Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 35
Hún kallar ekki á víðfeðmt sölunet heldur einungis nokkurn fjölda af öflugu sölufólki.“ Coripharma verði rekið með hagnaði á seinni hluta næsta árs Hvenær heldur þú að fyrirtækið verði rekið með hagnaði? „Ég reikna með því að það verði á seinni hluta næsta árs og sá hagn- aður verði nýttur til að vaxa. Ég tel að það muni taka um 18 mánuði að fá skipið á fullt skrið aftur. Eftir þann tíma eigum við að geta rekið fyrirtækið réttu megin við strikið. Við munum sníða okkur stakk eftir vexti og gæta þess að vaxa ekki of hratt.“ Hvað þarf marga viðskiptavini til að fylla framleiðslugetu verksmiðj- unnar? „Margir af þeim viðskiptavinum sem við ræðum við eru með slíkar þarfir að þeir gætu fyllt hana sjálfir. Væntanlega verður þetta blanda af nokkrum viðskiptavinum. Ég sé fyrir mér að á næstu tveimur, þremur árum verðum við með um 20 viðskiptavini.“ Hvernig gekk að ráða fyrrverandi starfsmenn Actavis? „Það gekk yndislega vel. Þá skildi ég hvað hópurinn, sem fékk mig að borðinu, var að tala um. Hér ríkti einstakur starfsandi. Allir sem við réðum voru komnir með starf ann- ars staðar. Það þurfti oft ekki nema eitt símtal til að fá þá um borð. Þeir svöruðu um hæl: „Ég er með þriggja mánaða uppsagnarfrest og mun að sjálfsögðu koma að þeim tíma liðnum.“ Starfaði með Kenneth Peterson Ræðum aðeins um þinn starfsferil. „Ég hóf störf fyrir CVC, Columbia Ventures Corporation, árið 2002. Það er í eigu Kenneths Peterson, stofnanda Norðuráls. Hann hafði fyrst og fremst fjárfest í áliðnaði og fasteignum en vildi færa sig yfir í fjarskiptageirann. Við keyptum því saman 40 prósenta hlut í Voda- fone og ég varð stjórnarformaður fyrirtækisins. CVC seldi Norðurál og Vodafone árið 2004. Þá fór ég að vinna fyrir hann við sæstrengsverk- efni undir hatti Hibernia Networks. Upphaflega ætlaði ég að sinna því starfi í hálft ár en það vatt upp á sig og úr varð að ég stýrði fyrirtækinu í þrettán ár. Hibernia Networks rekur eigin sæstrengi og ljósleiðaranet í Kanada, Bandaríkjunum og hefð- bundnum löndum í Evrópu, það er Belgíu, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Írlandi. Við lögðum nýjan sæstreng sem lokið var við árið 2015. Það var fyrsti strengurinn sem hafði verið lagður í nokkurn tíma. Fyrirtækið var selt árið 2017 í janúar fyrir 610 milljónir dollara,“ segir Bjarni. Það er jafn- virði 72 milljarða króna á núverandi gengi. Á þrettán árum fjölgaði starfs- mönnum úr 15 í 240 og veltan nam 190 milljónum dollara við söluna, jafnvirði 22 milljarða króna. Eftir söluna á Hibernia Networks ferðaðist Bjarni með fjölskyldu sinni töluvert frá árinu 2017 til apríl 2018, en hann hafði lofað henni því þegar störfum hans fyrir fyrirtækið lyki. „Þessi ár útheimtu töluverðan tíma frá fjölskyldunni og heimilishaldið var þá á herðum Katrínar konu minnar sem ýmist bjó með mér í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk- landi eða á Íslandi. Við vorum meira og minna erlendis frá árinu 1989 þegar ég fór fyrst utan í nám. “ Hvað ertu menntaður? „Ég lauk BS-prófi í verkfræði frá Háskóla Íslands, þaðan lá leiðin í meistaranám í verkfræði við Uni- versity of Wisconsin. Ári síðar bætti ég við mig MBA-gráðu frá háskóla í París í Frakklandi og fimm árum síðar tók ég mastersnám í fjármál- um við London Business School. Árið 1998 sný ég aftur til Íslands og ræð mig til FBA og Íslandsbanka og fjórum árum seinna hef ég störf hjá CVC, eins og fyrr sagði.