Fréttablaðið - 09.01.2019, Síða 27
Þegar Landvernd var stofnuð fyrir fimmtíu árum þótti það djarft, metnaðarfullt og fram-
sækið framtak. Á þeim tíma var helst
horft til þess að græða landið, sem
stafaði ógn af gróðureyðingu. Það
hafði vantað umfjöllun um náttúru-
vernd á faglegum grunni, skilningur
á umhverfismálum var takmarkaður
og litlu fjármagni var veitt til þessara
málaflokka. Stofnun Landverndar
hvatti fólk til dáða,“ segir Rósbjörg
Jónsdóttir, formaður Landverndar.
Frá upphafi hafa samtökin haft
að leiðarljósi að efla fræðslu um
náttúru- og umhverfismál, sem og
faglega nálgun og umfjöllun. Í dag
eru félagar um 5.300 talsins og sífellt
fleiri vilja leggja samtökunum lið.
Landvernd sinnir margþættum
verkefnum og mörg þeirra eru afar
umfangsmikil. „Grænfáninn er þeirra
stærst en mér finnst það stórkostlegt
verkefni. Grænfáninn snýst um að
fræða íslenska nemendur um mikil-
vægi umhverfis og náttúruverndar
og er unnið í samstarfi við skóla á
öllum skólastigum. Ávinningurinn
af Grænfánaverkefninu hefur þegar
skilað sér til þeirrar kynslóðar sem er
að slíta barnsskónum og ljúka skóla-
göngunni og þessi fræðsla skilar sér
líka inn á heimilin,“ segir Rósbjörg.
Virkur þátttakandi
í stefnumótun
Meginhlutverk Landverndar er að
standa vörð um íslenska náttúru og
vera virkur þátttakandi í stefnumót-
un, fræðslu og upplýstri ákvarðana-
töku í málum er varða landnotkun,
auðlindir og umhverfi.
„Við leitumst við að veita stjórn-
völdum og framkvæmdaraðilum
aðhald í þessum efnum. Okkar
helsta gagnrýni er sú að ekki er
haft samráð við málsvara náttúr-
unnar fyrr en eftir að umdeildar
framkvæmdir eru langt komnar í
undirbúningi eða jafnvel hafnar. Það
ætti að byrja á réttum enda og spara
þannig bæði fé og fyrirhöfn. Í raun
þyrfti að vera samstarf og samtal fyrr
í öllum ferlum, það skiptir gríðar-
lega miklu máli,“ segir Rósbjörg og
bætir við að sjaldan eða aldrei hafi
krafa samfélagsins um áherslu á
umhverfismálin, náttúruvernd og
ábyrga stjórnun náttúruauðlinda
verið jafnmikil og um þessar mundir.
Rósbjörg segir aðspurð að senni-
lega séu samtökin orðin pólitískari
nú en áður og það endurspeglist í
þeim aðgerðum sem Landvernd
beitir, þ.e. kæruleiðum. „Við höfum
orðið að nota kæruleiðina vegna
þess að við erum kölluð svo seint að
borðinu, eða þegar búið er að gefa út
rannsóknar- og framkvæmdaleyfi.
Helst af öllu myndi ég vilja að við
þyrftum ekkert að kæra en eins og
staðan er í dag höfum við ekki um
annað að velja.“
Árósasamningurinn
og Heimsmarkmið
Landvernd tekur virkan þátt í stefnu-
mótun í umhverfismálum með
ýmsum hætti, s.s. með gerð umsagna
sem snerta fjölda þingmála, skipu-
lagsmála sveitarfélaga, áætlanagerð
og framkvæmdir á vegum einkaaðila
jafnt sem opinberra aðila. Þá beitir
Landvernd sér einnig í ákvarðana-
töku um umhverfismál, m.a. með því
að láta reyna á stjórnsýsluákvarðanir
og reka mál fyrir dómstólum og
leggja með því sitt af mörkum að
farið sé eftir settum leikreglum.
