Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 22
hafa. Stærsti hluthafi Cori pharma
með 38 prósenta hlut hlut er TF II í
stýringu Íslenskra verðbréfa, Bjarni
á 19 prósenta hlut og VÍS á 18,9
prósenta hlut. Á meðal annarra
hluthafa er Hof í eigu bræðranna
Sigurðar Gísla og Jóns Pálmasona og
níu manna hópur frumkvöðla sem
kom viðskiptunum í kring sem
eru flestir fyrrverandi starfsmenn
Actavis.
Víða skortur á framleiðslugetu
Er ekki erfitt að sækja aftur í gamla
samninga því fyrirtækin hafa eflaust
hafið framleiðslu hjá öðrum verk-
smiðjum?
„Það þarf að hafa fyrir því að
sækja þau viðskipti. Víða í heim
inum er skortur á framleiðslugetu
fyrir ákveðin lyf og því er okkur
tekið fagnandi. Okkar sérhæfing
er að framleiða lyf sem eru flókin í
framleiðslu að því leyti að við erum
mögulega að framleiða sama lyfið
fyrir fimm markaði í Evrópu sem
allir hafa sitt eigið tungumál. Því
þurfa pakkningarnar og fylgiseðlar
að vera á ólíkum tungumálum.
Margar stórar verksmiðjur á Ind
landi og Kína búa ekki yfir ferl
unum sem þarf til að sinna slíkum
verkefnum.“
Hvað þýðir Coripharma?
„Cori er japanskt orð og þýðir ís.
Það er skemmtilegt og þjált. Stefán
Jökull Sveinsson, einn frumkvöðl
anna sem stofnuðu Cori pharma,
lagði til þetta nafn og okkur líkaði
vel við hrynjandina og möguleikann
á að starfa undir því nafni.“
Hvernig kom það til að þið ákváð-
uð að kaupa lyfjaverksmiðju Actavis
í Hafnarfirði?
„Actavis var gríðarlega öflugt
fyrirtæki sem hafði stækkað með
sívaxandi eigin framleiðslu og fyrir
tækjakaupum. Það hafði keypt fyrir
tæki í Evrópu og Bandaríkjunum og
var orðið ansi umsvifamikið. Actavis
varð að lokum sjálft skotmark og var
yfirtekið.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Wat
son reið á vaðið og keypti það,
það var síðan yfirtekið af Allergan
á Írlandi og loks keypti ísraelska
fyrirtækið Teva það. Þau kaup gengu
í gegn árið 2016. Teva tilkynnti að
til að hámarka samlegð í rekstri
fjölda fyrirtækja sem höfðu verið
keypt í gegnum árin yrði að fækka
framleiðslustöðum úr 80 í tólf. Verk
smiðjan á Íslandi var á meðal þeirra
sem var lokað um mitt ár 2017.
Starfsmenn, stjórnendur og fyrr
verandi stjórnendur Actavis sáu
sér leik á borði. Þeim þótti of mikil
verðmæti fólgin í fasteignum, tækj
um, þekkingu starfsfólks og þeim
kerfum sem hafði verið komið á
fót til að reka ekki lyfjaverksmiðju
hérna. Þessi hópur tók sig saman og
fékk fjárfesta að borðinu til þess að
fjármagna kaup á verksmiðjunni og
opna hana aftur.“
Lyf sem flókið er að pakka
Hvers vegna að reka verksmiðjuna á
Íslandi, þar sem kostnaður er hærri
en hjá keppinautum frá Asíu?
„Það er ekki hagkvæmt að fram
leiða öll lyf hér á landi. Kostnaður
verksmiðja á Indlandi er mun lægri.
Þær framleiða hundruð millj
óna taflna fyrir einn markað. Við
reynum ekki að keppa við þær. Við
munum framleiða nokkra tugi millj
óna í einu en getum framleitt einn
og hálfan milljarð taflna á ári. Okkar
sérstaða er að framleiða lyf sem flók
ið er að pakka og afhenda, eins og
ég kom inn á áðan, því pakkningar
og fylgiseðlar eru á ólíkum tungu
málum. Lyfin sem slík geta verið hin
sömu. Það þarf nefnilega að sigta
inn á ákveðinn hluta markaðarins
og vera bestur þar. Actavis tókst það.
