Fréttablaðið - 09.01.2019, Qupperneq 32
Snemma á síðasta ári hófust framkvæmdir við væntan-legar rannsóknarboranir í
Eldvörpum á Reykjanesi. Dróna-
myndir sem Ellert Grétarsson
náttúruljósmyndari tók af nýju,
gríðarstóru borstæðinu vöktu
mikla athygli, ekki síst vegna þess
að þá var eins og fólk áttaði sig
betur á því umfangi sem þetta rask
hafði í för með sér að hans sögn.
„Þarna var einungis eitt borstæði af
fimm sem deiliskipulagið gerir ráð
fyrir, örskammt frá sjálfri gígaröð-
inni sem er um 10 km löng. Þarna
var verið að slétta út nútímahraun
á náttúruminjaskrá, þrátt fyrir
umsögn Skipulagsstofnunar um
verulega neikvæð umhverfisáhrif.“
Ef horft er til Rammaáætlunar
eru öll jarðhitasvæði Reykja-
nesskagans annaðhvort komin í
orkunýtingu eða á leiðinni þangað
bætir hann við. „Aðeins þrjú svæði
af nítján hafa verið sett í verndar-
flokk sem er algjörlega óskiljan-
legt. Ef villtustu draumar orku-
fyrirtækjanna rætast þá verður
Reykjanesskaginn eitt samfellt
orkuvinnslusvæði frá Reykjanestá
að Þingvallavatni. Við getum bara
gert okkur í hugarlund hvaða
umhverfisáhrif það mun hafa.“
Gríðarlegt náttúrurask
Afleiðingarnar eru vitaskuld
margvíslegar segir Ellert. „Gerðu
þér í hugarlund ef þú marg-
faldaðir Reykjanesvirkjun upp í
nítján og raðaðir henni eftir endi-
löngum skaganum ásamt með-
fylgjandi mannvirkjum, stöðvar-
húsum, gufulögnum, borteigum,
háspennulínum og línuvegum.
Tökum Krýsuvík og Reykjanes-
fólkvang sem dæmi. Innan fólk-
Minnir á þriðja heims ríki
Ellert Grétarsson.
6000
5000
4000
3000
2000
1000
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
des.
500 550
750
2500
3800
4700
4950
5327
Fjölgun félagsmannaLandvernd er frjáls félagasam-tök og stuðningur félags-manna er okkur ómetanlegur.
Til að tryggja sjálfstæði samtak-
anna og fjárhagslegan grunn
skiptir fjöldi félagsmanna miklu
máli en að öðru leyti reiða sam-
tökin sig á styrki sem sótt er um
árlega. Árið 2011 voru eingöngu
500 félagsmenn í samtökunum og
starfsmenn þrír. Í dag starfa sjö
manns hjá Landvernd og má meðal
annars þakka fjölgun félagsmanna
þennan vöxt. Verkefnafjöldi, slag-
kraftur og sýnileiki samtakanna
hefur að sama skapi aukist en
félagar eru rúmlega 5.300. Stuðn-
ingur félagsmanna hefur gefið
samtökunum styrk til að vaxa og
við viljum halda því áfram til þess
að sinna mikilvægum verkefnum í
þágu umhverfisins.
Til að ganga í Landvernd, heim-
sæktu heimasíðuna okkar
www.landvernd.is eða hringdu
í s. 552-5242
Félagsmenn mynda grunn að góðu starfi
Rannsókn Hagfræðistofnunar sem gerð var í sumar sýnir að í grennd við ellefu friðuð
svæði hér á landi eru hátt í tvö
þúsund störf, sem tengjast svæðun-
um,“ segir Sigurður en rannsóknin
var gerð að beiðni Umhverfis-
ráðuneytisins. „Þjónusta við gesti
þjóðgarða getur til dæmis hentað
bændum, sem eru með kindur,“
heldur Sigurður áfram og bendir á
að sauðfjárbúskapur sé óvíða full
vinna. „En fjöldi starfa er almennt
ekki góður mælikvarði á verðmæti.
