Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 16
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5000
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarfor
maður Samherja, sækist eftir kjöri í
stjórn Haga á hluthafafundi félagsins
sem verður haldinn 18. janúar næst
komandi, samkvæmt heimildum
Markaðarins. Frestur til að gefa kost
á sér til setu í stjórn rann út síðast
liðinn föstudag en Samherji, sem fer
með 9,22 prósenta hlut í Högum,
hafði óskað eftir því við stjórn félags
ins að boðað yrði til hluthafafundar
þar sem stjórnarkjör væri á dagskrá.
Þá mun Ingibjörg Stefanía Pálma
dóttir, aðaleigandi Fréttablaðsins,
einnig tefla fram stjórnarmanni í
kjörinu en félög í hennar eigu eiga
um fimm prósenta hlut í Högum,
stærsta smásölufyrirtæki landsins.
Tillögur tilnefningarnefndar Haga
um frambjóðendur til stjórnar Haga
verða tilkynntar á föstudag.
Samkvæmt heimildum Markað
arins hyggst Kristín Friðgeirsdóttir,
núverandi stjórnarformaður smá
sölurisans, ekki sækjast eftir endur
kjöri í stjórn en hún hefur setið í
stjórn Haga allt frá 2011. Hún vildi
ekkert tjá sig um málið í samtali við
Markaðinn þegar eftir því var leitað.
Samherji er stærsti einkafjárfestir
inn í hluthafahópi Haga en sjávar
útvegsfyrirtækið eignaðist rúmlega
fimm prósenta hlut í félaginu við
samruna Haga og Olís sem kom til
framkvæmda þann 30. nóvember
í fyrra. Þá hefur félagið einnig gert
framvirka samninga um kaup á 4,12
prósenta hlut í Högum til viðbótar.
Í tilkynningu Haga til Kauphallar
innar á mánudag kom fram að stjórn
endur félagsins hefðu lækkað af
komu spá fyrir yfirstandandi rekstrar
ár um 300 til 400 milljónir króna, eða
sem nemur sex til átta prósentum.
Ný afkomuspá Haga gerir ráð fyrir
að EBITDA félagsins – hagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta –
verði 4.600 til 4.700 milljónir króna
á yfirstandandi rekstrarári, sem hófst
í mars síðastliðnum.
Hlutabréfaverð Haga lækkaði um
rúmlega sex prósent í kjölfar afkomu
viðvörunarinnar og stóð gengi bréfa
félagsins í 42,3 krónum á hlut við
lokun markaða í gær. – hae
Samherji teflir fram Eiríki í stjórn Haga
Íslandsbanki hefur ákveðið að hefja
að nýju söluferli á eignarhlut bank
ans í Borgun og bjóða þannig til sölu
63,5 prósenta hlut sinn í greiðslu
kortafyrirtækinu. Alþjóðlega ráðgjaf
arfyrirtækið Corestar Partners, sem
er ráðgjafi Íslandsbanka við söluna,
leggur um þessar mundir lokahönd
á stutta fjárfestakynningu sem gert er
ráð fyrir að verði send á fjárfesta og
aðra markaðsaðila í þessum mánuði,
samkvæmt heimildum Markaðarins.
Sem kunnugt er réð bankinn
Corestar Partners í september 2016
til ráðgjafar við að móta framtíðar
stefnu um hlut sinn í Borgun. Sölu
ferlinu var hins vegar sjálfhætt eftir
að Fjármálaeftirlitið gerði í febrúar
2017 alvarlegar athugasemdir við
eftirlit kortafyrirtækisins með pen
ingaþvætti og fjármögnun hryðju
verka. Eftirlitið krafðist þess meðal
annars að Borgun sliti viðskipta
sambandi sínu við tíu erlend fyrir
tæki vegna þess að félagið kannaði
ekki áreiðanleika upplýsinga um þau
með fullnægjandi hætti.
