Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 18
18 15. júní 2018MENNING
Þ
egar talað er um bestu og farsælustu
hljómsveitir landsins er hljómsveitin
GusGus ofarlega í huga. GusGus hef
ur verið starfrækt í yfir tvo áratugi
og sent frá sér fjölda platna og smáskífna.
Hljóðheimur hljómsveitarinnar eru mik
ilfenglegur og hefur hún stimplað sig inn
í hjörtu margra tónlistarunnenda úti um
allan heim. Fram undan eru tvennir tón
leikar í Eldborgarsal Hörpu þar sem aðdá
endur geta átt von á þverskurði frá bandinu
eins og það hefur þróast frá og með plött
unni Attention. Af því tilefni munu Urð
ur Hákonardóttir og Högni Egilsson vera á
meðal þeirra sem stíga á svið með sveitinni.
Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi
veira, hefur verið meðlimur bandsins frá
upphafi og hjarta hljómsveitarinnar. Guðni
Einarsson settist niður með Bigga og ræddi
við hann um tónlistina og hljómsveitarlífið.
„Fyrsta spurning, hver voru þín fyrstu
kynni af elektrónískri tónlist?
„Vorið 1982, 13 ára og nýfermdur með
fyrstu hljómtækin á heimilinu, byrjaði ég að
kaupa plötur og fá lánaðar. Ég hafði náttúr
lega heyrt útundan mér ýmislegt í útvarpinu
og kveikt á, eins og til dæmis Souvenir með
OMD og annað draumkennt frá þessum
tíma, en ein fyrsta platan sem ég fékk lán
aða frá eldri bróður vinar mins var Oxygen
með Jean Michael Jarre. Síðan fannst mér
Body Language með Queen það töff að ég
keypti plötuna. Það hafði engin tónlist ver
ið á mínu heimili fram að þessu þannig að
þetta voru fyrstu lögin sem mótuðu á mér
heilabörkinn. Það má kanski heyra þessi
áhrif í flestu sem ég hef gert hingað til.“
Hvenær og hvernig varð GusGus til?
Hver var undanfarinn?
„Siggi Kinski og Stefán Árni voru að
skrifa og framleiða stuttmyndina Nautn
árið 1995, og höfðu ráðið ýmislegt tónlistar
fólk til að leika í myndinni. Þar á meðal var
Daníel Ágúst og varð það hugmynd milli
hans og Sigga að gera plötu með öllu þessu
tónlistarfólki, samhliða myndinni. Dan
íel Ágúst hafði þá nýskilið við NýDönsk
og hafði unnið með Bubbleflies á annarri
plötu þeirra og vildi þaðan kanna betur
raftónlist. Því þyrfti að fá einhvern inn til
að hjálpa við það. Stefán Árni vissi af mér í
hljómsveitinni TWorld og stakk upp á því
að þeir skoðuðu það. Það varð úr að ég og
Maggi, sem vorum þá búnir að vinna í þrjú
ár saman við rannsókn á lausklúbbatengdri
raftónlist, enduðum í þessu samstarfi og
má segja að við tveir og Daníel höfum fram
leiðslustýrt fyrstu GusGusplötunni, sem
árið 1997 var síðan endurunnin í erlendu
útgáfuna Polydistortion.“
Nú hefur GusGus verið lengi að. Hvernig
hefur samstarfið verið milli hljómsveitar-
meðlima allan þennan tíma?
„Það hefur nú verið upp og ofan eins
og alltaf þegar metnaðarfullt fólk mæt
ist með ólíkar skoðanir og langanir. Þegar
þetta byrjaði til dæmis árið 1995 þá var
þetta varla hljómsveit heldur hópur af
fólki sem gerði þessa stuttmynd og fyrstu
plötuna sem aukaafurð með mismikilli
metnaðar aðkomu. Enda kölluðum við okk
ur fjöllistahóp á þessum tíma. Það var svo
þegar 4AD sendi okkur fax í upphafi 1996
um að gefa þessa plötu út á heimsvísu og
skrifa undir samning varðandi fleiri útgáf
ur, sem níu manns úr hópnum ákváðu að
verða hljómsveitin GusGus. Það kom þó í
ljós við vinnslu á seinni plötunni að fólkið
sem þarna var samankomið var með mjög
ólíkar hugmyndir um hvers konar hljóm
sveit og hvers konar tónlist þessi hópur
stæði fyrir, enda kvarnaðist úr hóppnum
á þessum tíma. Þegar svo Daníel ákvað að
hætta líka árið 2000, var lítið eftir nema ég
og Maggi Legó ásamt Stebba. Söngvara
lausir framleiðendur. Urður kom þá inn
sem aðalsöngvari og má þá segja að við yrð
um alvöru hljómsveit, þar sem tónlistin var
númer 1, 2 og 3. Þegar Urður hætti og Dan
íel kom inn aftur 2008 héldum við áfram í
svipaðri hugmyndafræði, en í teknógír sem
hentaði nýjum tíma með Daníel.“
Hvaða hlutir/þættir heldurðu að
séu á bak við velgengni GusGus?
„Ég hef ekki hugmynd um það,
en ég held að ég viti hvað hef
ur haldið okkur svona langlífum.
