Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 14
Valur - ÍBV 23-16
Valur: Sandra Erlingsdóttir 6/5, Ragnhildur
Edda Þórðardóttir 4, Írís Ásta Pétursdóttir 3,
Díana Dögg Magnúsdóttir 3.
Varin skot: Írís Ásta Símonardóttir 15.
ÍBV: Arna Sif Pálsdóttir 5/3, Sunna Jónsdóttir
4, Karolína B. Lárudóttir 2, Ásta Björt Júlíus-
dóttir 2, Kristrún Hlynsdóttir 2.
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 8.
Haukar - Fram 30-31
Haukar: Berta R. Harðardóttir 8/4, Karen
H. Díönudóttir 7, Hekla R. Ámundadóttir 4,
Maria Ines Pereira 3, Ramune Perkarskyte 3.
Varin skot: Saga Sif Gísladóttir 10/1
Fram: Þórey Rósa Stefánsdóttir 10, Ragn-
heiður Júlíusdóttir 9/3, Steinunn Björns-
dóttir 4, Sigurbjörg Jóhannesdóttir 3, Harpa
María Friðgeirsdóttir 3. Varin skot: Heiðrún
Dís Magnúsdóttir 14
KA/Þór - Selfoss 33-21
KA/Þór: Hulda Bryndís Tryggvadóttir 8,
Martha Hermannsdótir 6, Rakel Sara Elvars-
dóttir 5, Aldís Ásta Heimisdóttir 4, Katrín
Vilhjálmsdóttir 4. Varin skot: Olgica Andri-
jasevic 20. Selfoss: Perla Ruth Albertsdóttir
6, Hulda Dís Þrastardóttir 5, Ída Bjarklind
Magnúsdóttir 3, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir
3. Varin skot: Katrín Ósk Magnúsdóttir 10.
Staðan í deildinni:
Valur 17
ÍBV 15
Fram 15
Haukar 12
KA/Þór 10
HK 7
Stjarnan 6
Selfoss 4
Nýjast
Olís-deild kvenna
Enski deildabikarinn
Tottenham - Chelsea 1-0
1-0 Harry Kane (27.) (vítaspyrna).
HANDBOLTI Undirbúningur íslenska
karlalandsliðsins í handbolta sem
er á leiðinni á heimsmeistaramótið í
dag hefur litast af meiðslum og veik-
indum hjá lykilleikmönnum liðsins.
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
þjálfari liðsins, tilkynnti í gær hvaða
17 leikmenn hann tekur með sér á
mótið að þessu sinni. Hann þurfti
að hefja fundinn á því að tilkynna
að Guðjón Valur Sigurðsson fyrirliði
liðsins myndi ekki vera með í fyrri
hluta mótsins hið minnsta vegna
meiðsla á hné.
Þá er Aron Rafn Eðvarðsson ekki
í hópnum vegna meiðsla í nára og
Rúnar Kárason er ekki orðinn nægi-
lega góður af þeim kálfameiðslum
sem hafa verið að plaga hann. Þeir
verða því ekki í leikmannahópnum
á þessu móti. Þarna fara tæplega 600
landsleikir úr leikmannahópnum og
í þeirra stað koma Bjarki Már Elís-
son sem hefur reyndar umtalsverða
reynslu af stóra sviðinu með lands-
liðinu og svo Ágúst Elí Björgvins-
son og Teitur Örn Einarsson sem
eru nokkuð blautir bak við eyrun á
stærsta sviðinu.
Þá er miðjumannasveit íslenska
liðsins einkar ung, en Elvar Örn
Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson
og Haukur Þrastarson sem fer út til
München sem 17. leikmaður liðsins
eru allir tæplega tvítugir. Það er því
ljóst að íslenskt handboltaáhugafólk
ætti að fara inn á þetta mót með hóf-
stilltar væntingar.
Þetta er hins vegar afar spennandi
leikmannahópur sem getur klárlega
staðið bestu leikmönnum heims á
sporði ef allt gengur upp í leik þeirra
og ætti að stefna að því að komast í
milliriðil sem fyrsta markmið. Ef það
markmið næðist væri það sem eftir
á kæmi verkefni sem væru verulega
dýrmæt inn í reynslubankann fyrir
komandi ár.
