Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 34
Humarpitsa
Þegar ég spyr fólkið mitt hvað það
vilji í matinn þá fæ ég mjög oft,
„viltu gera humarpitsuna þína“.
Svarið auðvelt, JÁ. Pitsan er fín
tilbreyting frá öllum jólamatnum.
Pitsuna geri ég frá grunni, botninn
er leynitrixið en hann þarf að vera
sætur og stökkur. Ég geri aldrei
rauða sósu á pitsuna, pensla hana
með hunangi, sírópi og ólífuolíu.
Botn
500 g hveiti
3 dl volgt vatn
1½ tsk. þurrger
2 tsk. sykur eða hunang
1 tsk. sjávarsalt
3 tsk. ólífuolía
Gerið er leyst upp í volgu vatninu.
Svo er öllu blandað saman í stóra
skál, hnoðað vel. Setjið svo olíu
í botninn á skálinni og svolítið
yfir deigið. Hyljið skálina og látið
hefast í 4-5 klst. Að sjálfsögðu er
hægt að gera það í styttri tíma en
botninn verður léttari og betri
svona. Úr þessu nást 3-4 botnar.
Humar
Humar 1 poki (á um 3-4 pitsur )
⅓ rauður chili
1 hvítlaukur (þessi í körfunum)
Hnefafylli af basilíku
2 dl hvítvín (nota það í sparitil-
fellum)
Síróp
Steikið hvítlauk og chili á pönnu.
Bætið humrinum út í, saltið og
piprið og setjið síróp yfir, um 1
msk. Hellið hvítvíni yfir og sjóðið
humarinn í víninu. Bætið basilíku
við. Takið af pönnunni og geymið
til hliðar.
„Sósan“
Síróp
Hunang
Ólífuolía
Þessu er öllu blandað saman í
jöfnun hlutföllum.
Skiptið deiginu í nokkra parta
og fletjið út. Ég forbaka botnana
alltaf. Setjið þá á bökunarpappír,
bakið á 180°C í um 8 mínútur,
takið út.
Penslið kantana á pitsunni með
sírópsblöndunni, setjið svo ólífu-
olíu á miðja pitsuna.
Því næst er mozzarella-ostur
settur á pitsuna. Takið nú humar-
inn og raðið á pitsuna. Ég set svo
heil basilíkublöð á pitsuna, hún
gefur extra gott bragð. Pitsuna
baka ég svo á háum hita og blæstri
þar til osturinn hefur bráðnað og
að endingu set ég á undirhita.
Pitsuna krydda ég svo með sjávar-
salti og pipar og ríf vænan skammt
af parmesanosti yfir.
Jólanammi fyrir
og eftir mat.
Þetta er einstaklega gott nammi
og svakalega fallegt.
100 g hvítt súkkulaði
100 g suðusúkkulaði
Bismark-brjóstsykur
Myljið brjóstsykurinn og geymið
til hliðar.
Bræðið hvíta súkkulaðið og dreifið
þunnu lagi á smjörpappír, kælið.
Bræðið þvínæst suðusúkkulaðið
og dreifið yfir það hvíta. Sáldrið
brjóstsykrinum yfir og þrýstið
örlíð ofan á hann svo að hann
festist við súkkulaðið. Kælið.
Brjótið súkulaðið svo og berið
fram eða geymið í kæli.
Ég held að innst inni hafi ég alltaf haft áhuga á matargerð. Pabbi er frábær kokkur og hefur alltaf verið mikill sæl-keri. Hann eldar alltaf
„gourmet“ mat en mamma bakaði,“
segir Kristín Björk Þorvaldsdóttir,
flugfreyja hjá Icelandair. Hún býr
með Leifi Welding og á tvo drengi,
Sólon Breka og Óliver Mána, frá-
bæra tengdadóttur, Ásgerði Diljá og
svo er það hundurinn Theodór sem
stelur jafnan athyglinni. „Ég fékk oft
að hjálpa til í eldhúsinu og á ófáar
matarminningar að heiman og úr
æsku og þar spila hefðirnar stóran
sess. Hins vegar eru ekki mörg ár
síðan ég fór virkilega að njóta mín
í eldhúsinu og er það uppáhalds-
staðurinn minn á heimilinu og án
efa hjarta heimilisins.“
Hún segir að ítölsk matargerð
höfði mest til sín og fátt toppi
pitsu sem elduð er af ást og heima-
gert pasta. „Ég er svo lánsöm með
að elska eiginlega allan mat, ég er
matargat. Ég er kannski ekki hrifin
af lirfum frá Suður-Kóreu en flest
finnst mér gott. Það er hins vegar
allt fallegt við ítalska matargerð og
ástina á bak við matinn.“
Kristínu þykir mikilvægt hvernig
maturinn er borinn fram, hvort sem
það er soðin ýsa með kartöflum eða
stórsteik. Einnig fólkið sem maður
deilir matarstundinni með. „Það
er ekkert sem gleður mig meira en
að gefa fólkinu mínu gott að borða,
horfa á það lygna aftur augunum
og segja: „Vá, hvað þetta er gott“. Þá
verð ég meyr og alsæl. Ég hef sjálf
einu sinni grátið yfir mat sem ég
fékk en það var ofureinfalt trufflu-
pasta,“ segir Kristín og hlær. „Ég, í
orðsins fyllstu merkingu, grenjaði
tárunum ofan í diskinn minn.“
Tímanum í eldhúsinu líkir Kristín
við hugleiðslu. „Ég set alltaf góða
tónlist á og oftar en ekki eitthvert
gott „kántrístöff“ og ekki skemmir
að fá sér gott vínglas á góðum degi.
