Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 28
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
VIÐBURÐADAGATAL
JANÚAR
JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER
FEBRÚAR MARS
2. FEB.
Heimur úr plasti
Fræðsla um plast
og örplast í hafi
Kl. 14:00
20. FEB.
A Plastic Ocean
Sýning í Bíó Paradís
Kl. 20:00
10. JAN.
Trúnó í Stúdentakjallaranum
Afhverju varð ég vegan?
Kl. 20:00
17. JAN.
Cowspiracy
Sýning í Bíó Paradís
og umræður eftir mynd
Kl. 20:00
4. MARS
Anthropocene:
The Human Epoch
Sýning í Bíó Paradís í samstarfi
við Stockfish Film Festival
Kl. 20:00
7. MARS
Neyslusamfélagið og ný viðmið
Social Progress Imperative
Kl. 17:00
24. ÁGÚST
Perlur Reykjaness
Gönguferð með Ellerti
Grétarssyni um Reykjanes
Lifandi viðburðadagatal með ítarlegum
upplýsingum er að finna á vef Landverndar
og á Facebook síðu samtakannna:
landvernd.is
facebook.com/landvernd
11. SEPT.
This Changes Everything
Sýning í Bíó Paradís
Kl. 20:00
Vísindavaka 2019: Umhverfismál
Rannís í samstarfi við Landvernd
Dagsetning tilkynnt síðar
VÍSINDIN OG UMHVERFISMÁLSUMARFRÍ
Gangið, njótið og upplifið
í náttúrunni
Við skipulag afmælisárs Landverndar var lögð áhersla á að skapa sem
breiðast samstarf við ólíka hópa
og höfða til sem flestra með fjöl-
breyttri nálgun á umhverfismál,“
segir Sigríður Bylgja Sigurjóns-
dóttir, sérfræðingur hjá Landvernd
og verkefnisstjóri afmælisárs
Landverndar.
„Landvernd var stofnuð sem
landgræðslusamtök árið 1969
og til að hvetja almenning til
landgræðslu og hugsa betur um
náttúruna, til dæmis með því að
henda ekki rusli á víðavangi, en
í dag eru umhverfismálin orðin
miklu fjölbreyttari,“ útskýrir Sig-
ríður Bylgja.,
„Áskoranirnar eru gífurlegar
og varða hreinlega lífsmöguleika
næstu kynslóða á þessari jörð.
Því er okkur mikilvægt að höfða
til sem flestra og fá fólk í lið með
Landvernd til að efla umhverfis-
fræðslu og umræðu um umhverfis-
mál, til að geta stuðlað að breyt-
ingum og þrýst á aðila, eins og
stjórnvöld og fyrirtæki, og til að
grípa til aðgerða sem skipta máli,“
segir Sigríður Bylgja.
Eitthvað fyrir alla
Samstarfsaðilar Landverndar á
afmælisárinu eru af fjölbreyttum
toga svo allir ættu að
finna eitthvað við
sitt hæfi.
„Í janúar tökum
við höndum saman
með Veganúar og í
febrúar með Birni
Steinari Blumen-
stein hönnuði. Í apríl
vinnum við með ung-
mennahúsunum og Rannís
í september. Samstarfsaðilar eru
allt frá vísindasamfélaginu til
skóla og listamanna, til Siðfræði-
stofnunar Háskóla Íslands og
jógum til hönnuða,“ upplýsir Sig-
ríður Bylgja.
Yfir sumarmánuðina leggur
Landvernd áherslu á viðburði úti í
náttúrunni.
„Við tökum okkur smá frí í júlí
til að hlaða batteríin og hvetjum
alla til að gera slíkt hið sama. Það
er nefnilega vísindalega sannað
að útivera í óspilltri náttúru hefur
jákvæð áhrif á heilsuna,“ segir Sig-
ríður Bylgja brosandi.
Stærsti viðburðurinn verður svo
á 50 ára afmælisdegi samtakanna,
þann 25. október 2019, og verður
dagskrá afmælisdagsins auglýst
síðar.
„Öll dagskrá afmælisársins
miðar að því að miðla og fræða og
bjóða fólki í samtal um umhverfis-
mál. Aðalmarkmiðið er auðvitað
að vekja athygli á samtökunum
og því sem við vinnum að, en
verkefni Landverndar eru ótrúlega
fjölbreytt og skemmtileg,“ segir
Sigríður Bylgja.
Allt er umhverfismál
Að sögn Sigríðar Bylgju má tengja
nær allt í tilveru mannsins við
umhverfismál, hvort sem það eru
matarvenjur, neysla, samgöngu-
máti, stjórnmál eða annað.
„Við megum ekki gleyma að
við deilum þessari jörð með 7,7
milljörðum manneskja, auk allra
þeirra sem á eftir okkur munu
koma; börnin okkar, barnabörn og
barnabarnabörn. Því væri jörðinni
og umhverfismálum afskaplega
hollt ef allir, bæði einstaklingar,
fyrirtæki og stjórnvöld, myndu
hugsa eins og indíánarnir gerðu,
sjö kynslóðir fram í tímann, en
ekki í ársfjórðungum eða árs-
uppgjöri. Við eigum nefnilega
bara þessa einu jörð og margar af
hennar auðlindum eru takmark-
aðar. Okkar er valdið og ábyrgðin
til þess að nýta þær skynsamlega
þannig að þau sem á eftir okkur
koma geti notið hennar líka.“
Neita í stað þess að neyta
Sigríður Bylgja stingur upp á eftir-
farandi:
„Við ættum að hætta að vera
svona miklir neytendur og verða
þess í stað neitendur. Neita að taka
þátt í allri neyslunni sem okkur
er talin trú um að við þurfum til
að verða hamingjusöm. Neitum
bara að taka þátt í henni og förum
þess í stað að njóta! Búa til fallegar
minningar, njóta samverustunda
og þess stutta tíma sem við eigum
hér á þessari fallegu jörð.“
Njótum í stað þess að neyta
Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök, fagnar hálfrar aldar afmæli sínu í ár. Allir
eru hjartanlega velkomnir á viðburði afmælisársins og hvattir til að njóta í stað þess að neyta.
Hvannadalshnúkur í Öræfasveit lokkar og laðar vegna ósnortinnar náttúru. MYND/GUNNÞÓRA GUNNARSDÓTTIR
4 LANDVERND 50 ÁRA 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-5
F
1
8
2
1
F
7
-5
D
D
C
2
1
F
7
-5
C
A
0
2
1
F
7
-5
B
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K