Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 8
Ykkar skál á nýju ári !
FLUGSAMGÖNGUR „Það er ekki
þannig að skemmdirnar séu það
miklar að vélin verði frá í lengri
tíma,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir,
upplýsingafulltrúi Icelandair,
aðspurð um ástandið á nýrri þotu
félagsins sem skemmdist illa að
kvöldi jóladags.
Líkt og Fréttablaðið fjallaði um
fyrir áramót stóð vélin, sem er af
tegundinni Boeing 737 Max 8,
við landgang á Keflavíkurflugvelli
25. desember síðastliðinn en hvass-
viðri og hálka varð þess valdandi
að vélin sveiflaðist til og skall af
miklum þunga á landganginum.
Þotan, sem ber einkennisstafina
TF-ICY og nafnið Látrabjarg, var
tengd landganginum þegar hún
snerist til og hurðin því galopin
þegar vélin fór af stað í hvassviðrinu
og vængur hennar skall á rananum.
Vélin hafði komið til lands á
aðfangadag klukkan hálf fjögur
en engar flugferðir voru á jóladag.
Yfirmaður flugrekstrarsviðs Ice-
landair sagði atvikið hafa komið
á óvart þar sem ekki hafði verið
spáð miklum vindi þetta kvöld og
því hafi ekki verið gengið betur
frá þotunni. Eftir óhappið var hún
dregin inn í flugskýli og hefur verið
þar síðan.
Ásdís Ýr segir fulltrúa Boeing
hér á landi hafa skoðað vélina eftir
óhappið en félagið hafi ákveðið að
nýta tækifærið vegna viðgerðanna
og gera breytingar á vélinni.
„Viðgerðin er nokkuð flókin en
einangruð við ákveðið svæði. Við
höfum hins vegar ákveðið að nýta
tímann til að gera aðrar breytingar
á vélinni svo tími úr rekstri ræðst
ekki lengur af tímanum sem mun
taka að gera við skemmdina,“ segir
í svari Ásdísar við fyrirspurn Frétta-
blaðsins.
Aðspurð hvort hvort þetta hafi
valdið tjóni að missa út nýja vél
með þessum hætti segir Ásdís:
„Það er ákveðið tjón að njóta
ekki aðgangs að nýrri vél vegna
þess að þá þarf að nota aðrar vélar í
staðinn. Þetta hefur hins vegar ekki
valdið neinum truflunum á áætlun.
Málið er í skoðun hjá trygginga-
félögum.“ mikael@frettabladid.is
Tjón að missa út nýju þotuna
Viðgerðin er nokk-
uð flókin en ein-
angruð við ákveðið svæði.
Við höfum hins vegar
ákveðið að nýta
tímann til að
gera aðrar
breytingar á
vélinni.
Ásdís Ýr Pétursdóttir,
upplýsingafulltrúi Icelandair
Ein af nýjustu vélum Icelandair skemmdist í furðulegu óhappi að kvöldi jóladags. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Eins og sjá má urðu töluverðar skemmdir á vængnum við óhappið.
Icelandair hyggst nýta
tækifærið og gera breyt-
ingar á nýrri Boeing 737
Max 8 vél sem skemmd-
ist þegar hún fauk á
Leifsstöð á jóladag. Vélin
er ekki ónýt en viðgerð-
in er flókin. Upplýsinga-
fulltrúi félagsins segir
atvikið ekki hafa valdið
truflunum á áætlun.
BANDARÍKIN Fréttaskýrendur bjugg-
ust við því að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti myndi lýsa því yfir í
sjónvarpsávarpi að neyðarástand
við mexíkósku landamærin kall-
aði á það að ráðist yrði í byggingu
landamæraveggjarins sem hann
hefur lengi barist fyrir. Ávarpið fór
fram kl. 2 í nótt að íslenskum tíma.
Mike Pence varaforseti sagði í
samtali við NBC að Trump myndi
skýra fyrir bandarísku þjóðinni
að um væri að ræða neyðarástand
bæði af mannúðarástæðum og
öryggisástæðum. Til stendur að
Trump heimsæki landamærin á
fimmtudag.
Sú ákvörðun bandarískra sjón-
varpsstöðva að sýna beint frá
ávarpi forsetans hefur verið gagn-
rýnd. Andstæðingar Trumps telja að
miðað við málflutning hans hingað
til verði ávarpið fullt af röngum eða
misvísandi upplýsingum.
