Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 32
Sniðugt í sumar 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ Undraefnið Prolan Medium heldur grillinu hreinu og ryðlausu Þetta virkar mjög vel á grillið með því að nota Scaldia hreingern-ingarsvamp, sem flestir kann- ast við og er til á nær öllum heimilum, hann er oftast gulur öðrum megin og grænn hinum megin. Þú úðar yfir grillið og lætur standa í dálítinn tíma. Síðan nuddar þú með mýkri hlið svampsins yfir og þá fara burtu öll óhreinindi, ryðið og liturinn. Síðan er bara þurrkað yfir með hreinum klút. Þetta kemur í veg fyrir að grillið ryðgi yfirhöfuð, það falli á það og þess háttar. Takkarnir verða ekki fastir, en það er vandamál sem flestir grilleigendur hafa margir kynnst, því takkar á gasgrillum festast oft.“ Þetta segir Smári Hólm, umboðs- aðili fyrir Prolan á Íslandi, en Prolan Medium er sannkallaði undraefni á útigrill og stuðlar að því að grillið heldur upphaflegu útliti sínu og er áfram prýði á veröndinni eða svölun- um, í stað þess að verða að ljótum, ryðguðum klumpi eins og því miður er alltof algengt. „Það er óhætt að segja að Prolan Medium sparar eigendum útigrilla mikil vandræði og vesen,“ segir Smári. Hann tekur hins vegar fram að Prolan Medium hentar ekki til að þrífa sjálfa grindina undir matnum, þar skal beita hefðbundnum aðferðum. Smári Hólm er einn helsti sér- fræðingur landsins í ryðvörnum og rekur ryðvarnaverkstæði að Rauð- hellu 1 þar sem hann ryðver bíla eftir kúnstarinnar reglum. Í gegnum þetta starf kynntist hann undraefn- inu Prolan sem hefur gífurlega sterk forvarnaráhrif á þá fleti sem það er borið á. Prolan-vörurnar eru fjölbreyttar, allt eftir því á hvers konar hluti þær eru notaðar, en eins og fyrr segir er varan sem notuð er á útigrillin Prolan Medium, sem er í úðaformi. Auðvelt er að úða vökvanum úr brúsanum og hann dreifist vel. Fyrir utan að henta vel á útigrillin virkar varan vel sem smurefni fyrir verkfæri og ýmsa hreyfanlega hluti. Á vefsíðunni prolan.is er að finna ítarlegar upplýsingar um Prolan, sér- staklega undir efnisflokknum Vörur. Prolan er selt mjög víða en á prolan.is undir efnisflokknum Sölustaðir/Pant- anir er ítarlegt yfirlit yfir alla söluaðila Prolan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.