“ Hvernig kom það til að þú tókst að þér að verða forstjóri lyfjafyrirtækis og lagðir pening í það? „Það var haft samband við mig, rétt eins og marga aðra fjárfesta, og athugað hvort ég hefði áhuga á verk- efninu. Þegar hópurinn var kominn saman var það viðrað við mig hvort ég væri reiðubúinn að leiða fyrir- tækið. Hugmyndin var að fá ein- hvern með alþjóðlega stjórnunar- reynslu til starfans. Á þeim tíma var það fjarri mér að leiða lyfjaframleið- anda. Ég var ekki á þeim buxunum að taka að mér nýtt verkefni en eftir því sem ég kynnti mér tækifærið betur varð það æ skemmtilegra og áhugaverðara.“ Á í fiskeldi og ferðaþjónustu Hefurðu verið að fjárfesta á Íslandi, fyrst það var hringt í þig? „Ég á í þremur fyrirtækjum á Íslandi. Auk Coripharma á ég hlut í og sit í stjórn Matorku sem rekur fiskeldi á landi rétt fyrir utan Grindavík. Það er verið að stækka það núna í þrjú þúsund tonna eldi. Um þessar mundir er verið að kalla eftir fiskeldi á landi því það ógnar ekki villtum laxa- og silungastofn- um. Ég hef einnig fjárfest í gistiheimili fyrir ferðamenn í Reykholti í Bisk- upstungum. Við leigjum tólf hús til ferðamanna sem vilja fara Gullna hringinn og gista annars staðar en í borginni. Þetta eru skemmtileg verkefni. Mér þykja þau áhuga- verðari en að fjárfesta á hlutabréfa- mörkuðum.“ „Cori er japanskt orð og þýðir þýðir ís. Það er skemmtilegt og þjált,“ segir Bjarni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Allir vinna með öllum Tíðkast það að fyrirtæki þrói lyf en láti framleiðsluna í hendur annarra? „Viðskiptamódelin spanna allt lit- rófið. Það sem er sérstakt við lyfja- geirann er að allir vinna með öllum með alls kyns hætti. Mögulega er lyfið þróað í sameiningu af tveimur fyrirtækjum og annað þeirra fram- leiðir lyfið. Annað sem er í stöðunni, er að lyfjafyrirtæki þrói lyf en feli öðrum að framleiða það. Enn annar möguleikinn væri að þróa lyf en selja lyfið til fyrirtækis sem annast framleiðsluna. Leið Actavis á árum áður var að þróa lyf, selja fyrirtækjum mark- aðsleyfi en framleiða fyrir þau lyfin í visst mörg ár. Að þeim tíma liðnum gátu fyrirtækin valið um að framleiða lyfin sjálf eða láta ein- hvern annan annast það verkefni. Í flestum tilvikum var ákveðið að Actavis í Hafnarfirði myndi áfram framleiða lyfið, jafnvel þótt leyfis- hafinn hefði frjálsar hendur til að semja við aðra. Þetta sýnir vel styrk verksmiðjunnar.“ Tók vel á annað ár Gengu kaupin hratt fyrr sig? „Samningarnir tóku töluverðan tíma. Viðræðurnar og að ganga frá fjármögnun tók vel á annað ár. Þegar samið er við fyrirtæki sem á þeim tíma var metið á hlutabréfa- markaði á 50 milljarða dollara, jafn- virði 5.881 milljarðs króna, eru því takmörk sett hve mikla athygli frá stjórnendum sala sem þessi fær.“ Þú hefur sagt í fjölmiðlum að þegar verksmiðjan væri komin í full afköst, hefðuð þið hug á að framleiða eigin lyf? „Við byrjum á að framleiða lyf í verktöku fyrir aðra og láta við- skiptatækifærið sanna sig. Því næst munum við nýta framlegð úr þeim viðskiptum til að þróa eigin lyf. Það er með þetta eins og annað, fyrst þarf að skríða áður en hægt er að ganga og ganga áður en hægt er að hlaupa. Við stefnum á að fara í eigin framleiðslu á næstu tveimur til þremur árum.