Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 48
Þeir Tryggvi og Sveinbjörn hafa áður unnið saman, einkum á sviði barnamenningar. Lagið Leiðin er ekki sérstaklega tileinkað börnum þótt þau hafi frumflutt það. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Upp á síðkastið hefur nýtt ættjarðarljóð heyrst sungið við nýtt lag á mörgum heimilum í grennd við Laugardalinn. Ástæðan er sú að börnin í Laugar- nesskóla hafa lært það og æft. Þau fluttu það líka opinberlega á full- veldishátíð skólans í nóvember. Ljóðið nefnist Leiðin. Það er eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson, skáld og prófessor, og lagið samdi bróðir hans, Tryggvi M. Baldvinsson, tón- skáld og forseti tónlistardeildar Listaháskóla Íslands. Sveinbjörn hefur síðustu tíu ár verið prófessor í handritaskrifum við Kvikmyndaskóla Noregs í Lille- hammer. Hann kom heim til að halda jólin og áramótin  á Íslandi með fjölskyldu og vinum og segist reyndar oft fljúga á milli. „Ég var líka heima þegar Leiðin okkar Tryggva var frumflutt. Það var skemmtilegt, alltaf sérstakt að vera viðstaddur frumflutning á einhverju sem maður hefur gert.“ Spark í rassinn Tryggvi segir það fullveldisafmæl- inu að þakka að þetta bræðralag þeirra Sveinbjarnar hafi orðið til. Þeir hafi ákveðið að taka þátt í sam- keppni um nýtt lag og texta sem hæfði þeim tímamótum. „Okkar lag komst ekki áfram í keppninni en er samt komið á flug vegna þess að tónmenntakennarinn í Laugarnes- skóla frétti af því og langaði að leyfa skólabörnunum að syngja það. Þau gerðu það ótrúlega vel. Sveinbjörn segir samkeppni af þessu tagi virkilega af hinu góða því þá fari sköpun í gang og til verði ný lög og ljóð. „Stundum þarf tilefni til að maður setjist niður og semji eitt- hvað og svona samkeppni er gott spark í rassinn að því leyti.“ En hvor bræðranna byrjaði að móta sinn þátt? „Sveinbjörn orti ljóðið fyrst og kom með textann til mín,“ svarar Tryggvi sem segist hafa haft svo- lítið fyrir því að finna rétta tóninn og láta lagið falla vel að textanum. „Ljóðið hans Sveinbjarnar er sonn- etta, línurnar frekar langar og það gerði lagasmíðina örlítið erfiðari.“  Hann segir misjafnt hvernig textar kalli fram laglínur. „Sum ljóð eru þannig að lögin semja sig hálf- partinn sjálf. Þetta var ekki þann- ig,“ segir hann en tekur fram, til að fyrirbyggja misskilning, að verk- efnið hafi bæði verið ögrandi og skemmtilegt.“ Skyldu þeir bræður oft hafa unnið svona saman áður? Leiðin er nýtt bræðralag Tryggva og Sveinbjarnar Bræðurnir Sveinbjörn I. Baldvinsson skáld og Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld starfa hvor á sínum vett- vangi á menningarsviðinu. Stundum leggja þeir saman krafta sína í listaverk. Leiðin er dæmi um slíkt. Leiðin Þó að frysti og fenni á sumardegi, frostið kalda þrastarsönginn trufli og fjöll í hnipri undir hvítum kufli, höldum við áfram eftir þessum vegi. Víst er landið löngum hart og kalið, lokuð sund og ófær einatt heiðin. Samt er þekkt að þetta er eina leiðin þjóðar sem eylandið svala hefur alið. Seint verður auðvelt að elska þessi kaun, auðnirnar hrjúfu, rofabörð og sanda, vindbarða kletta út við hafið gramt. En indælum mosa úfið skýlir hraun, öræfin gefa næði til að anda. Auðvelt eða ekki, elskum við það samt, auðvelt eða ekki, þá elskum við það samt. Sveinbjörn I. Baldvinsson „Við höfum unnið saman að nokkrum verkefnum, einkum á sviði barnamenningar. Þar ber sennilega hæst Þúsaldarljóðin, sem 2.000 fimm ára börn frum- fluttu á Arnarhóli árið 2000,“ svarar Tryggvi. „Við unnum einnig saman að tónverkinu Lyklinum sem var samið fyrir Kammersveit Norður- lands og segir frá Benna og Smala og baráttu þeirra við nautið Geir- mund. Skólasöngur Álftanesskóla er einnig eitt af okkar samstarfs- verkefnum og ég hef svo líka samið nokkur sönglög við ljóð Svein- bjarnar.“ „Já, í þessum ánægjulegu sam- starfsverkefnum hefur Tryggvi alltaf stungið upp á því að ég setji saman textann fyrst. Held kannski að lagið Dægur sé undantekningin, það lag er á sólóplötu Jóhönnu Þórhalls- dóttur, Flauelsmjúkar hendur,“ segir Sveinbjörn. Hafa dálæti á Val Bræðurnir eru Reykvíkingar en með sterk sálartengsl við Suður- landsundirlendið og Ólafsfjörð, að sögn Tryggva. „Faðir okkar, Baldvin Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðs- stjóri, er borinn og barnfæddur Ólafsfirðingur. Við bjuggum í Hlíð- unum þar til að ég var þriggja ára og þá fluttum við í Laugarásinn þannig að Sveinbjörn, sem er eldri, á sterk- ari tengingar við Hlíðarnar en ég.“ „Hlíðarnar voru minn bernsku- heimur,“ segir Sveinbjörn og kveðst hafa nýtt sér hann þegar hann samdi ljóðverkið Stjörnur í skónum á sínum tíma. „Ég var orðinn ellefu ára þegar við fluttum úr Hlíðunum en nú er ég reyndar fluttur þangað aftur, eftir mörg góð ár á Álftanesi.“ „Eitt hefur þó fylgt okkur báðum úr Hlíðunum og það er dálæti okkar á Knattspyrnufélaginu Val, sem við styðjum enn með ráðum og dáð,“ segir Tryggvi. „Við erum báðir fyrr- verandi nemendur í Laugarnesskóla og því var það einstaklega skemmti- legt að koma þangað aftur og heyra börnin syngja lagið okkar í þessum fallega og góða skóla.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 F 7 -8 1 A 8 2 1 F 7 -8 0 6 C 2 1 F 7 -7 F 3 0 2 1 F 7 -7 D F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.