Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 47
SPORT 4715. júní 2018 Betri Svefn JÁ, VIÐ GETUM UNNIÐ ARGENTÍNU! n Spekingarnir spá í spilin n Hvað þarf íslenska landsliðið að gera til að vinna? n Hversu langt fer liðið í keppninni? n Hver verður markahæstur? Eyjólfur Héðinsson Leikmaður Stjörnunnar og fyrrv. landsliðsmaður 1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn Argentínu, hvernig yrði það? Að því gefnu að allir séu heilir, þá myndi ég spila 4-4-1-1. Varnarlínan er nokkuð gefin, en þó læt ég Ara byrja á kostnað Harðar Björgvins. Ari hefur yfirleitt alltaf staðið sig vel í landsleikjum, auk þess sem hann hefur reynslu af því að spila á stórmóti og mér finnst það vega þungt. Þegar landsliðið hefur verið að spila hvað best, hafa Gylfi og Aron verið að spila saman á miðjunni. Sökum meiðsla þessara leikmanna, eru þeir ekki í sínu besta standi og því mundi mér finnast glapræði að stilla eingöngu þeim tveimur saman á miðjunni. Ég myndi því setja Birki Bjarnason á miðjuna með Aroni og hafa Gylfa fyrir framan þá. Jóhann Berg er svo að sjálfsögðu á hægri kantinum og ég set Rúrik á þann vinstri. Þeir sinna báðir varnarskyldunum mjög vel og þá eru þeir öflugir í að bera boltann upp völlinn, þegar við þurfum að létta á pressunni. Jón Daði mun svo hlaupa úr sér lifur og lungu á toppnum og þegar hann er búinn á því, mun Alfreð leysa hann af. Hannes – Birkir – Kári – Ragnar – Ari Jóhann – Aron – Birkir – Rúrik – Gylfi – Jón Daði. 2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo er hvað þarf Ísland að gera til að vinna? Já, Ísland getur að sjálfsögðu unnið Argentínu. Til þess að það gerist er mikilvægt að íslensku leikmennirnir komi sem allra mest í veg fyrir að Lionel Messi fái boltann. Hann skapar allt í þessu argentínska liði. Svo fáum við alltaf okkar tækifæri. Við munum fá innköst, aukaspyrnur og hornspyrnur og þar ætt- um við að hafa ákveðna yfirburði, þegar kemur að hæð og styrk. 3. Hvernig fer leikurinn gegn Argent- ínu? 1-1. Lionel Messi mun annaðhvort skora eða leggja upp mark Argentínu- manna, en Ísland skorar sitt mark eftir fast leikatriði. 4. Hver skorar fyrsta mark Íslands í keppninni? Birkir Bjarnason. 5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald hjá Íslandi? Kári Árnason. 6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn til að snerta boltann á mótinu? Jón Daði Böðvarsson. 7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðlakeppninni og hver verður marka- hæstur? Þrjú mörk. Birkir Bjarnason, Gylfi og Alfreð munu sjá um markaskorun. 8. Hversu langt fer Ísland í keppninni? 16-liða úrslit. Ingólfur Sigurðsson Knattspyrnuþjálfari og fyrrv. atvinnumaður í knattspyrnu 1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn Argentínu, hvernig yrði það? Hannes Þór yrði í marki og fjögurra manna varnarlína yrði skipuð Birki Má, Kára, Ragnari og Herði Björgvini. Jóhann Berg á hægri kanti og Birkir á þeim vinstri. Aron og Emil á miðjunni, Gylfi Þór fyrir framan þá og Björn Bergmann uppi á topp. 2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo er hvað þarf Ísland að gera til að vinna? Ísland hefur auðvitað sýnt að liðið getur unnið stórar þjóðir. Það verður mikil pressa á argentínska liðinu. Ég held að lykilatriði á móti Argentínu sé að verjast í lágpressu, með tvær þéttar línur, vegna þess að þeirra menn og þá sérstaklega Messi, eiga erfiðara með að finna sér svæði á milli varnar og miðju. Megináherslan hjá Íslandi verður eflaust að þétta miðjuna, sem er hjarta liðsins, og beina þeim frekar út á vængina. Við eigum að geta varist fyrirgjöfum á móti þessu liði. Ef við getum staðist áhlaup þeirra og notað boltann skyn- samlega þegar við fáum hann getum við vonandi unnið leikinn. Ef Argentína situr til baka í þeirri von að fá okkur hærra upp á völlinn, eins og Frakkar spiluðu gegn okkur í 8-liða úrslitum EM, þá gæti endað illa. Það síðasta sem maður vill sjá er Messi í skyndisókn á móti Íslandi. 3. Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu? Ég er hræddur um að við töpum leiknum, 2-1. 4. Hver skorar fyrsta mark Íslands í keppninni? Jóhann Berg. Hann kemur okkur yfir snemma leiks. 5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald hjá Íslandi? Birkir Bjarnason. 6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn til að snerta boltann á mótinu? Gylfi Þór. Við munum vinna hlutkestið og Gylfi tekur miðjuna. 7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðlakeppninni og hver verður markahæstur? Ég spái því að við skorum tvö mörk og það verði sitthvor markaskorarinn. Jóhann Berg í fyrsta leik og síðan einhver annar gegn Nígeríu. 8. Hversu langt fer Ísland í keppninni? Við komumst ekki upp úr riðlinum. Mér finnst betra að vera með vaðið fyrir neðan mig þegar kemur að íslenska liðinu og tempra því niður allar væntingar. Það hefur gefist vel hingað til og vonandi heldur það áfram. Áfram Ísland! Hallbera Guðný Gísladóttir Leikmaður Vals og kvennalandsliðsins 1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn Argentínu, hvernig yrði það? Hannes, Birkir Már, Ragnar, Kári, Hörður, Gylfi, Birkir Bjarna, Jói Berg á hægri og Rúrik á vinstri, Jón Daði í holunni og Alfreð upp á topp. 2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo er hvað þarf Ísland að gera til að vinna? Já, tæknilega séð geta þeir unnið en þá þurfa allir íslensku leikmennirnir að eiga sinn allra besta leik bæði varnar- og sóknarlega. Halda markinu hreinu og reyna að pota inn einu marki úr föstu leikatriði eða skyndisókn. 3. Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu? Leikurinn fer 2-0 fyrir Argentínu, þori ekki að vera of bjartsýn en vonast innst inni eftir jafntefli. 4. Hver skorar fyrsta mark Ís- lands í keppninni?Gylfi Sig skorar fyrsta mark Íslands á HM! 5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald hjá Íslandi?Birkir Már fær fyrsta gula spjaldið. 6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn til að snerta boltann á mótinu? Alfreð Finnboga mun eiga fyrstu snertinguna. 7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðlakeppn- inni og hver verður markahæstur? Ísland skorar tvö mörk í riðlakeppninni, Gylfi með eitt og Raggi Sig með eitt. 8. Hversu langt fer Ísland í keppninni? Við endum í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig, sigur á Nígeríu og jafntefli við Króatíu. Því miður nær Króatía í fimm stig og Argentína í sjö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.