Það er mikil samkeppni og hún
fer vaxandi. Þess vegna þarf að finna
sína hillu og halda sig á henni.“
Þurftuð þið að taka verksmiðjuna í
nefið og kaupa ný tæki og tól?
„Alls ekki. Það var tækifærið sem
við sáum. Í stuttu máli sagt, og ein
faldað, gengum við inn, kveiktum
á tækjunum og hófum framleiðslu.
Það tók okkur hálft ár að koma verk
smiðjunni aftur í gang. Það er vegna
þess að henni var pakkað niður
árið 2017 með það fyrir augum að
hægt væri að taka hana auðveldlega
upp og setja saman. Það sem við
gerðum í þetta hálfa ár var að setja
tækin saman aftur og dusta rykið af
gæðaferlum sem voru til staðar. Það
þurfti reyndar aðeins að aðlaga þá
að stefnu Coripharma. Við fengum
leyfi til framleiðslu frá Lyfjastofnun
í desember.
Munurinn á stefnu Actavis og
Coripharma er að við framleiðum
lyf í verktöku fyrir aðra. Við þróum
ekki eigin lyf og eigum ekki mark
aðsleyfi heldur tökum við pönt
unum frá öðrum, sem eiga markaðs
leyfi og þurfa að láta framleiða fyrir
sig.“
Coripharma framleiddi sína
fyrstu vöru í desember. Leyfið frá
Lyfjastofnun var veitt á þriðju
degi og framleiðsla á sýklalyfi fyrir
þrjú fyrirtæki hófst á fimmtudegi.
„Við vorum komnir með pant
anir og framleiddum upp í þær. Við
erum með röð af samningum sem
við erum að ganga frá um þessar
mundir.“
Fo r sva r s m e n n Co r i pharma, sem nýlega var stofnað til að kaupa og reka lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði, horfa fyrst og fremst til
þess að framleiða lyf sem hafa áður
verið framleidd í verksmiðjunni.
Þetta segir Bjarni Þorvarðarson for
stjóri í samtali við Markaðinn.
Bjarni Þorvarðarson, forstjóri Coripharma, stýrði áður Hibernia Networks í 13 ár. Fyrirtækið var selt fyrir 610 milljónir dollara, jafnvirði 72 milljarða króna, árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Bjarni Þorvarðarson,
forstjóri Coripharma
sem keypti lyfjaverk-
smiðju Actavis í Hafnar-
firði, reiknar með að
fyrir tækið verði rekið
með hagnaði á seinni
hluta næsta árs. Starfs-
menn eru nú 37 en
stefnt er á að þeir verði
um 150 við lok árs 2020.
Okkar sérstaða er
að framleiða lyf
sem flókið er að pakka og
afhenda, því pakkningar
og fylgiseðlar eru á ólíkum
tungumálum.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Fara á fullt
skrið á átján
mánuðum
„Fyrrverandi viðskiptavinir verk
smiðjunnar þekkja hana afar vel.
Þeir vita upp á hár hvað verksmiðj
an getur. Þekkingin á framleiðsl
unni er enn til staðar því við réðum
fyrrverandi starfsfólk Actavis,“ segir
hann.
„Við viljum halda áfram að fram
leiða samheitalyf sem fara á markað
í Evrópu. Sá markaður vex um 57
prósent á ári enda erum við sífellt
að verða eldri og það kallar á aukna
lyfjatöku. Tækin og þekkingin sem
þarf til að stíga inn á þennan mark
að eru til staðar hér í Hafnarfirði.“
Af 37 starfsmönnum er Bjarni
sá eini sem hafði ekki áður unnið
fyrir Actavis. „Ég segi stundum til
gamans að hér vinni 37 manns og
36 af þeim hafa gríðarlega reynslu
og þekkingu af því að starfa í lyfja
geiranum. Langflestir hafa unnið
hjá Actavis og fyrirrennurum þess
í fjöldamörg ár, jafnvel í 20 ár eða
lengur,“ segir hann.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
fyrrverandi forstjóri Actavis á
Íslandi, er stjórnarformaður Cori
pharma og hluthafi í fyrirtækinu.
Ottó Björn Ólafsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Delta sem er
forveri Actavis, er einnig í hópi hlut
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-8
B
8
8
2
1
F
7
-8
A
4
C
2
1
F
7
-8
9
1
0
2
1
F
7
-8
7
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K