Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
15. júní 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Við erum líklega að taka HM aðeins of langt
Þ
á er heimsmeistaramótið í
knattspyrnu loksins skollið
á. Ég og eflaust meirihluti
þjóðarinnar eigum það
sameiginlegt að geta vart á heil-
um okkur tekið af eftirvæntingu
fyrir fyrsta leik Íslands. Það gildir
þó ekki um alla því ég á nokkra
ættingja og vini sem hafa engan
áhuga á fótbolta eða þátttöku Ís-
lands á HM. Hugur minn er hjá
þessum ástvinum mínum því
ljóst er að síðustu vikur hafa verið
óbærilegar og næstu vikur verða
miklu verri.
Íslenskir fjölmiðlar eru að
ganga ansi langt í umfjöllun sinni
um HM. Það er skiljanlegt í ljósi
þess að þetta er í fyrsta skipti sem
Íslendingar taka þátt og alls óvíst
að íslenska liðið taki aftur þátt á
þessu stærsta sviði íþróttanna.
Við hljótum því að mega fara yfir
um svona einu sinni og líklega
taka fæstir eftir því enda virðist
meirihluti þjóðarinnar við það að
sturlast.
Vandinn við að flytja fréttir af
HM-ævintýri Íslands er að finna
eitthvað nýtt. Allar fréttir af erlend-
um miðlum þar sem einhver hrósar
Íslandi eru étnar upp umsvifalaust
á öllum miðlum. Her fréttamanna
fylgir íslenska liðinu við hvert fót-
mál og hefur flutt áhugaverðar
fréttir af baráttu landsliðsmanna í
borðtennis, skákáhuga aðstoðar-
manns landsliðsins, hörmulegs
kvikmyndasmekks aðalmark-
varðarins og svo mætti lengi telja.
Ákveðinn hápunktur átti sér stað
þegar vinur minn, Hörður Snævar
Jónsson, ritstjóri 433.is, birti frétt
þar sem hann tók saman hæð og
þyngd allra íslensku landsliðs-
mannanna. Sú frétt fékk að sjálf-
sögðu metlestur og varð til þess
að við erum alvarlega að íhuga að
birta þessar upplýsingar fyrir allar
þátttökuþjóðir og reikna út BMI-
-stuðla landanna.
Það var því hægara sagt en gert
að finna eitthvað nýtt og ferskt efni
í helgarblað vikunnar. Lendingin
varð því sú að taka saman spá-
dóma nokkurra knattspyrnuspek-
inga, athuga hvort brúðkaupum
væri frestað í hrönnum vegna
keppninnar auk þess sem ykkar
einlægur tók viðtal við ítalskan
háskólakennara sem fullyrðir að
hann hafi séð velgengni íslenska
liðsins fyrir árið 2013. Já, líklega
erum við að taka þetta of langt.
En hvað um það. Fram undan
er þjóðhátíð og hennar skulum við
njóta, sama hvernig fer á vellinum.
Þar býst ég við hinu besta en er
andlega tilbúinn undir hið versta.
Áfram Ísland! n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sjálfstætt sveitarfélag?
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er frægur
fyrir að mynda sér skoðanir á
fólki með því að kanna hvað því
líkar við á samfélagsmiðlum. Vill
hann til dæmis aldrei ræða við
Sigurjón M. Egilsson vegna þess að
honum líkaði færsla sem Bjarna
líkaði ekki. Ef forsendur Bjarna
eru notaðar þá má sjá að einn
ráðherra í ríkis stjórninni er fylgj-
andi því að Grafarvogur segi
sig úr Reykjavík og verði sjálf-
stætt sveitar félag. Það er Guð-
laugur Þór Þórðarson, utanríkis-
ráðherra og íbúi í Grafarvogi.
Grafarvogur yrði 18 þúsund
manna sveitarfélag, hið fimmta
stærsta á landinu, og yrði án efa
í höndum Sjálfstæðismanna
um ókomna framtíð. Hættan
yrði hins vegar sú að Reykjavík
yrði í höndum vinstrimanna um
ókomna framtíð ef sjálfstæðis-
vígið klýfur sig frá.
