Fréttablaðið - 09.01.2019, Side 26
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Útgefandi: Landvernd Veffang: www.landvernd.isÁbyrgðarmaður: Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir
1. Ungir umhverfissinnar
www.ungirumhverfissinnar.is
umhverfissinnar@gmail.com
1. Náttúruverndarsamtök Íslands
www.natturuvernd.is
natturuvernd@natturuvernd.is
1. Landvernd
www.landvernd.is
landvernd@landvernd.is
1. Fuglavernd
www.fuglavernd.is
fuglavernd@fuglavernd.is
1. Plastlaus september
www.plastlausseptember.is
info@plastlausseptember.is
2. Blái herinn
www.blaiherinn.is
tomas@blaiherinn.is
3
4
6
5
7
8
9
2 1
10
Vigdís segir að landvernd sé meðal þess mikilvægasta í hverju samfélagi, ekki
bara á Íslandi heldur í öllum
heiminum. „Ég hef alltaf lagt
áherslu á að vernda náttúruna.
Í forsetatíð minni vildi ég sér-
staklega auka skilning á náttúru-
vernd meðal barna. Þá fæddist
sú hugmynd að kenna börnum
að græða landið. Sjálf fékk ég alls
kyns gjafir, handprjónaða peysu
og fleira fallegt þegar ég heimsótti
byggðir landsins. Ég kom því alltaf
færandi hendi með þrjú tré sem ég
gróðursetti með börnum. Eitt fyrir
strákana, eitt fyrir stelpurnar og
eitt fyrir ófæddu börnin. Dreng-
irnir áttu að passa sína hríslu og
stúlkurnar sína og saman áttu þau
að passa hrísluna fyrir ófæddu
börnin. Það höfðu allir gaman af
þessu framtaki. Upp úr þessu spratt
sjóður sem nefndur er Yrkjusjóður
æskunnar. Skólar geta sótt um
styrk í þennan sjóð fyrir nemendur
til gróðursetningar. Með þessu
verkefni finna börn verndartilfinn-
ingu gagnvart landinu sínu,“ segir
Vigdís.
Skógarlundir Vigdísar eru um
allt land. Stærstur er Vinaskógur
í landi Kárastaða á Þingvöllum.
„Hulda Valtýsdóttir, þáverandi for-
maður Skógræktarfélags Íslands,
valdi þennan stað. Markmiðið
var að þjóðhöfðingar sem kæmu
hingað í opinbera heimsókn
gróðursettu í Vinaskógi. Elísabet
Englandsdrottning var sú fyrsta.
Hún spurði mig reyndar hvar
skógurinn væri enda var enginn
gróður þarna á þeim tíma. Núna er
Vinaskógur fallegur skógarlundur.
Meðal annars sextíu aspir sem
stjórnmálaflokkur gaf mér þegar ég
varð sextug,“ rifjar Vigdís upp og
bætir við: „Ég hef bent ungu fólki á
að kjörið sé að trúlofa sig í þessum
skógi.“
Vigdís hefur lagt áherslu á
náttúrvernd frá barnsaldri, lærði
það af móður sinni. „Þegar við
ferðuðumst um landið var ég upp-
tekin af náttúrunni og vildi njóta
hennar. Við systkinin vorum í sveit
í Hreppunum á sumrin og mér eru
minnisstæðir sandarnir í Rangár-
þingi handan Þjórsár. Í góðum
norðanþurrki var iðulega sandrok
sem skyggði á Eyjafjallajökul. Í dag
er búið að rækta þetta svæði upp
og binda landið.“
Þegar Vigdís er spurð hvernig
framtíð hún sjái varðandi nátt-
úruvernd, svarar hún: „Ég hef ekki
áhyggjur af framtíðinni. Áhyggjur
og kvíði draga úr orku og kjarki.
