Fréttablaðið - 09.01.2019, Qupperneq 18
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem hefur þróað tækni við meðhöndlun augnsjúkdóma og
á rætur að rekja til Háskóla Íslands
og Landspítalans, hefur samið við
fjárfesta um fjármögnun upp á 15,5
milljónir svissneskra franka eða sem
jafngildir tæplega 1,9 milljörðum
króna.
Fjármögnunin var leidd af fjárfest-
ingafélaginu Tekla Capital Manage-
ment í Boston en auk félagsins lögðu
félagið Nan Fung Life Sciences, sem
er hluti af kínversku samstæðunni
Nan Fung Group, og fyrri hluthafar
Oculis lyfjaþróunarfyrirtækinu til fé.
Félögin Tekla Capital Manage-
ment og Nan Fung Life Sciences
koma ný inn í hluthafahóp Oculis og
tekur Henry Skinner, framkvæmda-
stjóri hjá fyrrnefnda félaginu, sæti
í stjórn fyrirtækisins í stað Stefáns
Jökuls Sveinssonar.
Fram kom í Markaðinum í janúar
í fyrra að Oculis hefði samið við leið-
andi alþjóðlega vaxtarsjóði, Bay City
Capital, Novartis Venture Fund og
Pivotal bio Venture Partners, ásamt
Brunni vaxtarsjóði og Silfurbergi um
jafnvirði 2,1 milljarðs króna hluta-
fjáraukningu. Oculis hefur þannig
aflað sér samanlagt liðlega fjögurra
milljarða króna í nýtt hlutafé á um
það bil einu ári.
Samhliða hlutafjáraukningunni
í byrjun síðasta árs var ákveðið að
Oculis opnaði nýjar höfuðstöðvar í
Lausanne í Sviss.
Oculis var stofnað árið 2003 af
dr. Einari Stefánssyni, prófessor í
augnlækningum, og dr. Þorsteini
Loftssyni, prófessor í lyfjafræði. Þeir
leiða enn rannsóknir og nýsköpun
fyrirtækisins. Starfsemi félagsins
byggir á einkaleyfavarinni tækni
sem gerir mögulegt að meðhöndla
sjúkdóma í afturhluta augans með
augn dropum. – kij
Leggja Oculis til 1,9 milljarða króna
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis hefur þróað augndropa sem koma í stað
augnástungu við meðferð sjúkdóma í augunum. LJÓSMYND/OCULIS
4,7
milljarðar króna var heildar-
virði Oculis í bókum Brunns
vaxtarsjóðs í lok árs 2017.
Fyrirtækið The Icelandic Milk and Skyr Corpora-tion, sem var stofnað af Sigurði Kjartani Hilm-arssyni árið 2006 og var í um 75 prósenta eigu
Sigurðar, ættingja hans, vina og
annarra sem þeim tengjast, var selt
til franska mjólkurrisans Lactalis
fyrir að lágmarki 370 milljónir dala
í byrjun síðasta árs. Það jafngildir
um 40 milljörðum króna miðað við
þáverandi gengi.
Fram kemur í uppgjöri svissneska
mjólkurframleiðandans Emmi
Group fyrir fyrri helming síðasta
árs, sem birt var síðastliðið haust, að
framleiðandinn hafi bókfært hjá sér
hagnað upp á 80,9 milljónir dala við
sölu á öllum 22 prósenta hlut sínum
í skyrfyrirtækinu. Eftir skatta nam
söluhagnaðurinn 58,9 milljónum
dala. Ekki liggur fyrir hvert virði
eignarhlutarins var í bókum Emmi
Group fyrir söluna til Lactalis en ljóst
er að sú fjárhæð var óveruleg.
Mjólkurframleiðandinn kom fyrst
inn í hluthafahóp The Icelandic Milk
and Skyr Corporation árið 2012 með
kaupum á 11 prósenta hlut en ári
síðar fór hlutur framleiðandans í
24 prósent. Framleiðandinn sá jafn-
framt um framleiðslu á skyrinu, sem
er selt undir vörumerkinu Siggi’s, í
verksmiðju sinni í uppsveitum New
York ríkis í Bandaríkjunum. Emmi
Group fór með 22 pró-
senta hlut í skyrfyrir-
tækinu fyrir söluna til
Lactalis í janúar í fyrra og
var þá eini fagfjárfestirinn
í hluthafahópnum.
