Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 34

Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 34
Hver ertu þegar þú ert ekki þú sjálfur?Þessari spurn-ingu reynir ljóða-slammskáldið Jón Magnús Arnarsson að svara í nýju verki sem var frum- sýnt í gærkvöldi. Tvískinnungi. Verkið er að hluta til byggt á reynslu hans sjálfs af neyslu og stormasömu ástarsambandi. Jón Magnús hefur verið edrú í eitt og hálft ár. Er þetta hans upprisu- saga? „Það að ég hafi skrifað verkið. Og að það sé verið að setja það á svið. Það er mín upprisusaga. En verkið sjálft, sagan, hún er að hluta til byggð á lífi mínu og reynslu áður en ég komst á þann stað að geta nýtt reynsluna til að skrifa leikrit,“ segir hann. „Þetta eru sumpart minn- ingar og tilfinningar úr minni fortíð. Ég leyfi skáldskapnum að flæða yfir það sem raunverulega gerðist. Í leik- ritinu eru atburðir sem raunverulega gerðust. Samtöl sem áttu sér stað. En mestmegnis skáldskapur,“ útskýrir hann. Verkið fjallar um átök í lífi leik- arapars. Þau eru ástfangin í hlut- verkum sínum á sviði og eiga einnig í brothættu sambandi utan sviðs. Í forgrunni eru samskipti fólks í samböndum, hvernig það er sjaldn- ast einn algildur sannleikur þegar tveir deila lífi. Leikritið er í bundnu máli og með aðalhlutverk fara Þur- íður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Leikstjóri er Ólafur Egilsson. Þó að Jón Magnús þreyti frumraun sína í leikhúsinu með sínu fyrsta handriti er hann ekki ókunnugur skáldskap. Hann er Íslandsmeistari í ljóðaslammi. „Ég er á leiðinni á Evrópumeistara- mót til Búlgaríu í lok nóvember. Svo fer ég seinna á heimsmeistaramótið í Nottingham 2019. Ég hef verið að reyna að starta þessari senu með Ólöfu Rún Benediktsdóttir mynd- listakonu. Þetta form tvinnar saman leik- og ljóðlist. Það er mikið um bundið mál þó stíllinn sé frjálslegur og virðist höfða bæði til yngri og eldri kyn- slóða.“ Jón Magnús greinir heiðarlega frá fortíð sinni. „Ég var í stormasömu sambandi þar sem var mikið djamm. Við vorum bæði tvö svamlandi um í brestasúpu. Ég byggi svolítið á því þótt ég víxli oft hlutverkum okkar. Sambandið var markað af líferni okkar. Maður var sjálfur rosalega týndur og brotinn. Hann segir tímann líða á ógnar- hraða í sinnuleysi neyslunnar. „Áður en maður veit af er maður orðinn tvítugur. Svo er maður allt í einu orðinn þrítugur. Svo þrjátíu og fimm! Og alltaf að spóla í sama farinu. Þegar neyslan hefst svona snemma. Á þessum mótunarárum, þá staðnar maður á ýmsum sviðum. Það vindur upp á sig því þegar maður er dofinn í neyslu þá verða verkfærin bitlaus. Maður nær ekki að vinna úr lífinu. Hvort sem það eru bara ósköp hversdagslegir hlutir, samskipti við fólk eða áföll. Maður er bara fastur í því að vera ekki maður sjálfur,“ segir Jón Magnús hreinskilnislega. Hvernig náðir þú því að komast hingað? „Ég varð loksins edrú fyrir einu og hálfu ári síðan. Endanlega. Ég var tuttugu og fimm ára gamall þegar ég fór að brjótast um og reyna að losna. Ég náði að klára stúdentspróf í fjar- námi og að gera einstaka hluti sem gerðu mér gott. Ég fór til dæmis út til Kaupmannahafnar í diplómanám í leiklist. Eins konar trúðaskóla. En var samt útúrdjammaður allan tímann. En ég var þó að gera aðra hluti en sömu gömlu tugguna í Reykjavík. En svo kom ég heim aftur úr námi og datt beint í sama farið og aftur í sambandið,“ segir hann frá. Hvað með hana? Sem þú skrifar um, gerir þú það í sátt við hana? „Ég greindi henni frá því að ég hefði skrifað þetta. Hún var bara sátt við það. Þetta er heldur ekki realískt heimildarverk. Þó að rauði þráðurinn sé úr mínu lífi og byggi á reynslu minni og tilfinningum,“ segir Jón Magnús. „Leikritið var uppgjör mitt við óheiðarleikann. Svona líferni kallar á að ljúga að sjálfum sér. Fegra hlut- ina þótt allt sé komið í óefni. Sem dæmi var ég líka að selja á þessum tíma. Fyrst var það aðallega gras en í kringum helgarnar seldi ég líka smá- skammta af spítti og kóki. Ég gerði þetta aðallega til að fjármagna eigin neyslu. Ég var enginn gangster. Þetta var bara ákveðin lausn. Mér fannst rökrétt að gera þetta í staðinn fyrir að vinna