Fréttablaðið - 15.12.2018, Qupperneq 8
Alþingi er komið í jólafrí en þingfundum var frestað í gær. Hefur Alþingi
ekki lokið störfum svo snemma fyrir jól síðan 2007. Kemur þingið aftur
saman til funda í nefndum 15. janúar en fyrsti þingfundur næsta árs verður
samkvæmt starfsáætlun þann 21. janúar. Fréttablaðið tók saman yfirlit um
fjögur stór mál sem bíða Alþingis og stjórnmálaumræðunnar á nýju ári.
Stóru málin sem bíða
l Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði losna um áramót-
in og hafa viðræður um endur-
nýjun samninga staðið yfir um
nokkurt skeið.
l Þótt stjórnvöld séu ekki beinn
aðili að samningunum er ljóst að
verkalýðshreyfingin leggur mikla
áherslu á aðkomu stjórnvalda til
þess að liðka fyrir samningum.
l Kröfur verkalýðshreyfingarinnar
til Samtaka atvinnulífsins snúa
meðal annars að umtalsverðri
hækkun lægstu launa, styttingu
vinnuvikunnar og auknum rétt-
indum á vinnumarkaði.
l Starfsgreinasambandið, VR og
Samiðn hafa einnig beint sér-
stökum kröfum til stjórnvalda.
Þær lúta meðal annars að breyt-
ingum á skattkerfinu og átaki í
húsnæðismálum.
l Nýlega var skipaður átakshópur
stjórnvalda og aðila vinnu-
markaðar um aukið framboð á
íbúðum og aðrar aðgerðir til að
bæta stöðu á húsnæðismarkaði.
Einnig er að störfum hópur sem
vinnur að endurskoðun tekju-
skattkerfisins.
Kjaramálin
l Samgönguáætlun var lögð fram í
haust og gerði ráð fyrir að tæpir
192 milljarðar færu til samgöngu-
mála á næstu fimm árum. Þar af
færu tæpir 106 milljarðar í fram-
kvæmdir á vegakerfinu.
l Samkvæmt nýsamþykktum fjár-
lögum verður tæpum 41 milljarði
varið til samgöngumála á næsta
ári.
l Áætlunin olli töluverðum von-
brigðum þar sem ekki væri verið
að verja nægum fjármunum í
samgöngukerfið. Þá voru sveitar-
félög víða um land óánægð með
forgangsröðun verkefna.
l Til stóð að afgreiða áætlunina
fyrir jólahlé þingsins en tillögur
Jóns Gunnarssonar, setts for-
Samgönguáætlun
l Evrópusambandið samþykkti
ýmsar lagabreytingar á sviði
orkumála árið 2009 og mynda
þessar lagagerðir þriðja orku-
pakka sambandsins.
l Umræddar breytingar sneru að
innri markaði ESB fyrir raforku
og jarðgas. Gerður var enn skýr-
ari aðgreiningur milli eignarhalds
flutningskerfis raforku og ann-
arrar orkutengdrar starfsemi.
l Einnig var lögð áhersla á sjálfstæði
innlendra eftirlitsstofnana og sett
á fót samstarfsstofnun eftirlits-
stofnana sem getur tekið lagalega
bindandi ákvarðanir gagnvart
eftirlitsaðilum aðildarríkja.
l Á síðasta ári ákvað sameiginlega
EES-nefndin að taka þriðja orku-
pakkann upp í EES-samninginn.
Noregur og Liechtenstein hafa
þegar samþykkt tilskipunina en
hún tekur ekki gildi fyrr en Ísland
hefur gert það líka.
l Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra hugðist leggja fram
þingsályktunartillögu um inn-
leiðingu þriðja orkupakkans í
febrúar næstkomandi.
l Töluverð gagnrýni hefur komið
fram á þau áform stjórnvalda að
ætla að innleiða þriðja orkupakk-
ann. Hafa gagnrýnendur meðal
annars sagt að með samþykkt til-
skipunarinnar væru Íslendingar
að afsala sér hluta fullveldisins og
yfirráðum yfir innlendum orku-
málum.
l Þeir sem styðja innleiðinguna
benda hins vegar á að Ísland sé
þegar hluti af hinum evrópska
orkumarkaði og að EES-samn-
ingurinn sé í húfi.
l Ríkisstjórnin ákvað í kjölfar gagn-
rýninnar að fresta því fram á vor
að koma með málið inn í þingið.
Tíminn verði notaður til að sér-
fræðingar geti farið betur yfir
málið.
Þriðji orkupakkinn
l Í haust voru lögð fram drög að
nýjum heildarlögum um þung-
unar rof. Byggðu þau meðal ann-
ars á vinnu starfshóps sem skilaði
tillögum í mars 2016.
l Í umræddum drögum var lagt til
að þungunarrof yrði heimilað
fram að lokum 18. viku þung-
unar og einungis eftir þann tíma
ef lífi þungaðrar konu væri stefnt
í hættu eða ef fóstur teldist ekki
lífvænlegt til frambúðar.
l Fagfólk í heilbrigðisgeiranum
gerði talsverðar athugasemdir við
að með þessu væri verið að skerða
rétt kvenna frá því sem nú gildi.
