Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 28
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is VIÐBURÐADAGATAL JANÚAR JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER FEBRÚAR MARS 2. FEB. Heimur úr plasti Fræðsla um plast og örplast í hafi Kl. 14:00 20. FEB. A Plastic Ocean Sýning í Bíó Paradís Kl. 20:00 10. JAN. Trúnó í Stúdentakjallaranum Afhverju varð ég vegan? Kl. 20:00 17. JAN. Cowspiracy Sýning í Bíó Paradís og umræður eftir mynd Kl. 20:00 4. MARS Anthropocene: The Human Epoch Sýning í Bíó Paradís í samstarfi við Stockfish Film Festival Kl. 20:00 7. MARS Neyslusamfélagið og ný viðmið Social Progress Imperative Kl. 17:00 24. ÁGÚST Perlur Reykjaness Gönguferð með Ellerti Grétarssyni um Reykjanes Lifandi viðburðadagatal með ítarlegum upplýsingum er að finna á vef Landverndar og á Facebook síðu samtakannna: landvernd.is facebook.com/landvernd 11. SEPT. This Changes Everything Sýning í Bíó Paradís Kl. 20:00 Vísindavaka 2019: Umhverfismál Rannís í samstarfi við Landvernd Dagsetning tilkynnt síðar VÍSINDIN OG UMHVERFISMÁLSUMARFRÍ Gangið, njótið og upplifið í náttúrunni Við skipulag afmælisárs Landverndar var lögð áhersla á að skapa sem breiðast samstarf við ólíka hópa og höfða til sem flestra með fjöl- breyttri nálgun á umhverfismál,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjóns- dóttir, sérfræðingur hjá Landvernd og verkefnisstjóri afmælisárs Landverndar. „Landvernd var stofnuð sem landgræðslusamtök árið 1969 og til að hvetja almenning til landgræðslu og hugsa betur um náttúruna, til dæmis með því að henda ekki rusli á víðavangi, en í dag eru umhverfismálin orðin miklu fjölbreyttari,“ útskýrir Sig- ríður Bylgja., „Áskoranirnar eru gífurlegar og varða hreinlega lífsmöguleika næstu kynslóða á þessari jörð. Því er okkur mikilvægt að höfða til sem flestra og fá fólk í lið með Landvernd til að efla umhverfis- fræðslu og umræðu um umhverfis- mál, til að geta stuðlað að breyt- ingum og þrýst á aðila, eins og stjórnvöld og fyrirtæki, og til að grípa til aðgerða sem skipta máli,“ segir Sigríður Bylgja. Eitthvað fyrir alla Samstarfsaðilar Landverndar á afmælisárinu eru af fjölbreyttum toga svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. „Í janúar tökum við höndum saman með Veganúar og í febrúar með Birni Steinari Blumen- stein hönnuði. Í apríl vinnum við með ung- mennahúsunum og Rannís í september. Samstarfsaðilar eru allt frá vísindasamfélaginu til skóla og listamanna, til Siðfræði- stofnunar Háskóla Íslands og jógum til hönnuða,“ upplýsir Sig- ríður Bylgja. Yfir sumarmánuðina leggur Landvernd áherslu á viðburði úti í náttúrunni. „Við tökum okkur smá frí í júlí til að hlaða batteríin og hvetjum alla til að gera slíkt hið sama. Það er nefnilega vísindalega sannað að útivera í óspilltri náttúru hefur jákvæð áhrif á heilsuna,“ segir Sig- ríður Bylgja brosandi. Stærsti viðburðurinn verður svo á 50 ára afmælisdegi samtakanna, þann 25. október 2019, og verður dagskrá afmælisdagsins auglýst síðar. „Öll dagskrá afmælisársins miðar að því að miðla og fræða og bjóða fólki í samtal um umhverfis- mál. Aðalmarkmiðið er auðvitað að vekja athygli á samtökunum og því sem við vinnum að, en verkefni Landverndar eru ótrúlega fjölbreytt og skemmtileg,“ segir Sigríður Bylgja. Allt er umhverfismál Að sögn Sigríðar Bylgju má tengja nær allt í tilveru mannsins við umhverfismál, hvort sem það eru matarvenjur, neysla, samgöngu- máti, stjórnmál eða annað. „Við megum ekki gleyma að við deilum þessari jörð með 7,7 milljörðum manneskja, auk allra þeirra sem á eftir okkur munu koma; börnin okkar, barnabörn og barnabarnabörn. Því væri jörðinni og umhverfismálum afskaplega hollt ef allir, bæði einstaklingar, fyrirtæki og stjórnvöld, myndu hugsa eins og indíánarnir gerðu, sjö kynslóðir fram í tímann, en ekki í ársfjórðungum eða árs- uppgjöri. Við eigum nefnilega bara þessa einu jörð og margar af hennar auðlindum eru takmark- aðar. Okkar er valdið og ábyrgðin til þess að nýta þær skynsamlega þannig að þau sem á eftir okkur koma geti notið hennar líka.“ Neita í stað þess að neyta Sigríður Bylgja stingur upp á eftir- farandi: „Við ættum að hætta að vera svona miklir neytendur og verða þess í stað neitendur. Neita að taka þátt í allri neyslunni sem okkur er talin trú um að við þurfum til að verða hamingjusöm. Neitum bara að taka þátt í henni og förum þess í stað að njóta! Búa til fallegar minningar, njóta samverustunda og þess stutta tíma sem við eigum hér á þessari fallegu jörð.“ Njótum í stað þess að neyta Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök, fagnar hálfrar aldar afmæli sínu í ár. Allir eru hjartanlega velkomnir á viðburði afmælisársins og hvattir til að njóta í stað þess að neyta. Hvannadalshnúkur í Öræfasveit lokkar og laðar vegna ósnortinnar náttúru. MYND/GUNNÞÓRA GUNNARSDÓTTIR 4 LANDVERND 50 ÁRA 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 0 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 F 7 -5 F 1 8 2 1 F 7 -5 D D C 2 1 F 7 -5 C A 0 2 1 F 7 -5 B 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.