Landvernd byggir vinnu sína á
grundvelli Árósasamningsins og inn-
leiðingu hans í íslensk lög. „Árósa-
samningurinn hefur þegar tekið
gildi á Íslandi og veitir almenningi
og félagasamtökum sem starfa að
umhverfisvernd rétt til aðgangs að
upplýsingum, þátttöku í ákvarðana-
töku og aðgang að réttlátri málsmeð-
ferð í umhverfismálum. Mikilvægt
er að við framfylgjum honum
markvisst. Við vinnum líka með
Heimsmarkmiðin og þurfum öll
sem einstaklingar að tileinka okkur
þau. Heimsmarkmiðin styðja mörg
mál sem snúa að stefnu stjórnvalda
í umhverfismálum, svo sem ábyrga
neyslu, líf í landi og líf í vatni, og loft-
lagsmálin. Ef við sýnum ekki ábyrgð
sjálf gerir það enginn fyrir okkur,“
segir Rósbjörg.
Spurð hvað hver einstaklingur geti
sjálfur gert í umhverfismálum segir
Rósbjörg mikilvægt að fólk temji
sér nýja hugsun og umhverfisvænni
lífsstíl. „Sem dæmi er hægt að forðast
allt sem er einnota og hugsa um
hvað megi endurnýta. Það er hægt
að kaupa minna af varningi, nota
almenningssamgöngur, hjóla þegar
tækifæri gefst, slökkva ljósin eftir
sig og ekki láta vatnið renna óspart
úr krönunum, svo fátt eitt sé nefnt,“
bendir hún á.
Rósbjörg telur að næstu misseri
muni sífellt fleiri láta sig náttúruna
og umhverfismál varða, sama hvar
í flokki fólk stendur. „Ég vil að
starfsemi Landverndar verði enn
öflugri, sýnilegri og mikilvægari og
mun stuðla að því. Fræðslan verði
enn meiri og ég sé fyrir mér aukið
samstarf með grasrótinni og meiri
aktívisma. Ég trúi því að meðvitund
landans haldi áfram að aukast og
við séum að vinna saman að því að
framfylgja Heimsmarkmiðunum og
gera samfélagið okkar betra. Þótt við
séum lítil og fámenn þjóð getum við
haft áhrif á alþjóðavettvangi en þá
þurfum við að standa saman sem ein
heild. Við eigum að sýna frumkvæði,
taka djarfar ákvarðanir og vera
öðrum til fyrirmyndar. Við getum
alltaf gert betur.“
Í tilefni af fimmtíu ára afmælinu
mun Landvernd standa fyrir mörg-
um spennandi viðburðum og verk-
efnum allt þetta ár. „Ég vona að allir
landsmenn fagni með Landvernd
með ábyrgum hætti, takist á við
áskorun morgundagsins í umhverfis-
málum með breyttu hegðunar- og
neyslumynstri og fræðist um hvernig
við getum staðið enn betri vörð um
umhverfi og náttúruna og getum
stuðlað að því að núverandi og
komandi kynslóðir geti búið við
bestu mögulegu umhverfisgæði sem
völ er á. Stöndum saman um hreint
land, fagurt land,“ segir Rósbjörg að
lokum.
Ávinningurinn af
Grænfánaverkefn-
inu hefur þegar skilað sér
til þeirrar kynslóðar sem
er slíta barnskónum og
ljúka skólagöngunni.
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Eyþór Eðvarðsson, stjórnarfor-maður Votlendissjóðs, segir mikinn loftslagsávinning af
því að minnka kjötneyslu.
„Stærsta málið á heimsvísu þegar
kemur að loftslagsmálum er að
minnka brennslu á jarðefnaelds-
neyti. Fljótlega þar á eftir kemur
nauðsyn þess að draga úr kjöt-
framleiðslu, enda skýrir hún um 15
prósent af kolefnislosun heimsins.“
Á heimsvísu er það lamba- og
nautakjötsframleiðsla sem skilur
eftir sig stærsta kolefnissporið.
