,“ segir Jón Magnús og seg-
ist oft hafa verið tekinn af lögreglu.
„Það hafði bara þær afleiðingar að
ég var lengur í skuld og þurfti að selja
meira. Ég var hins vegar aldrei hand-
rukkaður þó að ég hafi upplifað alls
kyns ofbeldi,“ segir Jón Magnús frá.
Hann segir verst við neysluna
að vera ekki maður sjálfur og vera
sinnulaus um tilveru sína.
„Það að vera fastur í sinnuleys-
inu, það er skelfilegt. Það eru svo
margir sem halda að þeir séu bara að
djamma svolítið um helgar. En eru á
þessum vonda stað. Ég held að við
Íslendingar höldum flesta AA-fundi
í heimi. Það er ótrúlegt hvað það eru
margir fundir á dag víða um land.
Þetta er þéttriðið net og það er ekki
vanþörf á og segir mikið um umfang
vandans,“ segir hann.
Þú sagðist áðan hafa staðnað.
Nærðu töpuðum þroska til baka?
„Nei, þú nærð því ekki til baka.
Þroskast bara á annan hátt. Ég upp-
lifi það þannig að ég hafi skilið hluta
af mér eftir. Ég var sérstakur krakki.
Mjög úr tengslum við raunveru-
leikann. Var mikið inni í höfðinu á
mér og ekki jarðtengdur. Svo þegar
ég færðist á unglingsaldur þá fannst
mér sjálfsmyndin ekki heil. Ég upp-
lifði sjálfsmyndarleysi. Ég var bekkj-
artrúðurinn en var samt lokaður.
Þegar ég byrjaði að djamma þá var
mamma mjög hissa. Hún hváði bara
og spurði: Ha? Þú? Og svo áður en ég
vissi var ég orðinn fastur.“
Jón Magnús er úr mikilli leikara-
fjölskyldu. Foreldrar hans eru Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstjóri og
Arnar Jónsson leikari. Tvö systkina
hans hafa gert það gott í heimi leik-
listar, Þorleifur Örn sem á dögunum
var valinn leikstjóri ársins í Þýska-
landi og Sólveig sem hefur átt far-
sælan feril í leikhúsi og sjónvarpi á
Íslandi og í Þýskalandi.
„Flestir karlmenn í fjölskyldunni
eru alkóhólistar. Meira að segja
tengdasynirnir,“ segir hann glettinn.
„Konurnar, þær standa sterkar. Fá sér
bara eitt rauðvínsglas og ekkert mál.
Hvað er það?“ segir hann og hlær.
„Þegar bróðir minn varð edrú
tók ég við og byrjaði í neyslu. Ég hef
fengið mikla hjálp frá fjölskyldunni
en gaf lengi lítið fyrir það.
Leiklistin, það er baktería? „Stóra
bakterían í fjölskyldunni þótt ekki
allir tilheyri þessum heimi. Oddný
systir mín er til dæmis þrælmennt-
uð og að gera flotta hluti á öðrum
sviðum. Mikil baráttukona fyrir
betra samfélagi. Sumir eru hissa á
því hvað ég virðist vita lítið um leik-
húsið miðað við aðra í fjölskyldunni.
Ég spurði hvað ég fengi borgað fyrir
handritið og fólk var hissa. Það hugs-
aði kannski: Spurðu bara bróður
þinn! En ég fékk kurteislegt svar og
mér bent á að kíkja á heimasíðu Rit-
höfundasambandsins,“ segir hann
og brosir.
„Ég er svakalega stoltur af bróður
mínum Þorleifi. Við erum að plana
að ég fari út, verði í ferli með honum,
sitji í salnum og skrifi.
Ég get stundum verið fullur af
sjálfsvorkunn yfir glötuðum tíma.
En það gengur ekki. Ég er tvíefldur og
það má búast við meiru frá mér. Það
að týna sér svona, það er áfall. Þegar
maður rankar loksins við sér þá nýtir
maður hvern dag til hins ýtrasta og
reynir að finna sátt. Mikið af tíma
hefur farið í rugl. Það verður ekki
aftur tekið. En núna er það að baki.
Lengi vel henti ég öllu á haugana en
nú vinn ég úr hlutunum. Nú ætla ég
að lifa, anda, njóta og skrifa.“
Maður verður
dofinn í neyslu
Verkið Tvískinnung, sem var frumsýnt í gær, byggir Jón Magnús
Arnarsson á árum sínum í neyslu og af stormasömu ástarsambandi.
„Leikritið var uppgjör mitt við óheiðarleikann,“ segir Jón Magnús.
Jón Magnús skrifaði leikverkið Tvískinningur sem var frumsýnt í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. FréTTaBlaðið/anTon.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Svo þegAr ég færðiSt
á unglingSAldur þá
fAnnSt Mér SJálfS-
Myndin ekki heil. ég
upplifði SJálfSMyndAr-
leySi. ég vAr bekkJAr-
trúðurinn en vAr SAMt
lokAður.
í kringuM helgArnAr
Seldi ég líkA SMá-
SkAMMtA Af Spítti og
kóki. ég gerði þettA
AðAllegA til Að fJár-
MAgnA eigin neySlu.
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-A
E
D
8
2
1
5
A
-A
D
9
C
2
1
5
A
-A
C
6
0
2
1
5
A
-A
B
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K