eins og brjálæðingur fyrir neyslunni,“ segir Jón Magnús og seg- ist oft hafa verið tekinn af lögreglu. „Það hafði bara þær afleiðingar að ég var lengur í skuld og þurfti að selja meira. Ég var hins vegar aldrei hand- rukkaður þó að ég hafi upplifað alls kyns ofbeldi,“ segir Jón Magnús frá. Hann segir verst við neysluna að vera ekki maður sjálfur og vera sinnulaus um tilveru sína. „Það að vera fastur í sinnuleys- inu, það er skelfilegt. Það eru svo margir sem halda að þeir séu bara að djamma svolítið um helgar. En eru á þessum vonda stað. Ég held að við Íslendingar höldum flesta AA-fundi í heimi. Það er ótrúlegt hvað það eru margir fundir á dag víða um land. Þetta er þéttriðið net og það er ekki vanþörf á og segir mikið um umfang vandans,“ segir hann. Þú sagðist áðan hafa staðnað. Nærðu töpuðum þroska til baka? „Nei, þú nærð því ekki til baka. Þroskast bara á annan hátt. Ég upp- lifi það þannig að ég hafi skilið hluta af mér eftir. Ég var sérstakur krakki. Mjög úr tengslum við raunveru- leikann. Var mikið inni í höfðinu á mér og ekki jarðtengdur. Svo þegar ég færðist á unglingsaldur þá fannst mér sjálfsmyndin ekki heil. Ég upp- lifði sjálfsmyndarleysi. Ég var bekkj- artrúðurinn en var samt lokaður. Þegar ég byrjaði að djamma þá var mamma mjög hissa. Hún hváði bara og spurði: Ha? Þú? Og svo áður en ég vissi var ég orðinn fastur.“ Jón Magnús er úr mikilli leikara- fjölskyldu. Foreldrar hans eru Þór- hildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Arnar Jónsson leikari. Tvö systkina hans hafa gert það gott í heimi leik- listar, Þorleifur Örn sem á dögunum var valinn leikstjóri ársins í Þýska- landi og Sólveig sem hefur átt far- sælan feril í leikhúsi og sjónvarpi á Íslandi og í Þýskalandi. „Flestir karlmenn í fjölskyldunni eru alkóhólistar. Meira að segja tengdasynirnir,“ segir hann glettinn. „Konurnar, þær standa sterkar. Fá sér bara eitt rauðvínsglas og ekkert mál. Hvað er það?“ segir hann og hlær. „Þegar bróðir minn varð edrú tók ég við og byrjaði í neyslu. Ég hef fengið mikla hjálp frá fjölskyldunni en gaf lengi lítið fyrir það. Leiklistin, það er baktería? „Stóra bakterían í fjölskyldunni þótt ekki allir tilheyri þessum heimi. Oddný systir mín er til dæmis þrælmennt- uð og að gera flotta hluti á öðrum sviðum. Mikil baráttukona fyrir betra samfélagi. Sumir eru hissa á því hvað ég virðist vita lítið um leik- húsið miðað við aðra í fjölskyldunni. Ég spurði hvað ég fengi borgað fyrir handritið og fólk var hissa. Það hugs- aði kannski: Spurðu bara bróður þinn! En ég fékk kurteislegt svar og mér bent á að kíkja á heimasíðu Rit- höfundasambandsins,“ segir hann og brosir. „Ég er svakalega stoltur af bróður mínum Þorleifi. Við erum að plana að ég fari út, verði í ferli með honum, sitji í salnum og skrifi. Ég get stundum verið fullur af sjálfsvorkunn yfir glötuðum tíma. En það gengur ekki. Ég er tvíefldur og það má búast við meiru frá mér. Það að týna sér svona, það er áfall. Þegar maður rankar loksins við sér þá nýtir maður hvern dag til hins ýtrasta og reynir að finna sátt. Mikið af tíma hefur farið í rugl. Það verður ekki aftur tekið. En núna er það að baki. Lengi vel henti ég öllu á haugana en nú vinn ég úr hlutunum. Nú ætla ég að lifa, anda, njóta og skrifa.“ Maður verður dofinn í neyslu Verkið Tvískinnung, sem var frumsýnt í gær, byggir Jón Magnús Arnarsson á árum sínum í neyslu og af stormasömu ástarsambandi. „Leikritið var uppgjör mitt við óheiðarleikann,“ segir Jón Magnús. Jón Magnús skrifaði leikverkið Tvískinningur sem var frumsýnt í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. FréTTaBlaðið/anTon. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Svo þegAr ég færðiSt á unglingSAldur þá fAnnSt Mér SJálfS- Myndin ekki heil. ég upplifði SJálfSMyndAr- leySi. ég vAr bekkJAr- trúðurinn en vAr SAMt lokAður. í kringuM helgArnAr Seldi ég líkA SMá- SkAMMtA Af Spítti og kóki. ég gerði þettA AðAllegA til Að fJár- MAgnA eigin neySlu. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 A -A E D 8 2 1 5 A -A D 9 C 2 1 5 A -A C 6 0 2 1 5 A -A B 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.