Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Qupperneq 45
17. ágúst 2018 45FRÉTTIR - ERLENT
boys sem stunda vændi eru
um margt öðruvísi hópur
en vændiskonur því að þær
eru frekar áhyggjulausar og
frjálsar og ekki með mann
og börn á bakinu.
Líf ladyboys er þó
sannarlega ekki dans á
rósum og þær þurfa að
kljást við miklar áskoran-
ir. Sérstaklega í tengslum
við ýmsar aðgerðir sem
framkvæmdar eru af oft
vafasömum aðilum. Þessar
aðgerðir eru dýrar og erfitt
að fylgja þeim eftir. Þær
eru stanslaust að dæla í
sig bótoxi og alls kyns efn-
um sem eiga að laga hitt og
þetta. Sílikon er of dýrt fyr-
ir þær og sumar
af þeim eru bún-
ar að fara illa með
líkama sinn, rass,
brjóst og fleira, út
af þessu. Í Taílandi
eru aðgerðirnar
stór markaður og
alls kyns skottu-
læknar sem bjóða
ódýrari aðgerðir
sem reynast illa.
Bandaríski herinn
breytti Pattaya í
partíborg
Strandborgin Patta-
ya er vel þekkt og
jafnvel alræmd fyr-
ir skemmtanalífið.
Pattaya var smáþorp
þar til bandarísk-
ir hermenn af stöð-
inni U-Tapao hófu
að venja þangað
komur sínar á árum
Víetnam stríðsins. Þegar stríðinu
lauk hélt Pattaya áfram að þróast
sem skemmtanaborg og er þekkt
fyrir vændi. En þrátt fyrir orðspor
tengt vændi, eiturlyfjaneyslu og
öðrum saurlifnaði þá þykir mörg-
um sem koma þangað það furðu-
lega lítið áberandi. En þar er mikið
umburðarlyndi gagnvart vændi og
krafa um að það sé stundað, bæði
frá kaupendum og seljendum.
Ladyboys sem stunda vændi
hafa miklu meira upp úr því en
að vinna almenn störf eins og til
dæmis í verslunum. Yngri vænd-
iskonur eru hins vegar oft í einu
eða tveimur störfum á daginn og
selja sig svo um kvöldið og fram á
nótt. Auk þess þurfa þær að sinna
heimilinu.
Flestar sem stunda vændi
eru á aldrinum 18 til 25 ára. Um
þrítugt minnkar eftirspurnin eft-
ir þeim nema í einstökum til-
vikum. Margar lenda þá í mik-
illi krísu og verða alkóhólisma að
bráð. Margar starfa á börum sem
barstúlkur og sumar þeirra eldri
vinna sig upp í að vera nokkurs
konar yfirmenn eða maddöm-
ur hinna. Það er þó mikill minni-
hluti. Aðrir staðir sem vændi er
mikið stundað á eru nuddstofur,
karókístaðir og sérstök vændis-
hús.
Barnavændi fyrirfinnst í Patta-
ya og annars staðar í Taílandi en
það er litið mjög alvarlegum aug-
um af yfirvöldum ef menn eru
gripnir við að stunda samræði
við börn undir 18 ára aldri. Upp
að vissu marki er vændi unglinga,
allt niður í 15 ára aldur, umbor-
ið og foreldrar oft samþykkir þar
sem fjölskyldan á ekki til hnífs eða
skeiðar.
Þó að vændi sé umborið í
Taílandi þá er ekki þar með sagt
að það þyki starfsvettvangur til
að grobba sig af. Þvert á móti þá
fylgir því skömm líkt og annars
staðar. Vændiskonur starfa oft
ekki á sama stað og þær búa.
Sumar búa í Bangkok og vinna í
Pattaya og öfugt. Margar koma frá
norður- og austurhlutum lands-
ins þar sem fátækasta fólkið býr.
Japanir bestir en
Indverjar verstir
Algengur misskilningur er að
kúnnahópurinn samanstandi
mest megnis af vestrænum körl-
um því meirihlutinn af kúnnun-
um er Taílendingar. Aðeins um
20 til 30 prósent eru útlendingar
og skiptir þjóðernið þá töluverðu
máli.
Japanir eru sagðir vera bestu
kúnnarnir og eru kallaðir þrisvar
sinnum þrír hópurinn. Vændis-
konurnar segja þá með þriggja
sentimetra langt typpi, taki að-
eins þrjár mínútur að fá það og
borgi 3.000 böht (um 10 þúsund
íslenskar krónur) sem er mikill
peningur í Taílandi.
Indverjar eru hins vegar þeir
sem þær vilja síst láta sjá sig með.
Þeir koma oft þrír til fimm tals-
ins og vilja kaupa eina vænd-
iskonu saman. Fæstar af þeim
samþykkja þetta en þegar hallar
undan fæti hjá þeim, far-
ið er að síga á nóttina og
enginn kúnni sjáanlegur
þá taka þær oft þessum
boðum.
Íslendingar hafa
stundað það að fara til
Taílands í þessum er-
indagjörðum, oft þeir
sem eiga við vandamál
á borð við alkóhólisma
að stríða og einmana
karlmenn sem eru
komnir vel á fullorðins-
ár. Sumir þeirra eiga við
einhverja fötlun að stríða og þá er
ódýrt að lifa í Taílandi. Hægt er að
kaupa svokallaða heimilisþjón-
ustu sem er vændi því þar fylgja
ýmiss konar greiðar með.
Margar af þessum konum
segjast ekki vera vændiskonur
heldur aðeins barstelpur, sem
hitta menn á börum, búa hjá
þeim í nokkra daga, fá pening
og vörur fyrir. Margir telja sér trú
um að þetta sé einmitt þannig, að
þetta sé ekki vændi heldur aðeins
„að vera á djamminu“ eða eitt-
hvað slíkt en það er aðeins sjálfs-
blekking. Þessi tegund af vændi
er stunduð undir öðrum for-
merkjum.
Sumir kúnnar eru kallað-
ir ATM, hraðbankar, og vænd-
iskonur eiga auðvelt með að sjá
sigta þá út. Um þessa ATM-kúnna
myndast oft mikil samkeppni.
„Hestalyf“ vinsælasta dópið
Í Taílandi er mjög áhættusamt að
taka inn eiturlyf því í þau kann að
vera blandað alls kyns hættuleg-
um efnum. Eitt vinsælasta dópið
í Taílandi er kallað yaba sem er
blanda af amfetamíni og koffíni
og er annaðhvort gleypt eða hitað
og því andað að sér. Yaba merkir á
íslensku hestalyf.
Mest af því á rætur sínar að
rekja til gullna þríhyrningsins
sem nær yfir hluta Búrma, Kína,
Laos og Taílands. Víman af yaba
er sögð minna á alsælu og þetta
er notað mikið af ladyboys. Yaba
hefur þó mjög slæm áhrif á þær
sem eru á hormónalyfjum fyrir. n
LADYBOYS OG VÆNDISKONUR Í PATTAYA
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu hágæða
innréttingar, sérsniðnar að þínum
óskum og þörfum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!