Ég hef mikla trú á landinu, því það
gefur mér og öðrum landsmönn-
um orku til að vernda það. Fólk er
meðvitaðra í dag um umhverfis-
vernd en áður. Það er afar þakkar-
vert að hafist sé handa við að moka
ofan í skurði sem hafa verið þvers
og kruss um landið. Mýrar jarðar-
innar eru lungu heimsins. Ég tók
þátt í að moka ofan í mikinn skurð
í Skálholti og þar spratt upp yndis-
fagurt mýrlendi með fuglasöng og
villtum gróðri.“
Getum við gert eitthvað betur?
„Við getum alltaf gert betur
þegar kemur að náttúruvernd,“
svarar Vigdís. „Það þarf til dæmis
að vanda valið hvar trjágróður er
settur niður. Hann má ekki skyggja
á þann fjársjóð sem íslensk náttúra
er. Víðsýni er aðal Íslands,“ segir
Vigdís og hvetur fólk til að fara vel
með landið sitt til framtíðar. „Það
er svo mikil gleði sem felst í því að
eiga ósnortið land. Land sem hefur
verið hlúð að með þeirri þekkingu,
sem við höfum aflað okkur um
hvernig það verður best varðveitt.
Land sem við öll eigum og njótum.
Ég er hreykin af því að fjölskylda
mín hugar vel að umhverfi sínu,
jafnt ungir sem eldri og allir eru á
kafi í því að flokka og plokka. Við
Íslendingar getum aldrei orðið
ósammála um að hafa verður nátt-
úruvernd í heiðri allar stundir.“
Aðal Íslands er víðsýni
Vigdís Finnbogadóttir hefur alla tíð verið umhugað um náttúruvernd og sýnt það í verki. Hún er
baráttukona þegar kemur að umhverfis- og landverndarmálum. Náttúran er mikilvæg fyrir alla.
Vigdís
hefur alltaf haft
mikinn metnað
fyrir landvernd.
Um allt land
eru skógar-
lundir sem urðu
til í forsetatíð
hennar.
MYND/ERNIR
3. Rjúkandi
www.rjukandi.org
rjukandi@rjukandi.is
4. Fjöregg
www.fjoregg.is
fjoregg@gmail.com
5. Náttúruverndarsamtök
Austurlands
www.nattaust.is
nattaust@gmail.com
6. Umhverfissamtök Austur-
Skaftafellssýslu
Á Facebook
umhverfisaskaft@gmail.com
7. Eldvötn – samtök um
náttúruvernd í Skaftárhreppi
Á Facebook
eldvotn@gmail.com
8. Vinir Þjórsárvera
www.thjorsarverfridland.is
gibba@pax.is
9. Náttúruverndarsamtök
Suðurlands
Á Facebook
natturuvernd@nss.is
10. Náttúruverndarsamtök
Suðvesturlands
www.nsve.is
nsve@nsve.is
Náttúruverndarsamtök á Íslandi
Landvernd og önnur nátt-úruverndarsamtök starfa saman og styðja hvert annað
í málefnum náttúrunnar. Um allt
land er að finna umhverfis- og
náttúruverndarsamtök sem láta sig
umhverfismál varða á fjölbreyttan
hátt og getur almenningur leitað
liðsinnis þeirra ef upp koma mál í
heimabyggð sem viðkomandi vill
vita meira um og fá að koma að
athugasemdum við ferlið. Árósa-
samningurinn tryggir þátttöku
almennings í ákvarðanatöku um
umhverfismál og veitir honum
kærurétt ef lög er þau varða
eru brotin og þar veita náttúru-
verndarsamtök eins og Landvernd
og önnur samtök á landsvísu
stuðning og leiðsögn. Vanti nátt-
úruverndarsamtök stuðning geta
þau leitað til Landverndar eftir
samstarfi og liðsinni. Kynntu þér
endilega starfsemi náttúruverndar-
samtaka í þinni heimabyggð og
hvaða málum þau hafa unnið að,
stuðningur almennings við slík
samtök skiptir lykilmáli. Ef ekki
eru samtök til staðar, þá er bara að
stofna slík!
Stuðningur almennings við
náttúruverndarsamtök lykilatriði
2 LANDVERND 50 ÁRA 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-7
2
D
8
2
1
F
7
-7
1
9
C
2
1
F
7
-7
0
6
0
2
1
F
7
-6
F
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K