Fréttablaðið - 09.01.2019, Síða 35
Hún kallar ekki á víðfeðmt sölunet
heldur einungis nokkurn fjölda af
öflugu sölufólki.“
Coripharma verði rekið með
hagnaði á seinni hluta næsta árs
Hvenær heldur þú að fyrirtækið
verði rekið með hagnaði?
„Ég reikna með því að það verði
á seinni hluta næsta árs og sá hagn-
aður verði nýttur til að vaxa. Ég tel
að það muni taka um 18 mánuði
að fá skipið á fullt skrið aftur. Eftir
þann tíma eigum við að geta rekið
fyrirtækið réttu megin við strikið.
Við munum sníða okkur stakk eftir
vexti og gæta þess að vaxa ekki of
hratt.“
Hvað þarf marga viðskiptavini til
að fylla framleiðslugetu verksmiðj-
unnar?
„Margir af þeim viðskiptavinum
sem við ræðum við eru með slíkar
þarfir að þeir gætu fyllt hana sjálfir.
Væntanlega verður þetta blanda
af nokkrum viðskiptavinum. Ég
sé fyrir mér að á næstu tveimur,
þremur árum verðum við með um
20 viðskiptavini.“
Hvernig gekk að ráða fyrrverandi
starfsmenn Actavis?
„Það gekk yndislega vel. Þá skildi
ég hvað hópurinn, sem fékk mig að
borðinu, var að tala um. Hér ríkti
einstakur starfsandi. Allir sem við
réðum voru komnir með starf ann-
ars staðar. Það þurfti oft ekki nema
eitt símtal til að fá þá um borð. Þeir
svöruðu um hæl: „Ég er með þriggja
mánaða uppsagnarfrest og mun
að sjálfsögðu koma að þeim tíma
liðnum.“
Starfaði með Kenneth Peterson
Ræðum aðeins um þinn starfsferil.
„Ég hóf störf fyrir CVC, Columbia
Ventures Corporation, árið 2002.
Það er í eigu Kenneths Peterson,
stofnanda Norðuráls. Hann hafði
fyrst og fremst fjárfest í áliðnaði
og fasteignum en vildi færa sig yfir
í fjarskiptageirann. Við keyptum
því saman 40 prósenta hlut í Voda-
fone og ég varð stjórnarformaður
fyrirtækisins. CVC seldi Norðurál
og Vodafone árið 2004. Þá fór ég að
vinna fyrir hann við sæstrengsverk-
efni undir hatti Hibernia Networks.
Upphaflega ætlaði ég að sinna því
starfi í hálft ár en það vatt upp á sig
og úr varð að ég stýrði fyrirtækinu í
þrettán ár.
Hibernia Networks rekur eigin
sæstrengi og ljósleiðaranet í
Kanada, Bandaríkjunum og hefð-
bundnum löndum í Evrópu, það
er Belgíu, Bretlandi, Frakklandi,
Þýskalandi, Hollandi og Írlandi.
Við lögðum nýjan sæstreng sem
lokið var við árið 2015. Það var fyrsti
strengurinn sem hafði verið lagður
í nokkurn tíma. Fyrirtækið var selt
árið 2017 í janúar fyrir 610 milljónir
dollara,“ segir Bjarni. Það er jafn-
virði 72 milljarða króna á núverandi
gengi. Á þrettán árum fjölgaði starfs-
mönnum úr 15 í 240 og veltan nam
190 milljónum dollara við söluna,
jafnvirði 22 milljarða króna.
Eftir söluna á Hibernia Networks
ferðaðist Bjarni með fjölskyldu sinni
töluvert frá árinu 2017 til apríl 2018,
en hann hafði lofað henni því þegar
störfum hans fyrir fyrirtækið lyki.
„Þessi ár útheimtu töluverðan tíma
frá fjölskyldunni og heimilishaldið
var þá á herðum Katrínar konu
minnar sem ýmist bjó með mér í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk-
landi eða á Íslandi. Við vorum meira
og minna erlendis frá árinu 1989
þegar ég fór fyrst utan í nám. “
Hvað ertu menntaður?
