Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 10
10 15. júní 2018FRÉTTIR
Viltu kaupa fasteign
á spáni ?
Hafðu samband / S. Jón Bjarni & Jónas 555 0366
Masa international býður þér
í skoðunarferð til Costa blanCa í
júní á 29.900 kr.
þar seM drauMaeignina þína gæti
Verið að finna
hægt að tímasetja nákvæmlega
hið meinta brot, þó svo að síma
gögn móður þolanda hefðu leg
ið fyrir. Einnig var ekki rannsak
að frekar af hverju tíma skýrslur
Aðalbergs vegna vinnu hans hjá
lögreglu stemmdu ekki við síma
gögnin.
Fraus þegar hún hitti meintan
ofbeldismann í Kringlunni
Árið 2013 fékk Aðalbergur á sig
þriðju kæruna vegna meints kyn
ferðisbrots. Faðir Lovísu Sólar lagði
þá fram kæru fyrir hennar hönd
eftir að dóttir hans hafði greint
honum frá hinum meintu brotum
sem áttu að hafa átt sér stað inni á
heimili Aðalbergs á árunum 2010
og 2011. Í samtali við blaðamann
segir Lovísa Sól að henni hafi alltaf
staðið stuggur af Aðalbergi. „Hann
horfði alltaf mjög furðulega á mann
sama hvort Jóhanna var heima eða
ekki,“ segir Lovísa Sól. Hún segist
aldrei hafa rætt hinu meintu brot
við nokkurn mann, hvorki Kiönu
né aðra vini eða aðstandendur, þar
til hún brotnaði niður og sagði föð
ur sínum frá. „Hann sagði við mig
að ég mætti ekki segja frá þessu og
að þetta væri allt í lagi, þetta væri
bara eðlilegt,“ segir hún. Að hennar
sögn fólust hin meintu brot í óvið
eigandi augnagotum og snertingu
auk þess sem hún fullyrðir að Að
albergur hafi káfað á kynfærum
hennar í nokkur skipti.
Það tekur augljóslega á hana
að ræða málið og hún er ná
lægt því að beygja af. Hún sýn
ir þó styrk við að halda jafnvægi
sínu. „Eftir að þetta gerðist í fyrsta
skiptið reyndi ég alltaf að fá Kíönu
til að koma frekar heim til mín því
ég vildi ekki vera á heimili þeirra.
Ég fór samt alltaf aftur vegna þess
að ég trúði að kannski myndi
þetta ekki gerast aftur,“ segir hún.
Vinátta hennar og Kiönu var
sterk á þessum árum. „Við vorum
bestu vinkonur, við vorum alltaf
saman, við vorum hreinlega límd
ar saman, ég vildi aldrei fara frá
henni,“ segir Lovísa Sól.
Hún segir að fréttaumfjöllun síð
ustu vikna, þar sem Kiana Sif og
Helga Elín hafa stigið fram og opn
að sig um meint kynferðisbrot, hafi
fengið mjög á hana. „Ég reyndi að
sofa hjá kærastanum mínum eftir
að þetta mál með Helgu og Kiönu
kom upp í blöðunum og ég bara fór
að gráta, ég gat það ekki,“ segir hún.
Hún segist aðeins einu sinni hafa
hitt Aðalberg eftir að kæran var lögð
fram. „Ég hef einu sinni séð hann
frá því að ég kærði hann, það var í
Kringlunni. Ég bara fraus og gat ekki
hreyft mig. Loks byrjaði ég bara að
gráta og endaði á því að hlaupa út.“
Kæru Lovísu Sólar var vísað
frá, rétt eins og kæru Helgu Elínar
og Kiönu Sifjar. Það kom Lovísu
Sól ekki á óvart. „Er það ekki bara
Hélt lögreglustarfinu
þrátt fyrir fangelsisdóm
S
taða Aðalbergs hefur verið
umdeild innan lögreglunnar
og hefur hann meðal annars
fengið á sig dóm fyrir brot
í starfi. Þann 31. mars árið 2005
var hann dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir brot í starfi þegar
hann stöðvaði bifhjól í Vesturbæn
um með því að sveigja lögreglu
bíl inn á gagnstæðan vegarhelm
ing með þeim afleiðingum að
ökumaður hjólsins lenti á bíln
um og slasaðist. Hlaut hann 32
daga fangelsisdóm auk sektar
greiðslu og greiðslu málskostnað
ar. Hæstiréttur staðfesti sekt Að
albergs en frestaði refsingu með
skilorði til tveggja ára. Í málflutn
ingi fyrir héraðsdómi sem og í
skýrslu innra eftirlits kemur fram
að Aðalbergur hafi logið við vinnslu málsins
og fengið aðra lögregluþjóna til að vinna með
sér í því að gefa upp rangar upplýsingar við
vinnslu málsins og fyrir dómi. Þrátt fyrir það
hélt hann starfi sínu hjá lögreglunni.
Ók fyrir bifhjól
Samkvæmt dómnum voru málavextir þeir að
lögreglan hafði, aðfaranótt 31. maí árið 2004,
verið að leita að bifhjólamönnum sem ekið
höfðu á miklum hraða í vesturbæ Reykja
víkur og á Seltjarnarnesi. Aðalbergur tók þátt
í leitinni á lögreglubíl en með honum í för var
samstarfskona hans.
