Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 43
Skagafjörður 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
HÓTEL TINDASTÓLL:
Elsta hótel landsins er
í stöðugri endurnýjun
Hótel Tindastóll á sér stórmerka sögu en þetta elsta hótel landsins tók fyrst til starfa árið
1884. Upprunalega húsið var flutt
til Íslands frá Noregi árið 1920 og er
í dag eitt af 20 elstu timburhúsum
landsins. Hótelrekstrinum var hætt
árið 1970 en þá var húsið illa farið.
Það var síðan endurgert á tíunda
áratugnum og hótelreksturinn hófst
að nýju árið 2000.
Nú ver andi eig end ur Hót els Tinda
stóls eru hjón in Selma Hjörv ars dótt ir
og Tóm as H. Árdal en hótelið er nú
rekið undir merkjum fyrirtækis þeirra,
Arctic Hotels. Þau hjónin reka einnig
sumarhótelið Miklagarð í húsnæði
heimavistar Fjölbrautaskóla Norður
lands vestra. Einnig reka þau gisti
heimili undir nafninu Gistiheimilið
Mikligarður.
Þau hjónin hafa unnið að því
undanfarin ár að koma gististöðunum
sínum undir merki Vakans gæða
stýringar og hafa nú fengið fyrst
allra á Norðurlandi vestra þriggja
stjörnu vottun fyrir Hótel Tindastól og
tveggja stjörnu superiorvottun fyrir
hótel Miklagarð. Stutt er í vottun fyrir
gistiheimilið.
Selma og Tómas tóku við rekstri
Hótels Tindastóls árið 2012 og hafa
síðan þá hægt og bítandi sett sinn
svip á staðinn.
„Við höfum gert ýmsar endur
bætur, bjuggum til nýtt eldhús og
færðum til og stækkuðum móttökuna.
Við höfum líka endurnýjað rúm og
innbú,“ segir Selma, en breytingarn
ar og endurbæturnar hafa komið í
áföngum.
„Við reynum alltaf að gera eitthvað
fyrir staðinn á hverju ári. Eitt árið
skiptum við til dæmis um alla glugga
í húsinu og þeir eru ekki fáir, alls 172.
Það var einfalt rúðugler og þetta
hélt hvorki vatni né vindum. Núna er
tvöfalt gler í öllum gluggum en útliti
er haldið upprunalegu þannig að
gluggarnir virðast hafa einfalt gler
þar sem lítið bil er á milli glerjanna.“
Hótel Tindastóll samanstendur af
gamla húsinu og nýbyggingu sem
bætt var við fyrir nokkrum árum.
Gamla húsið tekur rúmlega 20 manns
í gistingu og nýbyggingin annað eins.
Heildar gistipláss er fyrir rúmlega 40
manns.
Að sögn Selmu eru Íslendingar
meirihluti gesta yfir vetrarmánuðina,
gjarnan þá fólk í einhvers konar
vinnuferðum. Erlendum ferðamönn
um hefur samt fjölgað yfir veturinn
og á sumrin eru þeir í yfirgnæfandi
meirihluta.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð
unni arctichotels.is.
RÚNALIST Á STÓRHÓLI:
Handverk, húsdýr,
matvörur og fróðleikur
Stórhóll í Lýtingsstaðahreppi, í um 20 kílómetra fjarlægð frá Varmahlíð, er staður sem
verðugt er að skoða fyrir þá sem
eiga leið um Skagafjörð í sumar.
Þar bíður ferðalanga margvísleg
upplifun, meðal annars galleríið
Rúnalist, þar sem er til sýnis og
sölu margvíslegt handverk úr
náttúruefnum. Handverkskonan
og bóndinn Sigríður H. Indriða
dóttir ræður þar húsum, hún hefur
fengist við handverk nánast alla
ævi en sú starfsemi sem er undir
nafni Rúnalistar hefur verið í gangi
í um tvo áratugi.
Rúnalist framleiðir vörur úr nátt
úrulegum hráefnum, leðurtöskur,
selskapsveski, kortaveski, myntbuddur
og leðurpunga úr hlýraroði, laxaroði,
þorskroði, nílarkarfa og sauðskinni.
Þá má nefna ungbarnaskó úr smá
lambaskinni beint frá býli, hárskraut
og barmnælur úr íslenskri ull og
sauðaleðri, að ógleymdum mynd
um úr hlýraroði, laxaroði, þorskroði,
íslenskri ull og endurunnum, heima
gerðum pappír.
Matvörur beint frá býli
Á Stórhóli er auk þess rekin merkileg
sælkeraverslun með vörur beint frá
býli og getur fólk jafnframt fengið að
smakka afurðir hússins. Má þar nefna
geitakjöt, lambakjöt og ærkjöt frá
Stórhóli og nálægum bæjum. Einnig
eru til sölu afurðir frá Holti og heið
um sem framleiðir sveppi og sultur
úr hráefnum úr Hallormsstaðaskógi,
sveppir, sultur og fleira.
Enn fremur er í boði ís frá býlinu
Holtsel og margt fleira.
Húsdýr og leiðsögn
Húsadýraskoðun á staðnum gerir
Stórhól að mjög fjölskylduvænum
áningarstað. Hægt er að panta
heimsókn á vefsíðunni runalist.is eða
með því að hringja í 8232441. Gegn
vægu verði er þá veittur aðgangur
að dýrunum og skemmtileg leiðsögn
um galleríið þar sem meðal annars er
sýnt hvernig íslenska ullin var unnin í
gamla daga.
Sjá nánar á heimasíðunni runalist.
is og Facebooksíðunni Rúnalist Gall
erí Stórhól.