Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 55
BLEIKT 5515. júní 2018
sem hún Bryndís Rut, vinkona mín,
er fastagestur. Fyrir bestu kjúklinga-
vængina er Wingstop númer 1, 2
og 3! En það er klárlega uppáhalds-
skyndibitinn í Bandaríkjunum.
Ef ég er að reyna að borða í holl-
ari kantinum þá elska ég Tender
Greens eða „poke bowl“, sem er
klárlega einn af mínum uppá-
haldsréttum, en það er sem sagt
sushi í salatformi. Mæli klárlega
með því!
Síðan er líka „möst“ þegar
þú kemur til Los Angeles að
koma við á „taco truck“ og fá
þér „al pastor tacos“ (svíns-
rass). Mexíkóskur matur er
klárlega vinsælastur hér enda
mikið um mexíkóskan kúltúr
í þessari borg. Korean BBQ er
líka skemmtilegt, hlaðborðs-
stemning og maður má borða
eins mikið og maður vill, og
maður eldar matinn sjálfur á
borðinu sínu!
Ég elska líka að elda heima
og ég er með algjöra dellu fyrir
einni matvöruverslun sem
heitir Trader Joe’s. Sú búð sel-
ur einungis sína eigin vöru-
línu, hágæðavörur, lífrænar,
GMO-lausar.
Ég fer voða lítið „fancy“
út að borða sjálf en ef ég fer
þá mæli ég með Catch LA,
þú munt alltaf sjá einhvern
frægan þar inni. BOA Steak-
house í Beverly Hills er geggjað
steikhús með besta sesarsalatið í
bænum. Katana í Beverly Hills tek-
ur besta sushiið og síðan elska ég
TAO í Hollywood.
Uppáhaldskaffihúsið mitt er
Urth Café, það er mjög rólegur og
„fancy“ kaffistaður. 85 Degrees
Bakery er líka geggjað, það er asískt
bakarí og kaffihús með endalaust
úrval af girnilegum kökum og
brauðum. Það minnir mig svolítið
á íslensk bakarí en það er ekki mik-
ið um bakarí eins og við þekkjum
þau hér úti.“
Næturklúbbarnir eru
sérhæfing Magneu
Magnea vinnur á mörgum nætur-
klúbbum við að fá fólk til að koma
inn á staðina, svokallaður „host“
og á hún því auðvelt með að segja
hvaða klúbbar eru vinsælastir:
„Næturklúbbarnir eru svo örugg-
lega mín aðalsérhæfing – ég er
„host“ á mörgum klúbbum, sem
felst í því að ég fæ fólk til að koma
á klúbbinn og útvega því þá þjón-
ustu sem það vill fyrir kvöldið og
þess háttar, sel svo sem flöskuborð
og tek prósentur af minni sölu, og
þekki margt fólk í þeim bransa. Í Los
Angeles eru allir vikudagar djamm-
dagar, og á flestum skemmtistöð-
unum er aðallega spilað hip-hop.
1OAK er bestur á fimmtudögum
og laugardögum. Á mánudögum
er gaman að fara á Ace of Diamond
sem er klúbbur og strippklúbbur.
Á sunnudögum á sumrin eru dag-
partí mjög vinsæl, til dæmis á The
Penthouse. Aðrir staðir sem vert
er að nefna eru Hyde, Poppy og
Warwick. Ég elska líka að kíkja á
bari, ef maður er í stuði fyrir góða
margarítu mæli ég með Cabo
Cantina sem er mexíkóskur, svo
má ég til með að nefna Taco
Madera sem er vinsæll bar/
veitingastaður í West Hollywood.
Svo er æði að kíkja á þakbarinn á W
Hotel í drykk!“
Uber er klárlega málið þegar hún
keyrir ekki um á lúxusbifreið
Í stórborg eins og Los Angeles eru
margs konar samgöngumátar í
boði og Magnea er búin að prófa þá
flesta og segir Uber vera þann besta.
„Þegar ég var nýflutt til Los Angel-
es þá ferðaðist ég með strætó. Al-
menningssamgöngurnar hérna eru
ekki upp á marga fiska en það hef-
ur breyst aðeins til hins betra, fínt
lestarkerfi til dæmis. Ef ég er ekki á
bíl þá er Uber klárlega málið. Okkur
vantar klárlega Uber á Íslandi.
Í dag felst mín vinna í því að
reka lúxusbílaleigu í Beverly Hills
sem heitir Royal Exotic Car Rental.
Ég vinn alla daga vikunnar, 24/7,
þannig að ég keyri yfirleitt um á
einum af vinnubílunum, en úrvalið
hjá okkur hefur að geyma bíla eins
og Lamborghini, Rolls Royce, Ferr-
ari, Maybach, G Wagons, Bentley
og fleiri sem ég hef til afnota, sem er
náttúrlega bara skemmtilegt,“ segir
Magnea og er líklegt að margir öf-
undi hana af þeim farkostum.