„Þessi undirbúningur hefur verið
alger rússíbanareið vegna þeirra
meiðsla og veikinda sem hafa dunið
á liðinu. Ég hef lítið sofið undan-
farna sólarhringa. Það er alltaf erfitt
að velja landsliðshóp fyrir stórmót,
en nú hefur það verið sérstaklega
erfitt vegna fyrrgreindra skakka-
falla og þess að mér finnst nokkrir
leikmenn í mörgum stöðum einkar
jafnir og það er erfitt að gera upp
á milli þeirra,“ segir Guðmundur
Þórður Guðmundsson um valið að
þessu sinni.
„Það er auðvitað mikill skellur
fyrir okkur að missa Guðjón Val
svona skömmu fyrir mót. Sérstak-
lega af því að hann kom jákvæður út
úr skoðuninni sem hann fór í mánu-
daginn. Því var það óvænt að heyra
hversu alvarleg meiðslin væru orðin.
Við þessu er hins vegar ekkert að gera
og við verðum bara að tækla stöðuna
eins og hún er.“
Guðjón mun vera í endurhæfingu
næstu daga og það er ekki loku fyrir
það skotið að hann verði með á
seinni stigum mótsins. „Það er hins
vegar í fyrsta lagi ekki fyrr en eftir
viku sem við getum farið að íhuga
það að hann komi inn í hópinn og
spili. Þetta eru þess háttar meiðsli að
það er nokkur óvissa um það hvenær
hann jafnar sig alfarið og nú er það
bara í höndum hans sjálfs og sjúkra-
teymisins að koma aftur inn á hand-
boltavöllinn,“ segir Guðmundur um
stöðu mála hjá Guðjóni.
„Mér er það til efs að íslenska liðið
hafi áður mætt til leiks á stórmót
með jafn ungt lið og raun ber vitni
á komandi móti. Við tökum bara
einn leik fyrir í einu á þessu móti og
höfum einblínt á leik króatíska liðs-
ins á síðustu tveimur æfingum liðs-
ins. Það verður áfram einbeitingin á
þá á næstu sólarhringum fyrir þann
leik. Ég er í raun ekki búinn að melta
það hvort fjarvera þeirra lykilleik-
manna sem verða ekki með breyti
þeim væntingum sem við gerum um
árangur á mótinu. Nú er ég bara að
hugsa um að undirbúa þá leikmenn
sem skipa þennan hóp eins vel og ég
get fyrir hvern og einn leik.
Þetta er ungt og afar spennandi lið
sem getur náð mjög langt á næstu
þremur árum. Það má segja að
þetta stórmót sé fyrsti fasi í því að
koma liðinu nær því að komast í
fremstu röð á nýjan leik. Við erum í
raun neyddir til þess að flýta fasanum
örlítið sem getur verið gott til fram-
tíðar litið. Við förum jákvæðir inn í
mótið og ætlum okkur að gera góða
hluti,“ segir þjálfarinn um komandi
verkefni, en liðið heldur til München
í dag og fyrsti leikur Íslands á mót-
inu verður síðan gegn Króatíu í
München á föstudaginn kemur. – hó
Ungt lið heldur til München í dag
Forráðamenn HSÍ tilkynna hér hóp íslenska liðsins á blaðamannafundinum sem haldinn var í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Markmenn:
Björgvin Páll Gústafsson
Ágúst Elí Björgvinsson
Vinstra horn:
Stefán Rafn Sigurmannsson
Bjarki Már Elísson
Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson
Ólafur Guðmundsson
Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson
Gísli Þorgeir Kristjánsson
Haukur Þrastarson
Hægri skytta:
Ómar Ingi Magnússon
Teitur Örn Einarsson
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson
Sigvaldi Guðjónsson
Lí numenn:
Arnar Freyr Arnarsson
Ýmir Örn Gí slason
Varnarmenn:
Daníel Þór Ingason
Ólafur Gústafsson
Olísdeild kvenna fór af stað að nýju eftir jólafrí
Olísdeild kvenna í handbolta hófst aftur í gærkvöldi eftir tæplega tveggja mánaða jólafrí. Valur fékk ÍBV í heimsókn í 11. umferð deildarinnar. Fyrir
leikinn voru liðin jöfn að stigum á toppnum með 15 stig hvort. Lovísa Thompson skoraði eitt marka Vals í öruggum sigri liðsins, FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tveir dagar eru í það að
íslenska karlalandsliðið
í handbolta hefji leik á
HM sem haldið verður í
Þýskalandi annars vegar
og Danmörku hins vegar
að þessu sinni. Íslenska
liðið fékk slæmar fregnir
í aðdraganda mótsins.
✿ Leikmannahópur
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-5
5
3
8
2
1
F
7
-5
3
F
C
2
1
F
7
-5
2
C
0
2
1
F
7
-5
1
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K