Margfölduðu fjár
festinguna
Ljóst er að þeir sem lögðu
fyrirtæki Sigurðar til fé, líkt
og Emmi, margfölduðu fjárfestingu
sína, jafnvel þannig að þeir fengu
hana meira en hundraðfalt til baka.
Ingimundur Sveinsson arkitekt og
fjölskylda voru á meðal stærstu hlut-
hafa The Icelandic Milk and Skyr
Corporation með um fimmtungs-
hlut, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins, og fengu þau því um það bil
átta milljarða króna í sinn hlut við
söluna. Félag í eigu fjölskyldunnar,
Eldhrímnir, setti fjármuni í skyr-
fyrirtækið á árunum 2006, 2008 og
2013 og var hlutur félagsins metinn
á kostnaðarverði, 51 milljón króna,
í bókum þess í lok árs 2017.
Að því gefnu að umrædd fjárhæð,
51 milljón króna, hafi verið eina
hlutafjárframlag fjölskyldunnar
til skyrfyrirtækisins nam innri
ávöxtun fjárfestingar hennar hátt í
80 prósentum á ári á árunum 2006
til 2017, samkvæmt útreikningum
Markaðarins. Mætti þá með öðrum
orðum segja að fjölskylda Ingimund-
ar hafi 157-faldað fjárfestingu sína.
Sonur Ingimundar, Sveinn, var á
meðal fyrstu samstarfsmanna Sig-
urðar Kjartans þegar hann stofnaði
fyrirtækið í New York árið 2006
og hannaði meðal annars umbúð-
irnar um skyrið. Sveinn var á meðal
stærstu hluthafa fyrirtækisins en
eignarhlutur Sigurðar Kjartans nam,
eftir því sem Markaðurinn kemst
næst, um 25 prósentum.
Ingimundur, sem rekur arkitekta-
stofu í Reykjavík, var einn nokk-
urra íslenskra fjárfesta sem keyptu
lyfjaverksmiðjur á Spáni árið 2005
í gegnum félagið Invest
Farma. Flestir hlut-
hafanna seldu sumarið
2013 samtals 61 pró-
sents hlut í lyfjafyrir-
tækinu til annars vegar
Framtakssjóðs Íslands
og hins vegar Burðaráss
eignarhaldsfélags, sem
var þá framtakssjóður í
eigu Straums fjárfestinga-
banka, fyrir ríflega tíu milljarða.
Ingimundur á jafnframt lítinn hlut
í Hval sem og í fjárfestingafélaginu
Alfa en síðarnefnda félagið, sem er
að mestu í eigu Benedikts og Einars
Sveinssona, bræðra Ingimundar, fer
með um 65 prósenta hlut í Kynnis-
ferðum og 95 prósenta hlut í Tékk-
landi bifreiðaskoðun.
Tók við sér á árinu 2013
Eins og kunnugt er var tilkynnt um
kaup Lactalis, stærsta mjólkurfyrir-
tækis heims með árlega veltu upp
á jafnvirði 2.100 milljarða króna,
á öllu hlutafé í The Icelandic Milk
and Skyr Corporation í janúar-
byrjun í fyrra. Fjárfestingabankinn
JP Morgan leiddi söluferlið.
Vöxtur skyrfyrirtækisins hefur
verið hraður á undanförnum árum
og eru vörur þess nú fáanlegar í um
25 þúsund verslunum í öllum ríkjum
Bandaríkjanna. Fram kom í Frétta-
blaðinu undir lok árs 2017 að talið
væri að velta fyrirtækisins ykist um
liðlega 50 prósent á árinu 2018 og
yrði þá samtals um 200 milljónir
dala, jafnvirði tæplega 24 milljarða
króna.
Frá árinu 2013 hefur skyrið verið
sú jógúrttegund sem hefur vaxið
hvað hraðast á Bandaríkjamarkaði
og er talið að fyrirtækið sé með um
það bil tveggja prósenta markaðs-
hlutdeild í jógúrtsölu þar í landi.
Sigurður Kjartan hefur lýst því í
samtali við fjölmiðla hvernig hann
hóf tilraunir með skyrgerð í eldhús-
inu hjá sér í New York eftir gamalli
uppskrift frá árinu 1963 sem móðir
hans sendi honum í faxi frá Íslandi.