„Til að setja það í samhengi losar
það að rækta kíló af lambakjöti á
Íslandi um 29 kíló af koltvísýringi.
Eitt kíló af baunum losar hins vegar
aðeins eitt kíló af koltvísýringi,“
útskýrir Eyþór.
Hann segir Íslendinga eiga
heimsmet í kolefnisspori og þurfa
að grípa til aðgerða. „Kolefnis-
spor Íslendings er fjórtán tonn.
Innan Evrópusambandsins er það
sjö til átta tonn á einstakling og í
heiminum öllum um fjögur tonn.
Af þessu má sjá að við erum alger-
lega úti á túni og þurfum verulega
að fara að hugsa okkar gang þegar
kemur að hinum ýmsu lifnaðar-
háttum.“ Eyþór segir Íslendinga
til að mynda fljúga eins og enginn
sé morgundagurinn. „Þá erum við
með mikið af framræstu landi, sem
er meðal annars notað til að fram-
leiða kjöt, en frá því streyma um 70
prósent af þekktri losun Íslands. Þá
skilur ofbeit vegna ræktunar kinda-
kjöts eftir sig gríðarlega stórt kol-
efnisspor auk þess sem matarsóun
Íslendinga er gífurleg. Við hendum
um 30 prósentum af matnum sem
er framleiddur en það jafngildir
því að þriðja hvert lamb fari beint
í ruslið.“
Eyþór segir að það myndi
gagnast heiminum ef fleiri drægju
úr kjötneyslu eða gerðust græn-
metisætur og vegan. „Við höfum
samkvæmt okkar færustu vísinda-
mönnum tíu ár til að gjörbylta
lifnaðarháttum okkar og draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Í mínum huga verður það ekki
gert öðruvísi en með því að leggja
á kolefnisskatt þar sem það litla
pláss sem eftir er fyrir koltvísýring
uppi í háloftunum verður verðlagt.
Hver og einn getur þess utan lagt
sitt af mörkum og skiptir vitundar-
vakning eins og Veganúar miklu
máli. Ef allir jarðarbúar myndu
til að mynda sleppa því að borða
kjöt einn dag í viku myndi það
hafa gífurleg áhrif til hins betra.
Þá myndi ég vilja sjá að neyt-
endum yrði gert auðveldara að
taka upplýstar ákvarðanir við val
á vörum og þjónustu. Það væri til
dæmis hægt að gera með því að
litamerkja vörur eftir því hvaða
kolefnisspor þær hefðu. Vara með
grænum miða væri þá með minna
kolefnisspor en vara með rauðum
og þannig væri hægt að velja í þágu
umhverfisins.
Minni kjötneysla til bóta fyrir heiminn
Eyþór Eðvarðsson, stjórnarformaður
Votlendissjóðs. MYND/ERNIR
Landvernd – málsvari
náttúru og umhverfis
„Stöndum saman um hreint land, fagurt land,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir, formaður Landverndar. MYND/ERNIR
Stofnun Land-
verndar fyrir hálfri
öld hvatti fólk til
dáða í umhverfis-
málum. Rósbjörg
Jónsdóttir for-
maður telur að
næstu árin muni
sífellt fleiri láta
sig umhverfis-
málin varða, sama
hvar í flokki fólk
stendur.
Til að setja það í
samhengi losar það
að rækta kíló af lamba-
kjöti á Íslandi um 29 kíló
af koltvísýringi. Eitt kíló
af baunum losar hins
vegar aðeins eitt kíló af
koltvísýringi.
LANDVERND 50 ÁRA 3 M I ÐV I KU DAG U R 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-6
4
0
8
2
1
F
7
-6
2
C
C
2
1
F
7
-6
1
9
0
2
1
F
7
-6
0
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K