Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 11
Það eru forréttindi að vera
ráðherra málaflokks sem
ég hef í mörg ár unnið að
og brunnið fyrir – og það á
tímum sem þessum.
Sterk og mikilvæg umhverfis-bylgja á sér nú stað í samfélag-inu. Það eru forréttindi að vera
ráðherra málaflokks sem ég hef í
mörg ár unnið að og brunnið fyrir –
og það á tímum sem þessum. Það er
ótrúlega gaman og gefandi að starfa
með fólki vítt og breitt í samfélag-
inu sem keppist við að gera allt sem
mögulegt er til að vinna umhverfinu
heilt.
Friðlýsingar farnar í gang
Eitt af mínum hjartans málum er
náttúruvernd. Undanfarin ár hefur
gengið alltof hægt að friðlýsa svæði
sem Alþingi hefur þegar samþykkt
að skuli friðlýst. Nú hefur breyting
orðið á og friðlýsingar eru komnar
á dagskrá stjórnvalda. Sem ráðherra
setti ég saman teymi milli umhverf-
is- og auðlindaráðuneytisins og
Umhverfisstofnunar sem vinnur
nú að sérstöku átaki í friðlýsingum.
Meðal verkefna sem komin eru í
kynningu eru friðlýsingarskilmálar
fyrir fimm svæði í verndarflokki
gildandi rammaáætlunar og áform
um friðlýsingu tveggja svæða sem
hafa verið undir miklu álagi ferða-
manna: Annars vegar Reykjadals
og Grænsdals í Ölfusi og hins vegar
Gjárinnar og fleiri staða í Þjórsárdal.
Mér þótti einnig mikilvægt að
áhrif friðlýsinga á efnahag yrðu
rannsökuð frekar og fyrir liggur
umfangsmikil rannsókn Hagfræði-
stofnunar HÍ sem fram fór vítt og
breitt um landið og sýnir að fyrir
hverja 1 krónu sem ríkið leggur til
friðlýstra svæða skila 23 krónur sér
til baka. Við vitum að friðlýsingar
eru mikilvægar náttúrunnar vegna
en nú hefur verið sýnt fram á að þær
hreinlega margborga sig – á fjöl-
marga vegu.
Fleiri rannsókna- og þróunar-
verkefni eru í gangi, auk þess sem
fjárframlög til að verja náttúruna
á svæðum undir álagi ferðamanna
hafa verið stóraukin, ekki síst á frið-
lýstum svæðum. Til að efla fræðslu
um friðlýst svæði, leiðbeina um
umgengni og auka jákvæða upplif-
un fólks af náttúru landsins verður
landvarsla síðan aukin frá og með
árinu í ár.
Stærsta náttúruverndarverkefnið
er þó án efa stofnun þjóðgarðs á
miðhálendi Íslands. Kveðið er á um
stofnun þjóðgarðsins í stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar og
undirbúningur fyrir hann er í
góðum höndum hjá þverpólitískri
nefnd sem ég skipaði og tók til
starfa síðastliðið vor. Fyrstu verk-
efni nefndarinnar hafa þegar verið
kynnt. Miðhálendisþjóðgarður
markar straumhvörf í náttúruvernd
á Íslandi.
Loftslagsmál, plast og sóun
Loftslagsbreytingar eru stærsta sam-
eiginlega áskorunin sem við Jarðar-
búar stöndum frammi fyrir. Nú
liggur fyrir fyrsta útgáfa af aðgerða-
áætlun í loftslagsmálum fyrir Ísland
og það hefur verið frábært að fylgj-
ast með móttökunum. Fram undan
eru stórtækar aðgerðir við að binda
kolefni úr andrúmslofti og að hætta
brennslu innflutts og mengandi
jarðefnaeldsneytis í samgöngum
hér á landi og nota heldur innlenda
og endurnýjanlega orkugjafa. Þá
verður í fyrsta skipti varið fjármagni
sérstaklega til nýsköpunar á sviði
loftslagsmála með stofnun Lofts-
lagssjóðs, auk margra fleiri aðgerða.
Annað sem ég legg þunga áherslu
á er að berjast gegn plastmengun,
óþarfa neyslu og sóun. Við getum
ekki haldið áfram að umgangast
Jörðina okkar eins og við höfum
gert og verðum að hætta að líta á
hluti sem einnota. Hvert og eitt
getum við tekið ótal skref í dag-
legu lífi okkar til að breyta þessu en
nauðsynlegra stjórnvaldsaðgerða er
einnig þörf. Ég mun gera mitt til að
þær verði að veruleika. Fyrir liggja
tillögur starfshóps um aðgerðir
varðandi plastmengun, á næstunni
legg ég fram frumvarp um bann við
afhendingu burðarplastpoka og
ráðuneytið hefur stutt átaksverk-
efni Umhverfisstofnunar og frjálsra
félagasamtaka til að draga bæði úr
plastnotkun og matarsóun.
Aukin aðkoma almennings
Að lokum langar mig að nefna
mikil vægi þess að efla aðkomu
almennings að ákvarðanatöku um
umhverfis mál og að sú aðkoma verði
aukin fyrr í ferli ákvarðanatöku en
raunin hefur verið. Þessu hafa raun-
ar bæði umhverfisverndarsamtök
og framkvæmdaaðilar kallað eftir.
Til að vinna þessu brautargengi hef
ég sett í gang heildarendurskoðun á
lögum um mat á umhverfisáhrifum
og látið vinna áætlun um eftirfylgni
Árósasamningsins. Þá munu fjár-
veitingar til reksturs umhverfis-
verndarsamtaka verða auknar um
helming í ár og aftur á næsta ári.
Framlög til umhverfismála hafa
stóraukist í tíð núverandi stjórnar
og hafa raunar aldrei verið neitt
í líkingu við það sem nú er. Ég er
spenntur fyrir því sem fram undan
er og hlakka til að halda baráttunni
áfram. Árið 2019, kom þú fagnandi!
Umhverfismálin komin á dagskrá
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
umhverfis-
og auðlinda-
ráðherra
Gjáin í Þjórsárdal. MYND/HUGI ÓLAFSSON
LAND ROVER Discovery Sport
Nýskr. 3/2017, ekinn 55 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 5.390.000 kr.
Rnr. 103843.
JAGUAR F-Pace Prestige
Nýskr. 10/2017, ekinn 23 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 8.690.000. kr.
Rnr. 145554.
LAND ROVER Discovery 5 SE
Nýskr. 11/2017, ekinn 54 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.500.000 kr.
Rnr. 145504.
LAND ROVER Discovery 4 S
3.0 TDV6.
Nýskr. 6/2015, ekinn 87 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 103852.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
RANGE ROVER Sport HSE
Nýskr. 6/2017, ekinn 38 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 11.500.000 kr.
Rnr. 103773.
JAGUAR F-Pace
Nýskr. 6/2017, ekinn 41 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 8.290.000 kr.
Rnr. 103845.
LAND ROVER
Discovery Sport HSE
Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 103786.
JAGUAR XE 180d
Prestige AWD
Nýskr. 5/2018, ekinn 4 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 5.990.000 kr.
Rnr. 103844.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
1
7
0
5
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
9
ja
n
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-6
D
E
8
2
1
F
7
-6
C
A
C
2
1
F
7
-6
B
7
0
2
1
F
7
-6
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K