Bein not af friðuðum svæðum má
til dæmis mæla með því að skoða
hvernig sókn í þau fjarar út eftir
því sem lengra dregur frá þeim.
Friðlýst svæði geta líka verið mikils
virði í huga þeirra sem vita af þeim
en fara ekki þangað. Slík verðmæti
verða ekki metin nema með því að
spyrja fólk.“ Hann segir að það liggi
beint við að valkostum geti fækkað
þegar tiltekinn nýtingarkostur sé
valinn. „Sem dæmi má nefna að til
ársins 1844 mátti velja milli heims
Í valkostum felast verðmæti
Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands,
segir gildi þjóðgarða mikið í krónum talið. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Sigurður Jóhann-
esson, forstöðu-
maður Hagfræði-
stofnunar, segir
frá rannsókn Hag-
fræðistofnunar
Háskóla Íslands á
efnahagsáhrifum
friðlýstra svæða.
með geirfuglum og án þeirra. Við
getum valið milli þess að eiga kjarr,
mela og móa á hálendinu og víðar,
sérstaka stofna af laxi og silungi í
hverri á – og við getum líka valið
kosti sem svipta okkur þessu öllu. Í
valkostunum felast verðmæti.“
Sigurður bendir á að friðun
skipti í raun aðeins máli þegar hún
rekst á aðrar nýtingarhugmyndir.
„Stundum virðist ekki vera mikil
fyrirstaða í friðunum. Sá hluti
Kringilsárrana sem stendur upp
úr Hálslóni er friðaður, en ekki
reyndist mikið hald í friðun þess
hluta ranans sem stóð lægra. Fáir
mánuðir eru síðan úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála vildi
bíða með að veita leyfi til fiskeldis á
Vestfjörðum meðan skoðaðar yrðu
leiðir sem ekki ógnuðu innlendum
laxastofnum. Sem kunnugt er greip
Alþingi einum rómi inn í það ferli.“
Ert þú búin/n að taka
plastáskorun Landverndar?
plastaskorun.landvernd.is
vangsins eru þrjú svæði af fjórum
komin í orkunýtingarflokk sem
er algjörlega galið. Fari fram sem
horfir mun þetta hafa gríðarlegt
náttúrurask í för með sér.“
Ellert segist engan veginn geta
skilið hvers vegna þurfi að virkja
allt sem hægt er að virkja í landi
sem á heimsmet í orkuframleiðslu
miðað við höfðatölu. „Noregur,
sem er í öðru sæti, framleiðir innan
við helming þess sem Ísland fram-
leiðir. Í landi, sem á heimsmet í
raforkuframleiðslu, tala orkumála-
stjóri og forsvarsmenn orkufyrir-
tækja um að virkja þurfi meira.
Að öðrum kosti muni það hamla
uppbyggingu atvinnulífs í landinu.
Á sama tíma og menn tala um
yfirvofandi orkuskort ætla þeir að
flytja orkuna til annarra landa með
sæstreng. Þetta minnir á þriðja
heims ríki þar sem almenningur
þarf að þola matarskort vegna þess
að stærsti hluti matvælauppsker-
unnar er fluttur úr landi. Hún er
mjög einkennileg, þessi umræða.“
1
2
3
4 5
6
7
8
9
10
11 12
13
14
15 16
17
18
19
1. Reykjanesvirkjun
2. Stóra-Sandvík
3. Eldvörp
4. Svartsengi
5. Sandfell
6. Trölladyngja
7. Sveifluháls
8. Austurengjahver
9. Brennisteinsfjöll
10. Meitillinn
11. Gáruhnúkar
12. Hverahlíð
13. Hellisheiðarvirkjun
14. Innstidalur
15. Bitra
16. Grændalur
17. Ölfusdalur
18. Þverárdalur
19. Nesjavallavirkjun
n Núverandi virkjanir
n Orkunýtingarflokkur
n Biðflokkur
n Verndarflokkur
8 LANDVERND 50 ÁRA 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-7
7
C
8
2
1
F
7
-7
6
8
C
2
1
F
7
-7
5
5
0
2
1
F
7
-7
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K