Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 8
8 15. júní 2018FRÉTTIR
Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Rúmföt & lök
mikið úrval
Sloppar
fyrir bæði kyn
Handklæði
Mikið úrval
Gerið gæða- og verðsamanburð
V
ið erum stödd í Ólafsvík
þar sem Lovísa Sól
Sveinsdóttir býr. Með
okkur, blaðamanni og
ljósmyndara DV, í för eru fyrrver-
andi skólasystur Lovísu, Kiana Sif
Limehouse og Helga Elín Her-
leifsdóttir. Kiana Sif og Helga Elín
hafa stigið fram á forsíðu Mann-
lífs, hvor í sínu lagi með viku
millibili, og lýst meintum kyn-
ferðisbrotum fyrrverandi stjúp-
föður Kiönu Sifjar, Aðalbergs
Sveinssonar, lögreglumanns hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Hin meintu brot áttu sér stað
þegar stúlkurnar voru 10–14 ára
gamlar en nokkrum árum síðar
lögðu þær, hvor í sínu lagi, fram
kærur á hendur Aðalbergi vegna
hinna meintu brota. Rannsókn
lögreglu leiddi til þess að málun-
um var vísað frá en stúlkurnar
og aðstandendur þeirra telja að
pottur hafi verið brotinn í vinnu-
brögðum lögreglu.
Eins og fram hefur komið í
viðtölum við Kiönu Sif og Helgu
Elínu þá hafa hin meintu brot
Aðalbergs haft gríðarleg áhrif á
líf þeirra. Þær leiddust báðar út
í óreglu og hafa háð harða bar-
áttu til að koma lífi sínu á réttan
kjöl. Það sama gildir um Lovísu
Sól sem nú stígur fram sem þriðja
meinta fórnarlamb Aðalbergs.
Allar stelpunar voru í sama
grunnskólanum, í sama árgangi.
Helga og Kiana voru bekkjar-
systur en Lovísa Sól í sama ár-
gangi en var mikið inni á heimili
Aðalbergs, stjúpföður Kiönu, þar
sem þær voru bestu vinkonur á
þessum tíma. Gisti hún tvisvar til
þrisvar sinnum í mánuði á heim-
ilinu og það var iðulega í þess-
um tilvikum sem Lovísa Sól full-
yrðir að Aðalbergur hafi brotið á
henni.
En aftur að Ólafsvík. Samfund-
ir stúlknanna þar marka tíma-
mót. Síðan hin meintu brot áttu
sér stað þá hafa þær háð baráttu
sína við djöfla fortíðarinnar hver
í sínu horni. Það flosnaði upp úr
vinskap þeirra og þær fóru í mis-
munandi áttir. Núna eru þær
sameinaðar á ný og fá styrk frá
hver annarri. „Við erum sterk-
ari saman,“ verður einni að orði
þegar endurfundirnir eiga sér
stað. Hér verður málið rakið frá
upphafi til enda.
„Þetta gerðist yfirleitt þegar
mamma var sofnuð“
Fyrsta kæran sem Aðalbergur
fékk á sig var vegna meintra brota
hans gegn stjúpdóttur hans,
Kiönu Sif Limehouse, árið 2009.
Kiana hafði þá brotnað niður og
rætt við hjúkrunarfræðing grunn-
skóla síns um hin meintu kyn-
ferðisbrot stjúpföður síns. Barna-
vernd Mosfellsbæjar fór strax í
málið. Stofnunin óskaði eftir við-
tali í Barnahúsi auk þess sem far-
ið var fram á að lögreglurannsókn
hæfist. Kiana fór í meðferðarvið-
töl hjá Barnahúsi og samkvæmt
gögnum málsins, sem DV hefur
undir höndum, þá nýtti hún þau
mjög vel. Niðurstaðan varð þó
sú að rannsóknin var látin niður
falla.
Tveimur árum síðar, árið 2011,
lagði Helga Elín fram kæru vegna
meints kynferðisbrots Aðalbergs.
Liður í þeirri rannsókn var að Ki-
ana var aftur kölluð í skýrslu töku
í Barnahúsi vegna hina meintu
brota sem hún varð fyrir. Þar
sagði Kiana þegar hún var spurð
hvort hún hefði verið beitt kyn-
ferðislegu ofbeldi: „Það byrjaði
í svona fimmta bekk. Á milli
fimmta bekkjar og sjöunda bekkj-
ar. Þetta gerðist nokkrum sinn-
um og þetta gerðist yfirleitt þegar
mamma var sofnuð eða mamma
var ekki heima. Hann kom alltaf
inn í herbergið og var alltaf svona
að kíkja hvort ég væri sofnuð eða
ekki. Ég man rosalega vel eftir
því, alltaf með annaðhvort bjór
eða eitthvað í hendinni þótt hann
væri að fara vinna daginn eftir.
Annaðhvort léttvín eða eitthvað.
Fyrir framan krakkana nærri því á
hverju kvöldi. Ég þorði ekkert að
fara á móti honum. Þannig þegar
hann kláraði þetta fór hann bara
fram og ég var bara hrædd, ég
þorði ekkert að kalla á mömmu
eða neitt. Ég þorði ekki að segja
henni það út af því að hún geng-
ur svo blind á eftir honum,“ sagði
Kiana orðrétt, þá 14 ára göm-
ul. Þegar hún var spurð hversu
oft þessi meintu kynferðisbrot
hefðu átt sér stað sagði Kiana að
alls hefðu þetta verið fimm til sex
skipti.
„Hann sagði
við mig að
ég mætti ekki
segja frá þessu og
að þetta væri allt
í lagi, þetta væri
bara eðlilegt.
„ERUM STERKARI SAMAN“
Stíga þrjár fram og
saka lögreglumann
um að hafa brotið á
þeim kynferðislega á
barnsaldri
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is