„Ég lauk BS-prófi í verkfræði frá
Háskóla Íslands, þaðan lá leiðin í
meistaranám í verkfræði við Uni-
versity of Wisconsin. Ári síðar bætti
ég við mig MBA-gráðu frá háskóla í
París í Frakklandi og fimm árum
síðar tók ég mastersnám í fjármál-
um við London Business School.
Árið 1998 sný ég aftur til Íslands og
ræð mig til FBA og Íslandsbanka og
fjórum árum seinna hef ég störf hjá
CVC, eins og fyrr sagði.“
Hvernig kom það til að þú tókst að
þér að verða forstjóri lyfjafyrirtækis
og lagðir pening í það?
„Það var haft samband við mig,
rétt eins og marga aðra fjárfesta, og
athugað hvort ég hefði áhuga á verk-
efninu. Þegar hópurinn var kominn
saman var það viðrað við mig hvort
ég væri reiðubúinn að leiða fyrir-
tækið. Hugmyndin var að fá ein-
hvern með alþjóðlega stjórnunar-
reynslu til starfans. Á þeim tíma var
það fjarri mér að leiða lyfjaframleið-
anda. Ég var ekki á þeim buxunum
að taka að mér nýtt verkefni en eftir
því sem ég kynnti mér tækifærið
betur varð það æ skemmtilegra og
áhugaverðara.“
Á í fiskeldi og ferðaþjónustu
Hefurðu verið að fjárfesta á Íslandi,
fyrst það var hringt í þig?
„Ég á í þremur fyrirtækjum á
Íslandi. Auk Coripharma á ég
hlut í og sit í stjórn Matorku sem
rekur fiskeldi á landi rétt fyrir utan
Grindavík. Það er verið að stækka
það núna í þrjú þúsund tonna eldi.
Um þessar mundir er verið að kalla
eftir fiskeldi á landi því það ógnar
ekki villtum laxa- og silungastofn-
um.
Ég hef einnig fjárfest í gistiheimili
fyrir ferðamenn í Reykholti í Bisk-
upstungum. Við leigjum tólf hús til
ferðamanna sem vilja fara Gullna
hringinn og gista annars staðar en
í borginni. Þetta eru skemmtileg
verkefni. Mér þykja þau áhuga-
verðari en að fjárfesta á hlutabréfa-
mörkuðum.“
„Cori er japanskt orð og þýðir þýðir ís. Það er skemmtilegt og þjált,“ segir Bjarni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Allir vinna með öllum
Tíðkast það að fyrirtæki þrói lyf en
láti framleiðsluna í hendur annarra?
„Viðskiptamódelin spanna allt lit-
rófið. Það sem er sérstakt við lyfja-
geirann er að allir vinna með öllum
með alls kyns hætti. Mögulega er
lyfið þróað í sameiningu af tveimur
fyrirtækjum og annað þeirra fram-
leiðir lyfið. Annað sem er í stöðunni,
er að lyfjafyrirtæki þrói lyf en feli
öðrum að framleiða það. Enn annar
möguleikinn væri að þróa lyf en
selja lyfið til fyrirtækis sem annast
framleiðsluna.
Leið Actavis á árum áður var að
þróa lyf, selja fyrirtækjum mark-
aðsleyfi en framleiða fyrir þau
lyfin í visst mörg ár. Að þeim tíma
liðnum gátu fyrirtækin valið um
að framleiða lyfin sjálf eða láta ein-
hvern annan annast það verkefni.
Í flestum tilvikum var ákveðið að
Actavis í Hafnarfirði myndi áfram
framleiða lyfið, jafnvel þótt leyfis-
hafinn hefði frjálsar hendur til að
semja við aðra. Þetta sýnir vel styrk
verksmiðjunnar.“
Tók vel á annað ár
Gengu kaupin hratt fyrr sig?
„Samningarnir tóku töluverðan
tíma. Viðræðurnar og að ganga
frá fjármögnun tók vel á annað ár.
Þegar samið er við fyrirtæki sem á
þeim tíma var metið á hlutabréfa-
markaði á 50 milljarða dollara, jafn-
virði 5.881 milljarðs króna, eru því
takmörk sett hve mikla athygli frá
stjórnendum sala sem þessi fær.“
Þú hefur sagt í fjölmiðlum að
þegar verksmiðjan væri komin í full
afköst, hefðuð þið hug á að framleiða
eigin lyf?
