Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 48
Þeir Tryggvi og Sveinbjörn hafa áður unnið saman, einkum á sviði barnamenningar. Lagið Leiðin er ekki sérstaklega tileinkað börnum þótt þau hafi frumflutt það. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Upp á síðkastið hefur nýtt ættjarðarljóð heyrst sungið við nýtt lag á mörgum heimilum í grennd við Laugardalinn.
Ástæðan er sú að börnin í Laugar-
nesskóla hafa lært það og æft. Þau
fluttu það líka opinberlega á full-
veldishátíð skólans í nóvember.
Ljóðið nefnist Leiðin. Það er eftir
Sveinbjörn I. Baldvinsson, skáld
og prófessor, og lagið samdi bróðir
hans, Tryggvi M. Baldvinsson, tón-
skáld og forseti tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands.
Sveinbjörn hefur síðustu tíu ár
verið prófessor í handritaskrifum
við Kvikmyndaskóla Noregs í Lille-
hammer. Hann kom heim til að
halda jólin og áramótin á Íslandi
með fjölskyldu og vinum og segist
reyndar oft fljúga á milli. „Ég var líka
heima þegar Leiðin okkar Tryggva
var frumflutt. Það var skemmtilegt,
alltaf sérstakt að vera viðstaddur
frumflutning á einhverju sem
maður hefur gert.“
Spark í rassinn
Tryggvi segir það fullveldisafmæl-
inu að þakka að þetta bræðralag
þeirra Sveinbjarnar hafi orðið til.
Þeir hafi ákveðið að taka þátt í sam-
keppni um nýtt lag og texta sem
hæfði þeim tímamótum. „Okkar
lag komst ekki áfram í keppninni en
er samt komið á flug vegna þess að
tónmenntakennarinn í Laugarnes-
skóla frétti af því og langaði að leyfa
skólabörnunum að syngja það. Þau
gerðu það ótrúlega vel.
Sveinbjörn segir samkeppni af
þessu tagi virkilega af hinu góða því
þá fari sköpun í gang og til verði ný
lög og ljóð. „Stundum þarf tilefni til
að maður setjist niður og semji eitt-
hvað og svona samkeppni er gott
spark í rassinn að því leyti.“
En hvor bræðranna byrjaði að
móta sinn þátt?
„Sveinbjörn orti ljóðið fyrst og
kom með textann til mín,“ svarar
Tryggvi sem segist hafa haft svo-
lítið fyrir því að finna rétta tóninn
og láta lagið falla vel að textanum.
„Ljóðið hans Sveinbjarnar er sonn-
etta, línurnar frekar langar og það
gerði lagasmíðina örlítið erfiðari.“
Hann segir misjafnt hvernig textar
kalli fram laglínur. „Sum ljóð eru
þannig að lögin semja sig hálf-
partinn sjálf. Þetta var ekki þann-
ig,“ segir hann en tekur fram, til að
fyrirbyggja misskilning, að verk-
efnið hafi bæði verið ögrandi og
skemmtilegt.“
Skyldu þeir bræður oft hafa unnið
svona saman áður?
Leiðin er nýtt bræðralag Tryggva og Sveinbjarnar
Bræðurnir Sveinbjörn I. Baldvinsson skáld og Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld starfa hvor á sínum vett-
vangi á menningarsviðinu. Stundum leggja þeir saman krafta sína í listaverk. Leiðin er dæmi um slíkt.
Leiðin
Þó að frysti og fenni á sumardegi,
frostið kalda þrastarsönginn trufli
og fjöll í hnipri undir hvítum kufli,
höldum við áfram eftir þessum vegi.
Víst er landið löngum hart og kalið,
lokuð sund og ófær einatt heiðin.
Samt er þekkt að þetta er eina leiðin
þjóðar sem eylandið svala hefur alið.
Seint verður auðvelt að elska þessi kaun,
auðnirnar hrjúfu, rofabörð og sanda,
vindbarða kletta út við hafið gramt.
En indælum mosa úfið skýlir hraun,
öræfin gefa næði til að anda.
Auðvelt eða ekki, elskum við það samt,
auðvelt eða ekki, þá elskum við það samt.
Sveinbjörn I. Baldvinsson
„Við höfum unnið saman að
nokkrum verkefnum, einkum á
sviði barnamenningar. Þar ber
sennilega hæst Þúsaldarljóðin,
sem 2.000 fimm ára börn frum-
fluttu á Arnarhóli árið 2000,“ svarar
Tryggvi. „Við unnum einnig saman
að tónverkinu Lyklinum sem var
samið fyrir Kammersveit Norður-
lands og segir frá Benna og Smala
og baráttu þeirra við nautið Geir-
mund. Skólasöngur Álftanesskóla
er einnig eitt af okkar samstarfs-
verkefnum og ég hef svo líka samið
nokkur sönglög við ljóð Svein-
bjarnar.“
„Já, í þessum ánægjulegu sam-
starfsverkefnum hefur Tryggvi alltaf
stungið upp á því að ég setji saman
textann fyrst. Held kannski að lagið
Dægur sé undantekningin, það lag
er á sólóplötu Jóhönnu Þórhalls-
dóttur, Flauelsmjúkar hendur,“
segir Sveinbjörn.
Hafa dálæti á Val
Bræðurnir eru Reykvíkingar en
með sterk sálartengsl við Suður-
landsundirlendið og Ólafsfjörð, að
sögn Tryggva. „Faðir okkar, Baldvin
Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri, er borinn og barnfæddur
Ólafsfirðingur. Við bjuggum í Hlíð-
unum þar til að ég var þriggja ára og
þá fluttum við í Laugarásinn þannig
að Sveinbjörn, sem er eldri, á sterk-
ari tengingar við Hlíðarnar en ég.“
„Hlíðarnar voru minn bernsku-
heimur,“ segir Sveinbjörn og kveðst
hafa nýtt sér hann þegar hann
samdi ljóðverkið Stjörnur í skónum
á sínum tíma. „Ég var orðinn ellefu
ára þegar við fluttum úr Hlíðunum
en nú er ég reyndar fluttur þangað
aftur, eftir mörg góð ár á Álftanesi.“
„Eitt hefur þó fylgt okkur báðum
úr Hlíðunum og það er dálæti okkar
á Knattspyrnufélaginu Val, sem við
styðjum enn með ráðum og dáð,“
segir Tryggvi. „Við erum báðir fyrr-
verandi nemendur í Laugarnesskóla
og því var það einstaklega skemmti-
legt að koma þangað aftur og heyra
börnin syngja lagið okkar í þessum
fallega og góða skóla.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-8
1
A
8
2
1
F
7
-8
0
6
C
2
1
F
7
-7
F
3
0
2
1
F
7
-7
D
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K