Heimildir Markaðarins herma að
minnihlutaeigendur Borgunar muni
jafnframt horfa til þess að selja hlut
sinn í fyrirhuguðu söluferli. Eignar
haldsfélagið Borgun, sem er samlags
félag í eigu meðal annars Stálskipa og
Einars Sveinssonar fjárfestis, á 32,4
prósenta hlut í Borgun.
Tvö stærstu greiðslukortafyrir
tæki landsins eru nú til sölu en eins
og fram hefur komið réð Arion banki
nýverið bandaríska fjárfestingar
bankann Citi sem ráðgjafa við sölu á
Valitor, dótturfélagi bankans. Áform
ar bankinn að selja félagið, að hluta
eða í heild, í opnu söluferli.
Deilur innan hluthafahóps Borg
unar hafa sett mark sitt á starfsemi
greiðslukortafyrirtækisins. Þann
ig var greint frá því í Markaðnum í
mars í fyrra að stjórn Borgunar teldi
það ámælisvert ef Íslandsbanki hefði
komið því á framfæri við FME að
félagið hefði ekki staðið við skuld
bindingar sínar um að eiga ekki í
viðskiptum við fyrirtæki sem væru
á sérstökum bannlista sem bankinn
hafði útbúið.
Sendi stjórn fyrirtækisins bréf til
stjórnar Íslandsbanka þar sem sagði
að niðurstaða sameiginlegs starfs
hóps, sem var skipaður til að kanna
hlítni Borgunar við yfirlýsingu sem
þáverandi forstjóri undirritaði gagn
vart bankanum um greiðslumiðlun
í október 2016, hefði leitt í ljós að
engin gögn sýndu fram á slík brot.
Ekki var samstaða um það innan
hópsins að Borgun hefði starfað í
samræmi við yfirlýsinguna. Þann
ig var það skoðun fulltrúa bankans
að Borgun hefði mátt vera það ljóst
að félagið hefði miðlað alþjóðlegum
greiðslum til aðila sem störfuðu í
atvinnugreinum sem væru sérstak
lega útsettar fyrir peningaþvætti
eftir að yfirlýsingin var undirrituð
og þangað til bannlistinn tók gildi.
Þá var í frétt ViðskiptaMoggans
sagt frá óánægju vegna þess sem
heimildarmenn blaðsins kölluðu
„óeðlileg“ afskipti Birnu Einars
dóttur, bankastjóra Íslandsbanka,
af ráðningarferli nýs forstjóra,
Sæmundar Sæmundssonar, í lok árs
2017. Fullyrt var að Birna hefði þrýst
á stjórnarmenn um að ráða Katrínu
Olgu Jóhannesdóttur, formann Við
skiptaráðs, í starfið. Birna hafnaði
því að bankinn hefði ákveðið að
skipta út tveimur af þremur stjórnar
mönnum sínum vegna ákvörðunar
stjórnarinnar um að ráða Sæmund.
Þá hefði hún aðeins hvatt stjórn
Borgunar til að taka viðtöl við kand
ídata af báðum kynjum.
Hagnaður Borgunar nam 350
milljónum 2017 og dróst umtalsvert
saman frá fyrra ári. Til samanburðar
var hagnaður af reglulegri starfsemi
1,6 milljarðar 2016 og heildarhagn
aður 7,8 milljarðar. Þar af komu 6,2
milljarðar til vegna sölu félagsins á
hlut í Visa Europe.
hordur@frettabladid.is
kristinningi@frettabladid.is
Býður eignarhlut sinn
í Borgun til sölu á ný
Söluferli á 63,5 prósenta hlut Íslandsbanka í Borgun hefur verið endurvakið.
Alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Corestar Partners er ráðgjafi bankans í ferlinu.
Minnihlutaeigendur horfa jafnframt til þess að selja sinn hlut í kortafyrirtækinu.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Bankinn horfir til þess að selja hlut sinn í Borgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Eiríkur S.
Jóhannsson,
stjórnarformaður
Samherja.