„Við byrjum á að framleiða lyf
í verktöku fyrir aðra og láta við-
skiptatækifærið sanna sig. Því næst
munum við nýta framlegð úr þeim
viðskiptum til að þróa eigin lyf. Það
er með þetta eins og annað, fyrst
þarf að skríða áður en hægt er að
ganga og ganga áður en hægt er
að hlaupa. Við stefnum á að fara í
eigin framleiðslu á næstu tveimur
til þremur árum.“
Starfsmenn verði 150 eftir tvö ár
Hvernig sérðu fyrir þér vöxt í fjölda
starfsmanna á næstu árum?
„Við erum núna 37. Ég reikna með
að sá fjöldi muni um það bil tvöfald-
ast í ár og það kæmi mér ekki á óvart
ef fjöldinn myndi tvöfaldast aftur á
næsta ári. Þá yrðum við um 150.“
Hvað knýr þennan vöxt?
„Framleiðslugeta verksmiðjunnar.
Hún getur framleitt einn og hálfan
milljarð tafla. Til að ná há marks-
afköstum þarf að vinna á vöktum og
þetta er einfaldlega sá fjöldi starfs-
manna sem þarf til. Þegar fram-
leiðsla er hafin þarf að fjölga hratt
starfsfólki á rannsóknar stofunni
og við gæðaeftirlit. Það þarf að
athuga hráefnin þegar þau koma
inn, á meðan á framleiðslu stendur
og reglulega eftir afhendingu til að
ganga úr skugga um að töflurnar
haldi enn virkni sinni á meðan
þær eru seldar í apótekum, jafnvel
nokkrum árum eftir framleiðslu.“
Hvernig verður þessi vöxtur fjár-
magnaður?
„Með framlegð úr rekstri fyrir-
tækisins. Við stefnum ekki á að
kalla eftir auknu hlutafé frá hlut-
höfum eða öðrum fjárfestum, nema
upp komi óvænt og spennandi fjár-
festingartækifæri. Af þeim sökum er
ekki tímabært að fara í framleiðslu á
eigin lyfjum strax. Fyrsta skref er að
fá framlegð úr verksmiðjunni, sem
nýtt verður til að koma henni í full
afköst, því næst verður framlegðin
úr þeirri starfsemi nýtt til að hefja
þróun á eigin lyfjum.“
Er ekki erfitt að koma eigin lyfjum
á markað?
„Það fer eftir því hvaða leið er
farin. Ef framleiða á undir eigin
nafni þarf að byggja upp öflugt
sölunet sem er afar kostnaðarsamt.
Actavis tókst vel upp í þeim efnum
með kaupum á fyrirtækjum.
Önnur leið er að þróa vöru og
selja hana undir merkjum ann-
arra. Með þeim hætti er hægt að
eiga áfram hugverkaréttinn. Það er
sú leið sem við myndum fara fyrst.
Viðræðurnar og
að ganga frá fjár-
mögnun tók vel á annað ár.
Þegar samið er við fyrirtæki
sem á þeim tíma var metið
á hlutabréfamarkaði á 50
milljarða dollara, jafnvirði
5.881 milljarðs króna, eru
því takmörk sett hve mikla
athygli frá stjórnendum
sala sem þessi fær.
Tilnefningar til stjórnar Festi
Tilnefningarnefnd Festi hf. (hér Festi, en áður N1 hf.) auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar
félagsins vegna aðalfundar Festi sem haldinn verður 21. mars næstkomandi.
Hlutverk tilnefningarnefndar er að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins á aðalfundi.
Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu
sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma. Við gerð tillögu
um kosningu stjórnarmanna í Festi skal tilnefningarnefndin horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti
til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar.
Þurfa stjórnarmenn jafnframt að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um
hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins
og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi.
Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi hf. vegna sáttar félagsins við
Samkeppniseftirlitið dags. 30. júlí 2018. Geta frambjóðendur kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins
þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga.
Þess er óskað að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstökum eyðublöðum ásamt
ferilskrá fyrir 10. febrúar 2019.
MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-8
B
8
8
2
1
F
7
-8
A
4
C
2
1
F
7
-8
9
1
0
2
1
F
7
-8
7
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K