Fréttablaðið - 15.12.2018, Qupperneq 58
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.000 / 2.000
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju fimmtudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju föstudag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík laugardag 22. des. kl 21.00
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2018
Eftir rúmlega sex ára dvöl í New York og London flutti fatahönnuðurinn Signý Þór-
hallsdóttir heim til Íslands fyrr á
þessu ári. Hún hefur nú stofnað
vörumerkið Morra en með því er
ætlun hennar að hanna vandaða
fylgihluti og kvenfatnað með vís-
anir í alþjóðlega mynd- og nytjalist
í bland við staðbundin einkenni
eins og íslenska náttúru og hand-
verkshefð. „Þessa stundina er ég
að klára silkislæður með blóma-
mynstrum sem unnin eru upp
úr jurtum í íslenskri náttúru. Ég
tíndi og stúderaði jurtir, pressaði
þær og vann upp úr þeim skissur
og blekteikningar sem skeytt var
saman í blómasveiga. Mig langaði
að búa til myndmál í prenti sem
sækir innblástur í nærumhverfið
og hefðina. Ég fékk nýlega styrk
úr Hönnunarsjóði til að koma
slæðunum mínum á framfæri svo
það, ásamt því að þróa Morra enn
frekar, er helst á döfinni hjá mér
núna. Meðfram því er ég líka að
kenna í Listaháskólanum og sinna
öðrum verkefnum.“
Spennandi verkefni
Signý útskrifaðist sem fatahönn-
uður frá Listaháskólanum árið
2011 og flutti út stuttu seinna til að
fá reynslu í faginu. Fyrst var förinni
heitið til New York þar sem hún
var í starfsnámi í þrjá mánuði og
næst flutti hún til London. „Ég fór
upprunalega til London í starfs-
nám á Erasmus-styrk. Upphaflega
ætlaði ég að staldra stutt við en
ílengdist svo, eins og gengur. Fyrst
starfaði ég hjá Zöndru Rhodes
og fór næst til Eley Kishimoto en
bæði merkin vinna mikið með
prent. Þar óx áhugi minn á prenti
fyrir fatnað og ég hellti mér út í
það. Ég hóf til dæmis að selja mín
eigin munstur í hjáverkum og fékk
svo vinnu hjá prentstúdíói sem
Spennandi að vera á Íslandi
Eftir sex ára dvöl í New York og London sneri Signý Þórhallsdóttir fatahönnuður heim til Íslands.
Hún hannar vandaða fylgihluti og kvenfatnað undir vörumerkinu Morra.
Slæðurnar eru úr silki,
myndskreyttar með
blómsveigum.
Fyrsta lína Signýjar samanstendur af
þremur klútum með prentum sem
unnin eru úr blekteikningum hennar
af plöntum úr íslensku sumri.
MYNDIR/VALDÍS THOR
„Þessa stundina er ég að klára silkislæður með blómamynstrum sem unnin eru upp úr jurtum í íslenskri náttúru,“
segir Signý Þórhallsdóttir fatahönnuður sem setti Morra á fót fyrr á þessu ári. MYND/EYÞÓR
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
heitir Owens and Kim. Þar
vann ég við að rannsaka
„trend“ og útbúa prent
sem seld voru til markaðs-
drifinna fatakeðja.“
Síðar hóf hún störf
hjá hönnuðinum
heimsþekkta Vivienne
Westwood og vann
þar í þrjú ár. „Starf mitt
þar gekk út á að hanna
kvenföt og prent fyrir
Japansmarkað. Westwood
er mjög vinsælt merki í Japan
og ég og samstarfskona unnum
að tveimur fatalínum árlega sem
voru einungis seldar í verslunum
þar í landi. Það var mjög líflegur
og skemmtilegur tími en auðvitað
krefjandi líka.“
Miklar hræringar
Þótt hún hafi ekki starfað lengi
hér á landi segir hún kosti og galla
fylgja því að starfa bæði hér á landi
og í erlendum stórborgum á borð
við London og New York. „Mér
hefur fundist mjög lærdómsríkt
að vinna í London sem er algjör
suðupottur þegar kemur að tísku.
Sagan og menningin er svo rík og
þar er mikil gróska núna. Í London
eru auðvitað margir áhrifamiklir
hönnuðir sem hafa áhrif á tískuna
á heimsvísu og svo eru líka mjög
stór og öflug markaðsdrifin
„high street“ fyrirtæki þannig að
breiddin í greininni þar er mikil og
margt hægt að læra af því.“
Tískuiðnaðurinn í Bretlandi
spilar stóran þátt í
breska hagkerfinu
og veltir gífurlegum
fjárhæðum á meðan
tískugeirinn á Íslandi
er enn þá að mótast og
framleiðsla lítil, segir Signý. „Aftur
á móti er það áhugavert við Ísland
að hér er ekki búið að fullmóta leik-
reglurnar og því ákveðið rými til að
skapa eitthvað nýtt frá grunni. Það
eru hræringar í tískuheiminum úti
og fyrirtæki eru smátt og smátt að
breyta um áherslur. Mörg fyrirtæki
eru til dæmis að reyna að verða
umhverfisvænni, nota fjölbreyttari
fyrirsætur og taka sig ekki of hátíð-
lega, en iðnaðurinn er svo stór og
þungur að hann virðist í heildina
eiga erfitt með að laga sig að nýjum
tímum. Að því leyti er spennandi
að vera á Íslandi þar sem hlutirnir
eru ekki eins niðurnjörvaðir. Við
höfum öll tækifæri til að finna upp
á nýjum hugmyndum sem falla
betur að framtíðinni, hvað bæði
framleiðslu og hönnunina sjálfa
varðar.“
Hægt er að kynna sér vörur Morra
á Instagram (morra_reykjavik) og
www.morra.is.
Merkið mun
leggja áherslu
á vandaða
fylgihluti og
kvenfatnað
sem sækir
meðal annars
innblástur
í staðbundin
einkenni eins
og íslenska
náttúru og
handverks-
hefð.
Slæðurnar koma
í mismunandi lit,
stærð og prenti.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-4
D
7
0
2
1
C
F
-4
C
3
4
2
1
C
F
-4
A
F
8
2
1
C
F
-4
9
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K