Á Ægissíðu sá Aðalbergur hvar bifhjóli
var ekið úr gagnstæðri átt og ákvað hann þá
að sveigja lögreglubílnum yfir á þá akrein
í veg fyrir hjólið með þeim afleiðingum að
árekstur varð og bæði lögreglukonan og
öku maður bifhjólsins, Páll Heiðar Halldórs
son, slösuðust. Auk þess skemmdust bæði
bíllinn og bifhjólið. Aðalbergur sagðist fyrir
dómi hafa talið ökumann hjólsins vera þann
sama og hann hafði séð keyra of hratt fyrr um
nóttina. Hjól, galli og hjálmur ökumannsins
hafi bent til þess. Til að stöðva hjólið, sem
hafi verið á miklum hraða, hafi hann ákveðið
að setja forgangsljósin á og sveigja inn á
vegarhelminginn en hafa gætt þess að hjól
ið kæmist fram hjá. Þegar ökumaður hjóls
ins virtist ætla að fara fram hjá hafi hann fært
bílinn enn lengra. Þegar bifhjólið var farið að
riða hafi hann reynt að sveigja bílnum aftur á
réttan helming. Hafi hjólið þá fallið og runnið
fram hjá bílnum.
Logið til um galla
Samstarfskona Aðalbergs bar vitni og þar
kom fram að hún hefði einnig skrifað undir
skýrslu um umferðarlagabrot Páls utan
vinnutíma en gat síðan ekki staðfest þau fyrir
rétti þar sem hún hafði ekki séð meint um
ferðarlagabrot. Þá kom fram að bíllinn var,
samkvæmt svokölluðu tetrakerfi, ekki stað
settur á sama stað og þau sögðust hafa verið á
við hraðamælingar áður en áreksturinn varð.
Hún sagði einnig að Páll hefði fallið og hjólið
runnið fram hjá bílnum í kjölfarið.
Annar lögreglumaður sem einnig tók þátt
í aðgerðunum þessa nótt lýsti nákvæmlega
tveimur hjólum, númerum, göllum og hjálm
um ökumanna sem hann hafði séð í ofsakstri.
Þegar hann var inntur eftir því hvernig hann
hefði getað lagt þetta á minnið á nokkrum
sekúndubrotum sagðist hann hafa séð Pál í
gallanum á lögreglustöðinni eftir árekstur
inn. Þá kom fram að gallinn hafði verið skil
inn eftir á slysadeildinni og baðst lögreglu
maðurinn þá afsökunar á rangri fullyrðingu.
Páll sagði fyrir dómi að hann hefði séð
lögreglubílinn seint á sínum vegarhelmingi,
hann hefði verið á um 50 kílómetra hraða
og reynt að hemla en það ekki dugað til því
að lögreglubílnum hefði verið ekið framan
á hjólið og síðan áfram. För eftir stuðara og
dekk hafi sést á hjólinu. Kastaðist Páll yfir bíl
inn og á götuna með þeim afleiðingum að
hann tognaði á úlnlið, marðist á sköflungi og
hefði haft verki og doða í handlegg, baki og
höfði eftir það.
Stórfellt gáleysi
Komst dómari að þeirri niðurstöðu með fullri
vissu að hjólið hafi komið framan á bílinn, af
stöðu bílsins og hemlaförum að merkja, og
að bíllinn hefði færst við áreksturinn. Þegar
Aðalbergur hefði ekið í veg fyrir hjólið hefði
ekki verið unnt að afstýra árekstrinum og Páll
því settur í hættu. Með þessu stórfellda gá
leysi hefði Aðalbergur ekki farið rétt að í að
gerðum sínum í opinberu starfi og um leið
brotið almenn hegningarlög og umferðarlög.
Fékk hann 32 daga fangelsisdóm og var auk
þess dæmdur til að greiða sekt, skaðabætur
og sakarkostnað.
Í frétt DV frá 1. apríl árið 2005 var sagt
að bæði héraðsdómur og innra eftirlit lög
reglunnar hefði sagt að Aðalbergur hefði log
ið með frásögn sinni af atburðum. Honum
var ekki vikið frá störfum þrátt fyrir þetta. Páll
Heiðar var einnig dæmdur til sektargreiðslu
fyrir ógætilegan akstur. Í dómi Hæstaréttar
frá 10. nóvember sama ár var dómurinn yfir
Aðalbergi skilyrtur til tveggja ára í ljósi þess
að hann hafði ekki áður hlotið refsingu og að
fyrir honum hafi vakað að stöðva ofsaakstur.
Skaðabótakröfunni var einnig vísað frá.
eðlilegt á Íslandi? Ég hafði engar
væntingar af því að ég vissi svo
sem að það myndi ekkert gerast
þó að það yrði kært, það er bara
þannig á Íslandi, það gerist ekkert
í svona málum.“
Var aldrei leystur
tímabundið frá störfum
Þrátt fyrir að hafa verið kærður
þrisvar fyrir meint kynferðisbrot
gagnvart börnum var Aðalbergi
aldrei vikið frá störfum hjá Lög
reglunni á höfuðborgarsvæð
inu meðan á rannsóknum mál
ana stóð. Þegar kæra númer tvö
lá á borði lögreglu hafði móðir
Helgu Elínar samband við Ríkis
lögreglustjóra til að fá svör við því
af hverju Aðalbergi væri ekki vikið
frá störfum á meðan rannsókn
málsins stæði yfir svaraði ríkis
lögreglustjóri á þann veg að hann
hefði ekki nægilega góðan aðgang
að gögnum málsins og gæti því
ekki tekið afstöðu í málinu. Það er
hlutverk ríkissaksóknara að láta
ríkislögreglustjóra fá rannsóknar
gögn um mál sem eru í vinnslu
hjá þeim, en saksóknari taldi sig
hafa haft samband við Lögreglu
stjórann á höfuðborgarsvæðinu
til þess að meta hvort ætti að leysa
Aðalberg tímabundið frá störf
um á meðan rannsókn málsins
stóð yfir. Engin niðurstaða fékkst
í þetta mál og starfaði hann því
áfram hjá Lögreglunni á höfuð
borgarsvæðinu á meðan málið
var rannsakað. n