Fréttablaðið - 09.01.2019, Qupperneq 30
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Frá menntun til aðgerða
Verkefni Landverndar eru fjölbreytt og ná meðal annars utan um náttúruvernd, umhverfismennt
og umhverfisstjórnun. Hér segja þrír starfsmenn Landverndar frá nokkrum ólíkum verkefnum.
Miklar áskoranir felast í þróun á nýju náms-efni í umhverfismálum
í dag. Viðfangsefnin eru mjög
flókin og tilfinningalega erfið, því
umhverfishnignun og aðgerða-
leysi okkar ógna framtíð okkar og
jarðarinnar segir Caitlin Wilson,
sérfræðingur hjá Skólum á grænni
grein. „Þá er engin ein rétt lausn
í þessum málum heldur, það eru
margir hagsmunaaðilar og margt
sem þarf að huga að þegar við
förum í aðgerðir. Þess vegna vantar
námsefni sem hjálpar okkur bæði
að skilja flókin fyrirbæri bak
við umhverfismál en styðja líka
skapandi, valdeflandi vinnu í
lausnum og öðrum möguleikum
fyrir plánetuna.“
Hvað eigið þið við með
„fræða en ekki hræða“?
„Þessi orð eru orðin einhvers konar
slagorð fyrir okkur hjá Grænfána-
verkefninu. Þau voru upphaflega
sögð af Sögu Rut Sunnevudóttur
og Bríeti Felixdóttur, þegar þær
héldu ræðu á Umhverfisþingi 2017.
Þær voru einmitt þátttakendur í
Erasmus+ verkefninu I SEE um
loftslagsmál og framtíðarsýn, og
voru beðnar um að halda ræðu
um viðhorf ungs fólks til lofts-
lagsmála í kjölfarið af þátttök-
unni í sumarskóla I SEE á Ítalíu.
Þær sögðu frá því hvernig ungt
fólk upplifir loftslagsbreytingar
með samviskubiti og kvíða, eins
og það sé allt að fara versnandi
og lítið hægt að gera. Þær töluðu
um að það vanti kennslu um
umhverfismál almennt og þá sér-
staklega kennslu um loftslagsmál
sem er skapandi, vinnur í lausnum
og gefur von. Það þarf að fræða en
ekki hræða.
Getur þú sagt mér frá Eras-
mus+ og I SEE verkefninu?
„I SEE er verkefni styrkt af Eras-
mus+ áætluninni og unnið í
samstarfi við Menntaskólann
við Hamrahlíð, með kennarana
Auði Ingimarsdóttur og Sigur-
karl Stefánsson, og ýmsa háskóla
og menntaskóla í Evrópu. Saman
höfum við hannað kennslu um
loftslagsmál og kolefnisbindingu
sem hefur að markmiði að opna
fyrir nemendum fleiri fram-
tíðarmöguleika en bara eina svarta
framtíð.
Við höfum líka fengið Söndru
Ósk Snæbjörnsdóttur til að kynna
rannsóknina CarbFix fyrir nem-
endum en í þessari merkilegu rann-
sókn var þróuð leið til að binda
kolefni varanlega í grjóti. Í sumar-
skólanum I SEE 2017, sem m.a.
nemendur frá MH sóttu, vorum við
líka með pallborðsumræðu með
fólki sem vinnur í lausnum við
loftslagsvandann og þótti þeim sú
umræða virkilega áhugaverð.
Flókin og tilfinningalega erfið viðfangsefni
Nemar við MH komu að I SEE verk-
efninu sem er styrkt af Erasmus+. Caitlin Wilson, sérfræðingur hjá Skólum á grænni grein.
Verkefnið Skólar á grænni grein (e. Eco-Schools) er alþjóðlegt verkefni fyrir
nemendur á öllum skólastigum
sem stuðlar að aukinni umhverfis-
vitund og sjálfbærni. Skólar stýra
vinnunni í kringum verkefnið
sjálfir, setja sér markmið og fylgja
þeim eftir og er mikil áhersla lögð
á þátttöku nemenda og að þeir séu
sem virkastir í allri vinnu við verk-
efnið segir Katrín Magnúsdóttir,
verkefnisstjóri Skóla á grænni
grein. „Auk þess er mikilvægt að
virkja skólasamfélagið til þátt-
töku og ýta þannig undir sjálf-
bærni í nærsamfélaginu. Skólar
í verkefninu stíga sjö skref í átt
að grænfána og ýtir aðferðafræði
skrefanna undir sjálfstæði, lýðræði
og valdeflingu nemenda. Þegar
markmiðum hefur verið náð sækja
skólar um grænfánann sem þeir
fá að flagga komist þeir í gegnum
úttekt Landverndar.“
Verkefnið hefur vaxið jafnt
og þétt frá því að það hóf göngu
sína hér á landi árið 2000, en
tæpur helmingur leik-, grunn- og
framhaldsskóla um allt land er nú
þátttakandi.