“ Starfsmenn verði 150 eftir tvö ár Hvernig sérðu fyrir þér vöxt í fjölda starfsmanna á næstu árum? „Við erum núna 37. Ég reikna með að sá fjöldi muni um það bil tvöfald- ast í ár og það kæmi mér ekki á óvart ef fjöldinn myndi tvöfaldast aftur á næsta ári. Þá yrðum við um 150.“ Hvað knýr þennan vöxt? „Framleiðslugeta verksmiðjunnar. Hún getur framleitt einn og hálfan milljarð tafla. Til að ná há marks- afköstum þarf að vinna á vöktum og þetta er einfaldlega sá fjöldi starfs- manna sem þarf til. Þegar fram- leiðsla er hafin þarf að fjölga hratt starfsfólki á rannsóknar stofunni og við gæðaeftirlit. Það þarf að athuga hráefnin þegar þau koma inn, á meðan á framleiðslu stendur og reglulega eftir afhendingu til að ganga úr skugga um að töflurnar haldi enn virkni sinni á meðan þær eru seldar í apótekum, jafnvel nokkrum árum eftir framleiðslu.“ Hvernig verður þessi vöxtur fjár- magnaður? „Með framlegð úr rekstri fyrir- tækisins. Við stefnum ekki á að kalla eftir auknu hlutafé frá hlut- höfum eða öðrum fjárfestum, nema upp komi óvænt og spennandi fjár- festingartækifæri. Af þeim sökum er ekki tímabært að fara í framleiðslu á eigin lyfjum strax. Fyrsta skref er að fá framlegð úr verksmiðjunni, sem nýtt verður til að koma henni í full afköst, því næst verður framlegðin úr þeirri starfsemi nýtt til að hefja þróun á eigin lyfjum.“ Er ekki erfitt að koma eigin lyfjum á markað? „Það fer eftir því hvaða leið er farin. Ef framleiða á undir eigin nafni þarf að byggja upp öflugt sölunet sem er afar kostnaðarsamt. Actavis tókst vel upp í þeim efnum með kaupum á fyrirtækjum. Önnur leið er að þróa vöru og selja hana undir merkjum ann- arra. Með þeim hætti er hægt að eiga áfram hugverkaréttinn. Það er sú leið sem við myndum fara fyrst. Viðræðurnar og að ganga frá fjár- mögnun tók vel á annað ár. Þegar samið er við fyrirtæki sem á þeim tíma var metið á hlutabréfamarkaði á 50 milljarða dollara, jafnvirði 5.881 milljarðs króna, eru því takmörk sett hve mikla athygli frá stjórnendum sala sem þessi fær. Tilnefningar til stjórnar Festi Tilnefningarnefnd Festi hf. (hér Festi, en áður N1 hf.) auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar Festi sem haldinn verður 21. mars næstkomandi. Hlutverk tilnefningarnefndar er að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins á aðalfundi. Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma. Við gerð tillögu um kosningu stjórnarmanna í Festi skal tilnefningarnefndin horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar. Þurfa stjórnarmenn jafnframt að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi. Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi hf. vegna sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið dags. 30. júlí 2018. Geta frambjóðendur kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga. Þess er óskað að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstökum eyðublöðum ásamt ferilskrá fyrir 10. febrúar 2019. MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 0 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 F 7 -8 B 8 8 2 1 F 7 -8 A 4 C 2 1 F 7 -8 9 1 0 2 1 F 7 -8 7 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.