En samverustundirnar við matar-
borðið eru svo dásamlegar, þar eru
símar stranglega bannaðir, samtöl
og samveran dásamleg og það er
það mikilvægasta við matargerð.
Hins vegar þarf ég að æfa mig í því
að deila verkum í eldhúsinu, ég á
það til að vera eigingjörn á verkin
þar,“ segir hún og hlær. Instagram-
síðan hennar Kristínar er kristin-
bjork76. gunnthorunn@frettabladid.is
Hefur grátið yfir
bragðgóðum mat
Litlar Mascarpone-kökur
Þessar eru ljúffengar og fallegar
Botn
175 g Lu kex
1 msk. púðursykur
75 g brætt smjör
Krem
500 g þeyttur rjómi
1 msk. vanillusykur
250 Mascarpone
4 msk. appelsínusafi
100 g sykur
Myljið kexið í blandara. Bræðið
smjörið og látið kólna. Blandið
saman kexi, púðursykri og smjöri.
Setjið smjörpappír í lítil form og
setjið mulninginn í botninn.
Þeytið rjóma og vanillusykur
saman. Blandið saman Mascarp-
one, appelsínusafa og sykri og
blandið þessu svo varlega saman
við rjómann og vanillusykurinn.
Setjið ostablönduna ofan á kex-
botninn og kælið í a.m.k. 4 klst.
Mér finnst best að frysta þetta yfir
nótt.
Takið kökurnar úr formunum og
skreytið með t.d. bláberjum. Það
er líka svakalega gott að setja kara-
mellusósu ofan á toppinn.
Kristín er frábær kokkur og deilir ýmsu úr eldhúsinu með fylgjendum sínum á
instagram undir nafninu kristinbjork76, fyrir áhugasama. FréttaBLaðið/EyþÓr
Kristín Björk Þor-
valdsdóttir, flug-
freyja hjá Icelandair,
er sögð meistara-
kokkur heima við.
Hún er mikill sælkeri
og elskar allan góðan
mat, nema geitaost.
Ég hef sjálf einu sinni
grátið yfir mat sem Ég
fÉkk en það var ofur
einfalt trufflupasta.
Roma í bíó
Kvikmyndin Roma,
eftir leikstjórann
Alfonso Cuarón,
hefur fengið ein-
róma lof gagn-
rýnenda og þykir
með allra bestu
myndum ársins.
Hún er komin á
Netflix en eindregið er mælt með því að fólk sjái hana í
kvikmyndahúsi. Það er hægt í Bíói Paradís til
22. desember.
Lauksúpa
Þetta er
mánuðurinn
þegar svo að
segja allir borða
yfir sig. Þeir
sem vilja aðeins
draga úr átinu
ættu að setjast
inn á Snaps og
fá sér lauksúpu.
Hún er algjör
dásemd!
Slaka á!
Að búa við alvar-
lega streitu getur
haft afdrifarík
áhrif á heilsuna
eins og kom fram
í viðamikilli úttekt
í Tilveru Frétta-
blaðsins í vikunni.
Gerið færra og
leitið allra leiða til
að hafa það nota-
legt í desember.
Dugnaður er
ofmetinn
Í því sambandi
þá er dugnaður
ofmetinn. Fólki
hættir til að
vera stolt af
eigin dugnaði
eða barna
sinna og hrósa í
hástert fyrir.
Hrósið frekar
fyrir vandvirkni.
Hefnd grasflatarinnar
Hefnd gras-
flatarinnar eftir
Richard Braut-
igan er bók með
frumlegum,
harmrænum og
stundum fjar-
stæðukenndum
örsögum sem
hljóta að gleðja
bókmennta-
unnendur.
1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-2
1
0
0
2
1
C
F
-1
F
C
4
2
1
C
F
-1
E
8
8
2
1
C
F
-1
D
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K