Nemendur greina vandann
Menntun til sjálfbærni er stefnan
sem unnið er eftir í Skólum á
grænni grein segir Katrín. „Í stefn-
unni felst að skapa ábyrga sam-
félagsþegna sem búa yfir þekk-
ingu, færni og getu til að takast á
við þær áskoranir í umhverfis- og
samfélagsmálum sem heimurinn
stendur frammi fyrir.“ Nemendur
eru þjálfaðir í að greina vandann
í nærumhverfi sínu og koma með
tillögur að lausnum sem þeir
geta sjálfir unnið að í samvinnu
við starfsmenn skólans og helst
nærsamfélagið líka. „Verkefnið er
því valdeflandi fyrir nemendur
og gerir þá betur í stakk búna til
að takast á við áskoranir fram-
tíðarinnar. Verkefnið er nátengt
Heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun en
þar segir meðal annars að fyrir
árið 2030 skuli nemendur öðlast
þekkingu og færni til að ýta undir
sjálfbæra þróun.“
Nýverið kom út handbókin
Á grænni grein, sem er leiðar-
vísir um framkvæmd verkefnis-
ins Skólar á grænni grein, en
hún varpar einnig ljósi á tengsl
þess við menntun til sjálfbærni
og aðalnámskrá leik-, grunn-
og framhaldsskóla. Bókin er
aðgengileg á vef Skóla á grænni
grein (www.graenfaninn.land-
vernd.is) og á skrifstofu Land-
verndar.
Stuðlað að umhverfisvitund og sjálfbærni
Áhersla er lögð á þátttöku nemenda.
Mikilvægt er að virkja skólasam-
félagið og ýta undir sjálfbærni.
Katrín Magnús-
dóttir, verk-
efnisstjóri Skóla
á grænni grein.
MYND/ANTON
BRINK
Börn og ungmenni á Íslandi hafa almennt miklar áhyggjur af loftslagsmálum og Land-
vernd hyggst setja aukinn kraft í
þessi mál með valdeflandi skóla-
verkefnum sem auka getu þeirra til
aðgerða segir Rannveig Magnús-
dóttir, doktor í spendýravistfræði,
sem stýrir verkefnunum Vistheimt
með skólum og Öndum léttar hjá
Landvernd. Hún segir bæði verk-
efnin dýpka skilning barna og ung-
menna á stórum umhverfismálum
og kenna hvað þau geta sjálf gert til
að sporna við loftslagsbreytingum
og tapi á lífbreytileika.
„Verkefnið Vistheimt með
skólum er unnið í samstarfi við
Landgræðsluna og í dag taka
grænfánaskólar þátt sem hafa
valið sér vistheimt sem þema.
Vistheimt (endurheimt vistkerfa)
er afar mikilvæg aðgerð til að
endurheimta illa farin vistkerfi
og í verkefninu læra nemendur,
og kennarar, hvernig vistheimt
tengist lífbreytileika, vistkerfa-
þjónustu og loftslagsmálum.“
Setja upp tilraunareiti
Nemendur setja sig í spor vísinda-
fólks og setja m.a. upp tilraunareiti
á örfoka landi, mæla framvindu
gróður- og dýrasamfélaga, vinna úr
gögnum sínum og kynna niður-
stöðurnar. „Tveir skólar vinna
verkefni í tengslum við endur-
heimt votlendis og einn skipulegg-
ur vistheimt á gömlu námusvæði
í nágrenni skólans. Nemendur
hafa m.a. kynnt niðurstöður sínar
á Umhverfisþingi og fyrir Dr. Jane
Goodall, sem er verndari verk-
efnisins.“
Valdeflandi viðburður
Í verkefninu Öndum léttar, er
sveitarfélögum veitt aðstoð við
kolefnisbókhald og aðgerðaáætl-
anir í loftslagsmálum. „Frá og með
árinu 2019 verður einnig farið í
skólaverkefni, m.a. í samstarfi við
hugbúnaðarfyrirtækið Klappir
– Grænar lausnir hf., þar sem nem-
endur fá fræðslu um loftslagsmál
ásamt því að fá tæki og tól í hend-
urnar sem þau geta nýtt til aðgerða
í skólanum og nærumhverfi sínu.“
Dýradagurinn (e. Animal
Parade) verður haldinn í fyrsta
skipti á Íslandi vorið 2019 og
verður tileinkaður 50 ára afmæli
Landverndar. „Þessi viðburður
kemur úr hugmyndasmiðju Roots
& Shoots samtaka Jane Goodall.
Þar verður nemendum á leik- og
grunnskólaaldri boðið að taka þátt
í skrúðgöngu til að vekja athygli
á málefnum hafsins sem tengjast
loftslagsbreytingum og neyslu út
frá sjónarmiðum dýra. Þarna má
nefna vanda eins og plastmengun í
hafi, hnignun lífbreytileika, súrnun
sjávar og dýr á válista.
Dýradagurinn er valdeflandi
viðburður fyrir börn og ungmenni
sem gefur þeim rödd til að tjá sig
um m.a. alvarleg áhrif loftslags-
breytinga og koma skilaboðum
sínum til stjórnvalda.“
Börn sem vísindafólk og aðgerðasinnar
Rannveig Magnúsdóttir, doktor í spendýravistfræði, stýrir verkefnunum Vist-
heimt með skólum og Öndum léttar hjá Landvernd. MYND/ANTON BRINK
6 LANDVERND 50 ÁRA 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-6
4
0
8
2
1
F
7
-6
2
C
C
2
1
F
7
-6
1
9
0
2
1
F
7
-6
0
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K