15
milljarðar króna voru tekjur
Borgunar árið 2017.
Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og
fyrrverandi forstjóri Skeljungs,
vinnur nú að því að ganga frá kaup
um á fimm eldsneytisstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu, ásamt vöru
merkinu „Dælunni“, af N1. Fjár
festingin er gerð í gegnum eignar
haldsfélagið Einir, sem er í eigu
Einars Arnar, og ættu kaupin að
klárast á næstu vikum, samkvæmt
heimildum Markaðarins.
Eldsneytisstöðvarnar, sem eru
staðsettar við Fellsmúla, Holta
garða, Hæðasmára, Salaveg og í
Mjódd, voru auglýstar til sölu í ágúst
síðastliðnum á grundvelli sáttar N1
og Samkeppniseftirlitsins vegna
kaupa olíufélagsins á smásölukeðj
unni Festi en samkvæmt sáttinni
skal salan vera til „nýrra óháðra“
keppinauta á eldsneytismarkaði.
Salan á stöðvunum fimm og Dæl
unni er háð samþykki Samkeppnis
eftirlitsins en í sátt eftirlitsins við
N1 kemur meðal annars fram að
samkeppnisyfirvöld muni synja
sölu ef hún eyðir ekki samkeppnis
legum vandamálum eða skapar ný
samkeppnisleg vandamál, kaupandi
telst ekki trúverðugur nýr keppi
nautur eða salan brýtur í bága við
skilyrði sáttarinnar.
EBITDA stöðvanna – hagnaður
fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta – var 97 milljónir króna
án sameiginlegs kostnaðar og
fjárbindingar frá þriðja fjórð
ungi 2017 til annars fjórðungs
2018 og hefur hækkað um 25
prósent frá árinu 2015 þegar
EBITDA stöðvanna var 78 millj
ónir króna.
Fram kemur í samantekt
f y r i r t æ k ja rá ð g ja f a r
Landsbankans, sem
hefur umsjón
með söluferl
inu fyrir hönd N1, að stöðvarnar séu
vel staðsettar og hafi verið í rekstri
í 14 til 17 ár. Selt magn og framlegð
hafi farið vaxandi á undanförnum
árum. Þannig seldu stöðvarnar 3,5
milljónir lítra árið 2015, 3,8 millj
ónir árið 2016 og 4,2 milljónir á
síðasta ári. Þá segir að tækifæri geti
falist í því að fá leyfi til þess að færa
eldsneytisstöð innan sveitarfélags
en fá dæmi séu um opnun nýrra
stöðva á höfuðborgarsvæðinu á
liðnum árum.
Einar Örn, sem var forstjóri Skelj
ungs á árunum 2009 til 2014, situr
meðal annars í stjórn TM og á um
2,9 prósenta hlut í tryggingafélag
inu í gegnum fjárfestingafélagið
Einir. Þá er hann á meðal hluthafa
í Stoðum, einu stærsta fjárfestinga
félagi landsins, ásamt meðal annars
viðskiptafélögum sínum Jóni
Sigurðssyni, fyrrverandi stjórn
armanni í N1, Magnúsi
Ármann, fjárfesti og fyrr
verandi stjórnarmanni
FL Group, og Örvari
Kjærnested, fjárfesti
og stjórnarmanni í TM.
Einar Örn er einnig á
meðal stórra hluthafa
í Gámaþjónustunni og
Arnarlaxi, stærsta fiskeld
isfyrirtæki landsins. – hae
Einar Örn að kaupa fimm
bensínstöðvar af N1
Einar Örn
Ólafsson.
“Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi
almennings að upplýsingum og ráðgjöf
um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,,
Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is
Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir
97
milljónir var EBITDA stöðv-
anna á þriðja fjórðungi 2017
til annars fjórðungs 2018.
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-5
0
4
8
2
1
F
7
-4
F
0
C
2
1
F
7
-4
D
D
0
2
1
F
7
-4
C
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K