Gremja í Grafarvoginum
Það ríkir talsverð gremja hjá
mörgum í Grafarvoginum
vegna nýja, eða uppfærða,
meirihlutans í borginni. Sam-
kvæmt könnun Félagsvís-
indastofnunar er Sjálfstæðis-
flokkurinn mun sterkari í
Grafarvogi en flokkarnir sem
mynda nú meirihlutann í
borginni. Er því hægt að full-
yrða að ef íbúar Grafarvogs
hefðu fengið að ráða væri Eyþór
Arnalds borgarstjóri með Vig-
dísi Hauksdóttur sem forseta
borgarstjórnar. Til að kóróna
gremjuna ákvað meirihlutinn,
þriðja skiptið í röð, að kynna
samstarfið í Breiðholti. Árið
2010 var meirihluti Besta flokks
og Samfylkingar kynntur í
Æsufellinu, 2014 var það í El-
liðaárdalnum og nú síðast
við Breiðholtslaug. Ef Sjálf-
stæðismenn ná borginni eftir
fjögur ár þá verður þrýstingur
á hann að kynna meirihlutann
í Spönginni, Egilshöll eða á
Geldinganesi.
L
úpínan er öflug land-
græðsluplanta og hefur kosti
sem slík. Hins vegar hef-
ur ofnotkun og skefjalaus
útbreiðsla í nafni skógræktar og
landgræðslu víða útrýmt berja-
lyngi og fínlegum blómgróðri. Líf-
fræðilegur fjölbreytileiki tapast og
eftir stendur einhæf lúpínubreiða.
Sífellt fleiri sveitarfélög skera nú
upp herör gegn lúpínu en oft með
litlum árangri enda vandaverk að
eyða plöntunni án þess að drepa
allan annan gróður. Segja má að
allt sé reynt til að
hamla útbreiðslu
hennar – á Dalvík,
í Fjarðabyggð,
Hrísey, Húsavík,
Hveragerði, Ísa-
fjarðarbæ, Mosfellsbæ, Reykja-
vík, Skagaströnd, Stykkishólmi,
Vogastapa – listinn er lengri. Vís-
indamenn hafa kynnt tillögur um
útrýmingu plöntunnar og jafn-
vel Landgræðsla ríkisins er hætt
að nota lúpínu sem landgræðslu-
jurt nema á stór-
um samfelldum
rofsvæð- um. Það er þess
vegna tímaskekkja að enn skuli
menn leyfa sér að dreifa þessari
ágengu plöntu á hálendinu og á
friðlýstum svæðum. Ég er þeirrar
skoðunar að það sé hervirki gegn
náttúru landsins.“
V
ið hjónin höfum sinnt,
síðan 1986, 15 hektara
skika í Mörk á landi sem
Landgræðsla ríkisins á.
Þar höfum við notið útiveru og
náttúrunnar í ríkum mæli langt
frá ys og þys borgarinnar, en líka
lagt mikla vinnu í landgræðslu,
skógrækt og girðingarvinnu.
Land þetta er furðu margbreyti-
legt, sums staðar graslendi frá
fornu fari en annars staðar eru
sendin svæði frá því er allt blés
upp á þessum slóðum þar til
Landgræðslan fór að spyrna við
fótum. Hvað sem við sáð-
um ár eftir ár á þessum
sandflákum þá greri
aldrei. En einn góð-
an veðurdag fyrir um
15 árum fengum við
lúpínu hjá Landgræðslunni sem
stakk upp á að við þektum þessa
„auðnir“ með lúpínu innan um
birkiplöntur sem við gróðursett-
um um leið. Og viti menn, þá tók
landið stökkbreyting-
um til hins betra. Ég er
því hlynntur lúpínunni
EN – með stóru stóru „enni“:
ÞAÐ MÁ EKKI SLAPPA AF. Það
þarf að gefa sér tíma til að halda
henni í skefjum á vorin, STÝRA
útbreiðslunni!“
Þór Jakobsson, veðurfræðingur Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur og fyrrv. ráðherra
MEÐ OG Á MÓTI LÚPÍNA
MEÐ Á MÓTI
Spurning vikunnar Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu?
„Hann fer 0-0“
Gunnlaugur Gunnarsson
„1-1 og Gylfi skorar“
Unnur Hólmfríður Sigurðardóttir
„Við vinnum hann! 1-0“
Anna Karlsdóttir
„1-1, Aron Einar skorar fyrir Ísland“
Halldór Emilsson