Nancy Pelosi og Chuck Schumer,
leiðtogar Demókrata, hafa farið
fram á að fá að bregðast við ávarp-
inu. Stóð til að sýna viðbrögð þeirra
í beinni útsendingu hjá öllum helstu
sjónvarpsstöðvunum.
Trump hefur farið fram á 5 millj-
arða dollara fjárveitingu vegna
byggingar veggjarins en þá fjármuni
er ekki að finna í þeim fjárlögum
sem nýlega voru samþykkt af full-
trúadeild þingsins.
Af þeim sökum hefur Trump neit-
að að staðfesta lögin og fjölmargar
alríkisstofnanir hafa verið lokaðar
síðan fyrir jól. – sar
Trump segir neyðarástand
kalla á landamæravegginn
FERÐAÞJÓNUSTA Fjaðrár gljúfri verð-
ur lokað frá og með deginum í dag.
„Veður far undan farnar vikur,
hlýindi og mikil rigningar tíð, hefur
orðið þess valdandi að göngu stígur
með fram gljúfrinu liggur undir
skemmdum og er ill fær vegna aur-
bleytu og leðju,“ segir um lokunina
á vef Umhverfisstofnunar. „Gróður
er í dvala á þessum árs tíma og
svæðið sér stak lega við kvæmt fyrir
á troðningi. Það skemmist hratt með
á gangi utan göngu stígs auk þess
sem nýir villu stígar verða til.“
Um hverfis stofnun biður ferða-
þjónustu aðila að upp lýsa við-
skipta vini um lokunina. Bíla stæði
sé einnig lokað. „Stefnt er að því að
endur skoða lokunina eigi síðar en
innan tveggja vikna eða ef á stand
breytist fyrir þann tíma.“ – gar
Fjaðrárgljúfur í
svaði og lokað
VIÐSKIPTI Ekkert fékkst upp í 137
milljóna króna kröfur í þrotabú
BOS ehf., rekstrarfélags Argentínu
steikhúss. Félagið var í eigu Björns
Inga Hrafnssonar. Hann eignaðist
Argentínu steikhús í byrjun október
2017, eins og Fréttablaðið greindi
fyrst frá á þeim tíma, en aðeins
sjö mánuðum síðar, 2. maí 2018,
hafði Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðað félagið gjaldþrota eftir
stormasamt tímabil
undir stjórn Björns
Inga.
Samkvæmt til-
kynningu um
skiptalok í Lög-
birtingablaðinu
námu lýstar kröf-
ur 137.056.368
krónum. – smj
Ekkert fékkst
upp í kröfur
Björn Ingi
Hrafnsson.
Donald Trump stendur í ströngu vegna landamæraveggjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VERSLUN Fiskleysi hefur víða gert vart
við sig á höfuðborgarsvæðinu á nýju
ári. Bæði er þar um að kenna neyslu-
mynstri Íslendinga en einnig tíðarfari.
„Þetta gerist eftir hver einustu ára-
mót,“ segir heildsalinn Sigurður Örn
Arnarson, eigandi Sæbjargar – Sjó-
fisks. „Fólk veður úr svínakjötinu í
fiskinn. Við höfum ekki undan.“
Sæbjörg – Sjófiskur sér verslunum
Krónunnar fyrir fiski, ásamt tugum
veitingastaða, skóla og nokkrum fisk-
búðum. Sigurður segir fiskverkendur
ekki hafa undan, þó unnið hafi verið
alla liðna helgi. Nýja árið hafi auk
þess byrjað með brælu, sem staðið
hafi yfir fram yfir helgi. Fyrir vikið hafi
minni bátarnir ekki komist út.
Sigurður segir sjómenn almennt í
landi yfir áramótin. Flestir stærri bát-
arnir fari út þriðja, fjórða eða fimmta
janúar. Það taki fáeina daga að veiða,
koma með afla í land og verka hann.
Íslendingar eru sólgnir í kjötmeti
yfir hátíðarnar samkvæmt skoðana-
könnunum. Eftir allt kjöt átið verður
eitthvað léttara fyrir valinu, gjarnan
fiskur. „Þetta er okkar jólavertíð. Þetta
gerist í kring um páska, jól og verslun-
armannahelgar,“ segir Sigurður. – bg
Fiskskortur er
nú í búðunum
Þetta gerist eftir
hver einustu ára-
mót.
Sigurður Örn Arnarson, eigandi Sæ-
bjargar – Sjófisks
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-8
1
A
8
2
1
F
7
-8
0
6
C
2
1
F
7
-7
F
3
0
2
1
F
7
-7
D
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K