Áður en skyrframleiðslan hófst
starfaði hann við fyrirtækjaráðgjöf
hjá Deloitte á Wall Street en sagði
upp þegar skyráhuginn kviknaði. Í
kjölfarið kom hann framleiðslunni af
stað á mjólkurbúi í uppsveitum New
York og vörurnar enduðu í hillum
stórverslana á borð við Whole Foods
og Target.
„Auðvitað efast maður stundum
en fyrir mér var það í raun aldrei í
boði að gefast upp,“ sagði Sigurður
Kjartan í samtali við mbl.is á síðasta
ári.
Hluthafarnir hefðu sýnt honum
þolinmæði og skilning á meðan
hann byggði fyrirtækið upp og jafn-
framt hefði hann ávallt fengið góð
viðbrögð við skyrinu. „Þannig að það
var margt sem gerði það að verkum
að maður hélt í vonina. Síðan hafa
síðustu þrjú ár verið mjög góð. Þá
fór að vera gangur í þessu.“
Siggi’s skyr selt fyrir minnst 40 milljarða
Sala svissneska mjólkur-
framleiðandans Emmi á
22 prósenta hlut sínum
í The Icelandic Milk and
Skyr Corporation skilaði
félaginu 81 milljónar
dala hagnaði. Miðað við
það var söluverð skyrfyr-
irtækisins í það minnsta
40 milljarðar króna. Ís-
lenskir fjárfestar marg-
földuðu fjárfestingu sína.
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
Sigurður Kjartan Hilmarsson stofnaði The Icelandic Milk and Skyr Corporation í New York árið 2006.
Markaðsvirði keppinauta Marels, sem skráðir eru í kauphallir erlendis, lækk-
aði um 20-30 prósent á liðnu ári. Ef
markaðsaðstæður verða með sama
hætti kann að vera að tvískráning
Marels muni ekki vera hluthöfum
jafn happadrjúg og vonir stóðu til.
Að sama skapi hækkaði gengi Mar-
els um 15 prósent í krónum talið en
fjögur prósent mælt í evrum. Verð-
kennitölur Marels eru um 15-20
prósent lægri en stórra keppinauta.
Þetta kemur fram í nýju verðmati frá
Hagdeild Landsbankans, sem ritað
er á ensku.
Að því sögðu, starfi Marel á mark-
aði þar sem mikið sé um minni
fyrirtæki en þau hafi verið að sam-
einast. Tvíhliðaskráning gæti liðkað
fyrir sameiningum fyrir Marel og
mögulega vakið frekari athygli á
fyrirtækinu hjá stærri keppinautum
sem hafi hug á að sameinast eða
taka yfir reksturinn. Auk þess yrði
það líklegra að fjárfestar, sem taki
félög yfir, myndu beina sjónum
sínum að því.
Loks, segir í verðmatinu, ættu
fjárfestar sem reiknað hafa með
að gengi hlutabréfa Marels yrði
stöðugra í erlendri kauphöll en í
þeirri íslensku að endurskoða þá
afstöðu af því að að jafnaði hafi
gengi helstu keppinauta sveiflast
mun meira á markaði á undan-
förnum fimm árum.
Forsvarsmenn Marels hafa sagt
að stefnt sé að því að skrá félag-
ið tvíhliða í erlenda kauphöll. Til
skoðunar er skráning í Amsterdam,
Kaupmannahöfn eða London. Lík-
legt er að niðurstaðan verði kynnt á
aðalfundi í ár ásamt ósk um að auka
hlutaféð um 15 prósent til að styðja
við skráninguna. Landsbankinn
telur líklegast að félagið verði skráð
á markaði í Amsterdam eða Kaup-
mannahöfn.
Landsbankinn mælir með kaup-
um í Marel. Verðmatið hækkaði úr
456 krónum á hlut í 466 en í evrum
talið lækkaði það um 4 prósent. Mat
Landsbankans var 27 prósent hærra
en gengi á markaði við birtingu
matsins á mánudag. – hvj
Krefjandi aðstæður fyrir
tvíhliðaskráningu Marels
Árni Oddur
Þórðarson,
forstjóri Marels.
200
milljónir dala var áætlað að
velta skyrfyrirtækisins yrði
á árinu 2018, eða jafnvirði
tæplega 24 milljarða ís-
lenskra króna
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-6
4
0
8
2
1
F
7
-6
2
C
C
2
1
F
7
-6
1
9
0
2
1
F
7
-6
0
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K