Tekið var tillit til þessara ítrekuðu
athugasemda og gerir frumvarpið
ráð fyrir því að þungunarrof verði
heimilt fram að lokum 22. viku án
takmarkana eins og starfshópur-
inn hafði raunar lagt til.
l Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra mælti fyrir frumvarpinu
á Alþingi í vikunni. Þar komu
fram þau sjónarmið að þar sem
gildandi lög væru komin til ára
sinna væri nauðsynlegt að setja
nýjan lagaramma um málefnið.
l Hins vegar er ákvæðið með heim-
ild til þungunarrofs til loka 22.
viku þungunar umdeilt. Er málið
nú komið til meðferðar hjá vel-
ferðarnefnd þingsins sem hefur
sent út umsagnarbeiðnir.
Þungunarrof
Mér finnst þetta
frumvarp lítilsvirð-
ing við lífið. Það virðist engu
máli skipta hvaða ástæður
liggja að baki núna, fram að
23. viku. Það hefur ekkert
með það að gera lengur hvort
fóstrið sem nú er orðið að
ófullburða barni í móður-
kviði sé heilbrigt eða ekki.
Inga Sæland
á Alþingi 11.
desember
Það mál sem hér er
til umfjöllunar er
þegar kona tekur þá þung-
bæru og erfiðu ákvörðun að
binda enda á þungun vegna
þess að hún hefur tekið þá
ákvörðun með sjálfri sér eða
þeim aðilum sem hún
ákveður að treysta og reiða
sig á, hver svo sem ástæðan
er fyrir þeirri ákvörðun. Ég
spyr því, hver er betur til
þess fallinn að meta sínar
aðstæður en konan sjálf?
Svandís Svavarsdóttir
á Alþingi 11. des-
ember
Það þykir afar
mikilvægt að
ákvarðanir um frekari
launahækkanir þeirra sem
eru í þessum efstu lögum
stjórnkerfisins verði ekki til
þess að valda frekari spennu
á viðkvæmum tímum í
kjarasamningum á bæði
almennum og opinberum
vinnumarkaði.
Bjarni Benedikts-
son á Alþingi
7. desember
Í stuttu máli eru
stjórnvöld lítið að
gera til að létta róðurinn í
kjarasamningaviðræðunum
sem nú standa yfir og ljóst að
auka þarf þrýstinginn
verulega til hagsbóta fyrir
vinnandi fólk. Róttækar
tillögur þurfa að koma út úr
skatta- og húsnæðisnefndum
sem nú eru að störfum,
tillögur sem raunverulega
skipta sköpum fyrir almenn-
ing.
Drífa Snædal í viku-
legum pistli
14. desember
Við hljótum eftir öll
þessi ár sem ráð-
herrann nefndi að vera
komin í aðstöðu til þess að
kveða skýrt upp úr um það
hvernig íslensk stjórnvöld
ætla að nálgast þetta mál,
hvort þau ætli að hleypa
þessu öllu í gegn og halda
áfram að veita upplýsingar
um hvers vegna þurfi að gera
það, eða fara í þá baráttu við
EES-samninginn sem ráð-
herrann nefndi eða einfald-
lega nálgast þetta á skynsam-
legan hátt og innleiða ekki
þennan pakka.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson á
Alþingi 8. nóvem-
ber
Við höfum aldrei
látið á það reyna að
segja einfaldlega nei við að
innleiða gerðir sem hafa
verið teknar upp í sameigin-
legu EES-nefndinni. Það er
auðvitað okkar ákvörðun að
gera það. Þá verða menn
bara að vera tilbúnir að taka
afleiðingunum. Við höfum í
25 ár talið að hagsmunum
okkar sé betur borgið með
EES-samningnum. Ég er enn
þá þeirrar skoðunar og það
er ríkisstjórnin líka.
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir í
Fréttablaðinu
13. nóvember
Við gerum mjög alvarlegan fyrir-
vara við þetta enda um stórfellda
skattahækkun að ræða ef af verður. Fyrir
utan að þarna eru alls konar töfralausnir
boðaðar en enginn kostnaður nefndur.
Runólfur Ólafsson í Fréttablaðinu 12. desember
Nú liggur fyrir tillaga um breytingar
á samgönguáætlun. Hún snýst um
þetta, hún snýst um það að stíga stórstíg skref
til styrkingar byggðum í landinu, eflingar á
þjónustu við landsbyggðina, eflingar á
samgöngum fyrir höfuðborgarsvæðið og
landsmenn alla, aukins umferðaröryggis,
færri slysa, minna tjóns fyrir samfélagið. Er
þá ekki verið að setja verðmiða á mannlegan
harmleik.
Jón Gunnarsson á Alþingi 12. desember
manns umhverfis- og samgöngu-
nefndar, um upptöku veggjalda
ollu miklu uppnámi á Alþingi.
l Hugmyndirnar gengu út á að veg-
gjöld yrðu tekin upp á stofnleið-
um inn og út úr höfuðborginni,
í öllum jarðgöngum landsins og
vegna einstaka framkvæmda.
Markmiðið var að skapa tekjur
upp á 76-77 milljarða á 15 ára
tímabili í því skyni að flýta sam-
gönguframkvæmdum.
l Hörð gagnrýni frá stjórnarand-
stöðunni sem mótmælti bæði
hugmyndum um vegggjöld og
málsmeðferðinni varð til þess að
samkomulag náðist um að fresta
afgreiðslu samgönguáætlunar til
1. febrúar næstkomandi.
1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-1
C
1
0
2
1
C
F
-1
A
D
4
2
1
C
F
-1
9
9
8
2
1
C
F
-1
8
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K