Það er metnaðurinn og þörfin á
að gera eitthvað nýtt og spennandi
í tónlist. Þá hefur þessi síbreytileiki
hljómsveitameðlima þröngvað upp
á okkur að endurskilgreina bandið
með hverri nýrri plötu, og þannig,
haldið viðfangsefninu fersku.“
Þegar þið semjið nýtt efni, hvern-
ig er ferlið?
„Það er nú upp og ofan, en oft
ast er einhver leit að „sándi“ og
nýjum hljómhrifum sem skilar
af sér frekar einföldum skissum
sem þó hafa eitthvað seiðandi,
annaðhvort við tilfinninguna eða
hrynjandann. Ef Daníel tengir við
það, lendir kannski drögum af söng,
þá rannsökum við það áfram saman og
klárum.“
Hvað veitir þér helst innblástur
þegar kemur að því að semja?
„„Knobs baby“… Nei í alvöru, fyr
ir mér er raftónlist fyrst og fremst leit
að „sándi“, með hljóðgervlum, og
hughrifum þeim tengdum. Þannig
að ef ekkert sérstakt er í gangi, byrjar
maður að tengja snúrur í „modular
syntunum“, snúandi tökkum í leit að
einhverju „sándi“ sem kallar tilbaka
á þig, heimtar að fá fyrir sig meló
díu. Þannig verða oftast til fyrstu
skissurnar sem seinna fullklárast
sem GusGuslög.
Margir tala um GusGus-
-„sándið“. Hver er galdurinn á bak
við það?
„Ekki hugmynd. En það sem
sameinar kannski flest lögin er
leit að ákveðnum hughrifum í
gegnum sambland af óreiðuflökti
og taktfestni og hvernig misstór
og seiðandi hljómastökk hræra
upp í tilfinningum. Þannig að
kannski er það meira hvernig
lögin kveikja sambærileg hug
rif frekar en að það sé eitthvert
„sánd“ sem sameinar flest lög
in okkar.“
Nú hafið þið spilað og túrað mikið í
gegnum árin. Hvernig er lífið á túrum,
tekur þetta á? Hvað er erfiðast og hvað er
skemmtilegast?
„Það tekur alltaf á að túra. Þótt það reyni
ekki mikið á líkamlega, þá er þetta ótta
legur óþæginda flækingur sem hentar illa
heimakæru fólki. En það sem gerir þetta
þó allt þess virði er að standa
á sviðinu með Daníel
og galdra saman
þennan graut
sem tónleik
arnir okkar
eru. Án þess
að ég fari út
í það tækni
lega þá er
uppsetningin
á tónleikum
þannig að hún
endurskapar
alltaf þessa leit
og sköpun á
þann hátt
að við
erum alltaf að gera lögin upp á nýtt og hvert
skipti er ólíkt öllum öðrum.“
Þið eigið stóran aðdáendahóp úti um
allan heim. Hvar er sá stærsti? Sá villtasti?
„Það má segja að miðað við höfðatölu
þá erum við stærstir í Póllandi en stærstu
tónleikarnir eru í Rússlandi. En Þýskaland
og AusturEvrópulönd eru okkar helsta
markaðssvæði ásamt Mexíkó. En sá villt
asti er Bretinn. Það hafa einhver sérkenni
leg partígen valist þar inn.“
Hvar finnst ykkur skemmtilegast að
spila? Áttu þér uppáhaldstónleikastað?
„Það er alltaf spennandi að spila eig
in tónleika í höfuðborgunum. Berlín,
Moskva, Varsjá og Reykjavík eru þar í
efstu sætum. En varðandi stað þá fer
ég nú yfirleitt að hálfgráta þegar ég er
á þessum geggjuðu „live/dj“klúbbum
sem finnast í flestum alvöru borgum,
því við höfum enga slíka hérna í Reykja
vík. Sá nýjasti sem ég grét yfir var 900
manna staður í Lviv í Úkraínu sem var
með vel staðsetta bari í tónleikasalnum
og bæði stand og setusvæði á tveim
ur hæðum. Það er nú orðið
alveg ljóst að svona
staður verður ekki til
í Reykjavík nema
með opinberum
stuðningi. Verst
að sá stuðningur
er eyrnamerktur
öðru.“
Hver er upp-
áhaldsGusGus-
-platan þín?
„Það hefur
alltaf verið sú
nýjasta, þannig
að Lies are
more flexible
er á toppnum
sem stendur.
Síðan finnst
mér alltaf
voða vænt
um For
ever.“
Hvað
finnst þér
um íslensku
raftónlistarsen-
una í dag? Eitthvað
sem mætti betur fara?
„Mér finnst hún
frekar töff. Heilmikið í
gangi og margt áhuga
vert. Það mætti þó vera
meira um „punk“ og
„newwave“áhrif
finnst mér, en hversu
sterkt senan er
smituð af „92–94 in
tellegent brakes“
áhrifum er mér að
skapi.“ n
„Einhver sérkennileg
partígen valist þar inn“
„Það tekur alltaf
á að túra. Þótt
það reyni ekki mikið á
líkamlega, þá er þetta
óttalegur óþæginda
flækingur sem hentar
illa heimakæru fólki.
M
Y
N
D
H
A
N
N
A
n Biggi veira fer yfir tónlistina og hljómsveitarlífið n Tvennir tónleikar fram undan hjá GusGus
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is