Fréttablaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 550 5769 | Starri Freyr Jóns-
son, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ég var orðinn þreyttur á garð-húsgögnum sem urðu ónýt og ljót eftir veturinn en svo bað
konan mig um að smíða handa sér
útihúsgögn og ég kemst sjaldnast
upp með að fresta því sem hún
biður mig um,“ segir Jón Axel og
skellir upp úr.
Úr varð að eiginkonan, María
B. Johnson, teiknaði upp útlit
á draumaborðinu og Jón Axel
smíðaði fyrir hana veglegt borð og
bekki í garðinn.
„Síðan hefur þetta undið upp á
sig og orðið að skemmtilegu hobbíi
en ég smíða bara fyrir þá sem ég
þekki. Þetta er eins og í frímúrara-
reglunni, þangað fer enginn inn
nema að þekkja frímúrara og fá
meðmæli, og því þarf að tala við
mann sem þekkir mig til að komast
í borðin,“ segir Jón Axel og hlær
dátt.
Það var í ágúst 2017 sem Jón Axel
rak smiðshöggið á fyrsta borðið.
„Ég er nú ekkert að hamast en hef
smíðað fyrir vini mína og fjölskyldu
og engin tvö borð er eins. Þau eru
einstakt handverk sem ég nostra
við af alúð og umhyggju fyrir þá
sem ég smíða fyrir,“ útskýrir Jón
Axel sem stefnir ekki á fjöldafram-
leiðslu húsgagnanna.
„Ég smíða bara þegar ég er í stuði
og aldrei af kvöð, og mikilvægt að
leyfa því að vera þannig. Því miður
geta ekki allir fengið borð því ég
smíða ekki fyrir hvern sem er og
bara þeir sem ég treysti til að hugsa
vel um þau fá sett í garðinn eða
sumarbústaðinn,“ útskýrir Jón Axel.
„Að smíða er mitt jóga. Ég er
heppinn af hafa aðstöðu þar sem
ég get smíðað og fínt að geta skotist
frá Excel-vinnunni, farið úr jakka-
fötunum yfir í vinnugallann og sett
músíkina í botn sem ég fæ ekki að
spila heima, en ég fæ til dæmis aldr-
ei að spila gott kántrí heima í stofu,“
segir Jón Axel kíminn.
Með smiði í blóðinu
Jón Axel ber nöfn afa sinna, Jóns
Hannessonar húsasmíðameistara
og Axels Helgasonar módelsmiðs.
„Það er kannski þess vegna sem
ég er nú óvænt dottinn í smíðina,“
veltir afastrákurinn Jón Axel fyrir Húsgögnin eru gerð til að þola allar íslenskar árstíðir.
Borð Jóns Axels eru af öllum stærðum og lengdum.
Engin tvö borð eða bekkir eru alveg eins.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
sér, en á uppvaxtarárunum dundaði
hann mikið með Jóni afa sínum við
smíðavinnuna.
„Ég er þó alls ekki handlaginn en
bý að því að báðir afar mínir voru
smiðir, og svo auðvitað pabbi líka.
Í gegnum þá hef ég lært sitt lítið af
hverju og er því sæmilega liðtækur
í pallasmíði og alls kyns tréverk í
sumarbústaðnum, en ég smíða alls
ekki hús!“ upplýsir Jón Axel.
Besti vinur Jóns Axels er fjöl-
miðlamaðurinn og húsasmiðurinn
Gunnlaugur Helgason, betur
þekktur sem Gulli byggir eða Gulli
Helga, en snemma á tíunda ára-
tugnum slógu þeir í gegn í einum
vinsælasta útvarpsþætti landsins,
Tveir með öllu.
„Gulli smitaði mig reyndar ekki
af smíðabakteríunni en hann
lærði húsasmíðina hjá afa og því
erum við kannski að taka blöð af
sömu greininni. Gulli er virkilega
vandaður og góður smiður, en ég
er hvorki lærður né sérlega lunkinn
við smíðarnar og því má alls ekki
bera okkur félagana saman þegar
kemur að smíðum,“ segir Jón Axel
hógvær.
Garðsettin smíðar hann úr gegn-
heilum furuborðum.
„Markmiðið er að búa til húsgögn
sem duga næstu hundrað árin, fjúka
ekki og er ekki hægt að stela. Þau
þola allar íslenskar árstíðir, níðsterk
og traust. Ég skila þeim af mér ófúa-
vörðum og hver og einn litar þau að
eigin smekk,“ segir Jón Axel sem nú
undirbýr smíðina úr íslenskri furu.
„Ég er líka að dunda mér við að
smíða borðstofuborð til innanhúss-
brúks en smíða auðvitað ekkert
nema með samþykki konunnar.
Við hjónin erum því saman í þessu
skemmtilega áhugamáli. Ég er svo
heppinn og vel giftur að smekkleg-
heitin koma aðallega frá Maríu en
fyrir mér liggur það sem er utan-
dyra og ég kaupi fagmenn í það sem
þarf að standsetja innanhúss.“
Galdurinn að eiga góða konu
Komið er ár síðan Jón Axel settist
aftur við hljóðnemann í útvarpi.
Þá var aldarfjórðungur síðan hann
gladdi útvarpshlustendur með rödd
sinni og persónuleika.
„Ég tók sæti Loga Bergmanns í
morgunþætti K100 þegar hann var
í lögbanninu í fyrra en svo þótti
honum betra að vera vakandi í
útvarpinu og fór yfir í síðdegisút-
varpið þar sem hann er virkilega
að glansa með Huldu Bjarna. Ég hef
gaman af því að vera í útvarpi. Þar
er líf, fjör og frelsi sem passar mér
vel í stað niðurnjörvaðrar rútínu,“
segir Jón Axel sem rífur sig á
lappir klukkan hálffimm á hverjum
morgni til að mæta í morgunþátt-
inn sem stendur frá 6 til 9.
„Maður þarf að taka bakaravakt-
ina á þetta og ég reyni að vakna á
undan Gulla sem er í morgunþætti
Bylgjunnar. Galdurinn við að vakna
hress og kátur er að eiga góða konu.
Hún vekur mig alltaf með kossi og
því hlakka ég alltaf svo til að fara að
sofa,“ segir Jón Axel kátur.
„Víst væri gaman að fara einhvern
tímann aftur í útvarpið með Gulla
og ætli við tökum ekki lokasprett-
inn saman þegar við verðum báðir
komnir með frítt í strætó,“ segir
Jón Axel sem átti útvarpsstöðina
Stjörnuna með Gulla og fleirum á
árunum 1987 til 1989.
„Ég skrásetti vörumerkið Stjarnan
FM í sumar að gamni mínu. Það er
gott að eiga það til ef vantar hobbí í
ellinni. Þá gerir maður kannski eitt-
hvað skemmtilegt; þegar við Gulli
fáum ekkert annað að gera,“ segir
hann og hlær.
Lengri útgáfa af viðtalinu við Jón
Axel er á frettabladid.is.
Jón Axel ber nafn tveggja afa sinna sem báðir voru afburða smiðir. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Víst væri gaman að
fara aftur í útvarpið
með Gulla Helga og ætli
við tökum ekki loka-
sprettinn saman þegar
við verðum báðir komnir
með frítt í strætó.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-8
6
9
8
2
1
F
7
-8
5
5
C
2
1
F
7
-8
4
2
0
2
1
F
7
-8
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K