Magnea elskar að taka að sér
hlutverk leiðsögumanns
Það er ljóst að af nægu er að taka
í Los Angeles fyrir ferðamann
í borginni, en hvenær mælir
Magnea með að borgin sé heim-
sótt og hverju mælir hún með til af-
þreyingar? „Besti tíminn til að upp-
lifa borgina er á sumrin. Það getur
orðið svolítið mikið heitt en ótrú-
lega fallegt. Ef ég fæ gesti í heim-
sókn þá er ég vanalega búin að
plana vel fram í tímann það sem
ég vil gera með fólki, en ég elska
að bregða mér í hlut-
verk leiðsögu-
manns og sýna
fólki um.
Ég mæli með
að tekinn sé heill dagur á Venice
Beach og Santa Monica. Þá er hægt
að byrja á að röltu um Venice og
skoða, þar er Muscle Beach, hjóla-
brettapallar, fjöldi búða og margt
götulistafólk. Síðan að leigja hjól/
línuskauta/hlaupahjól/rafmagns-
hjól og hjóla með fram ströndinni
til Santa Monica. Þar er bryggjan
fræga sem birtist í mörgum kvik-
myndum og mjög gaman að ganga
þar um. Rétt hjá er svo verslunar-
gatan Third Street Promenade. Þar
er aragrúi af flottum búðum, margir
túristar, nóg af börum og veitinga-
stöðum og heilmargt að gera fram
eftir kvöldi.
Svo mæli ég með heilum degi í
Hollywood. Það er hægt
að byrja daginn á að fara
í „fjallgöngu“ eða „hike“
upp að Hollywood-
-skiltinu. Fara síðan
á Hollywood og Hig-
hland gatnamótin þar
sem stjörnugangstéttin
er, vaxstyttusafnið og
nóg af búðum og öðru
í kring. Ef þú ert á bíl
(ef ekki geturðu keypt
miða í Starlines-rútu)
geturðu keyrt Mulhol-
land Drive og séð öll
flottu húsin og útsýnið
yfir alla borgina. Þaðan
geturðu farið í Griffith
Observatory-safnið
og skoðað og lesið
og lært. Síðan endað
daginn á Hollywood
og Highland aftur á
staðnum Dave and
Busters í bjór, borgara
og leiktækjum.
Á sunnudögum er gaman að
ganga hjá Melrose og Fairfax. Ef þú
ert mikið fyrir „street fashion“ og
„custom made“ föt þá er það stað-
urinn fyrir þig. Á sunnudögum er
líka risastór markaður með heil-
mikið af „vintage“-fötum. Þaðan er
hægt að rölta í Bape-búðina, Round
Two (sölu/skiptibúð fyrir dýrar vör-
ur) Supreme-búðina, Cool Kicks
(vinsælir og einstakir strigaskór) og
Flight Club. Þaðan mæli ég með að
farið sé á Rodeo Drive sem er vin-
sæla verslunargatan með öllum
dýru merkjabúðunum eins og Lou-
is Vuitton, Gucci, Chanel, Versace,
Saint Laurent og fleira.
Ef þú ert að koma til Los
Angeles til þess að versla mæli
ég með Citadel Outlets. Það er
risa „outlet“ með búðum eins og
Armani, Nike, Adidas, Tommy Hil-
figer, Coach og fleira. Stærsta versl-
unarmiðstöðin í Los Angeles heit-
ir síðan Westfield Topanga Mall í
Calabasas (þar sem Kardashians
og Drake búa). Ég elska mest að
versla á fyrrnefndu Third Street
Promenade ásamt Westfield-versl-
unarmiðstöðvakeðjunni. Svo er
gaman að fara í miðbæinn í San-
tee Alley í „Fashion District“-inu.
Það er stór og langur markaður
með föt frá búðum eins og Fashion
Nova, Pretty Little Things, Júník og
Maníu. Hellingur af sólgleraugum,
töskum og skóm.
Skemmtilegir og áhugaverðir
hlutir til að gera í Los Angeles að
mínu mati eru að fara á línuskauta
í World on Wheels, Pinch Bowling
Alley í keilu á miðvikudögum ef
þú vilt hitta rappara. Ef þig langar
í kúltúrsjokk farðu á „Skid Row“
þar sem heimilislaust fólk hópast
saman og býr í tjaldborgum (EKKI
fara fótgangandi). Þá sérðu skýrt
hvað við höfum það til dæmis gott
á Íslandi, en þetta er ekki fyrir alla
að sjá. Það eru asískar matvörubúð-
ir úti um allt með mjög skrýtnum
og skemmtilegum mat, til dæmis
í Chinatown, Koreatown, Little
Tokyo. Karókístaðirnir eru mjög
skemmtilegir. Ef þú ert á bíl get-
urðu keyrt með fram ströndinni og
upp í Malibu, getur tekið „hike“ að
„The Wisdom Tree,“ prófað Jewish
Shabbat Meal á föstudögum og
kynnst fleiri trúarbrögðum og fjöl-
breyttari menningu þar í kring, þar
sem það er nóg að læra og skoða.“ n
geirsgötu 8 / s. 553 1500
Hamingja í
hverri skeið
Hádegistilboð breytilegt
eftir dögum
Hamborgarinn hjá In-n-Out Burger er
svo sannarlega girnilegur.
Á Catch LA má alltaf ganga
að því vísu að sjá einhvern
frægan.
Útsýni yfir Los Angeles
frá Mulholland Drive.
Hin fræga Santa Monica-bryggja.