Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 44
Elskuleg systir okkar og mágkona,
Hólmfríður Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur
frá Sunnuhvoli, Sandgerði,
andaðist 23. desember á
hjúkrunarheimilinu Grund.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki V-3 á Grund fyrir
einstaka og hlýja umönnun.
Ólafur Stefánsson Gunnhildur Alfonsdóttir
Stefanía Stefánsdóttir
Jóhanna Stefánsdóttir
Ástkær bróðir okkar,
Sigurjón Guðni Ingvarsson
Hulduhlíð, heimili aldraðra,
Dalbraut 1, 735 Eskifirði,
lést 25. desember síðastliðinn. Hann
verður jarðsettur frá Eskifjarðarkirkju
laugardaginn 12. janúar nk. kl. 14.00.
Margrét Aðalbjörg Ingvarsdóttir
Eymar Yngvi Ingvarsson
Eygló Halla Ingvarsdóttir
Kolbrún Ásta Ingvarsdóttir
Páll Geir Ingvarsson
Ómar Grétar Ingvarsson
Elsku faðir okkar, afi og langafi,
Ölver Þorleifur Guðnason
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð
á Eskifirði 4. janúar sl. og verður
jarðsunginn föstudaginn 11. jan. kl. 14.
Aðstandendur.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Jón Sigurðsson
svæfingalæknir,
lést laugardaginn 29. desember á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 15. janúar kl. 15.
Ásdís Magnúsdóttir
Sigurður Örn Jónsson Sigríður Oddný Guðjónsdóttir
Þorbjörg Jónsdóttir Sæþór Ólafsson
Hermann Páll Jónsson Éva Tóth
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Rafn E. Sigurðsson
fv. forstjóri Hrafnistu,
Hólabraut 17, Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
þann 6. janúar, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18. janúar kl. 13.00.
Rannveig Erna Þóroddsdóttir
Sigþór Rafnsson Elísabet Rafnsdóttir
Gerður Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Móðir mín og amma okkar,
Fjóla Steinsdóttir Mileris
Skálagerði 5, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 25. desember sl.
Útförin verður gerð frá Bústaðakirkju
11. janúar nk. kl. 13.
Georg Mileris
Ana Maria Mileris Georg David Mileris
Vladimir Mileris Angelika Mileris Dawes
Íslenska óperan tók til starfa þennan dag árið 1982 með vígslu óperu-
hússins við Ingólfsstræti og frumsýningu Sígaunabarónsins eftir
Johann Strauss. Sérlegur verndari óperunnar, Vigdís Finnbogadóttir
forseti, ávarpaði gesti og síðan var frumflutt tónverkið Tileinkun eftir
tónskáldið Jón Nordal sem var sérstaklega samið fyrir þetta tækifæri.
Garðar Cortes, söngvari og stjórnarformaður óperunnar, hélt líka stutta
ræðu áður en sýning hófst á Sígaunabaróninum.
Leikstjórn var í höndum Þórhildar Þorleifsdóttur en hljómsveitar-
stjóri var Austurríkismaðurinn Alexander Maschat. Með helstu hlutverk
fóru Kristinn Sigmundsson, John Speight, Garðar Cortes, Halldór Vil-
helmsson, Ásrún Davíðsdóttir, Elísabet Erlingsdóttir, Stefán Guðmunds-
son, Anna Júlíana Sveinsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Sýning-
unni var geysilega vel tekið og fagnaðarlátum ætlaði aldrei að linna.
Þ ETTA G E R Ð I ST : 9 . JA N ÚA R 1 9 8 2
Íslenska óperan vígð með viðhöfn
Íslenska óperan var lengi til húsa í Gamla bíói.
1317 Filippus hávaxni krýndur konungur Frakklands ásamt
Jóhönnu, eiginkonu sinni.
1431 Réttarhöld yfir Jóhönnu af Örk hefjast í Rouen.
1522 Adriaan Florenszoon Boeyens verður Hadríanus 6. páfi.
1570 Ívan grimmi hefur slátrunina í Novgorod.
1626 Peter Minuit leggur upp frá hollensku eyjunni Texel
og siglir til Nýja-Hollands með tvö skip.
1636 Síðustu sænsku hermennirnir fara frá borginni Mainz.
1788 Connecticut verður fimmta fylki Bandaríkjanna.
1793 Jean-Pierre Blanchard verður fyrstur til að fljúga yfir
Bandaríkin í loftbelg.
1799 Básendaflóðið veldur stórtjóni um öll Suðurnes.
Básenda á Miðnesi tók af.
1857 Jarðskjálfti, sem talinn er hafa verið 7,9 stig á Richter-
kvarða, verður í Kaliforníu.
1863 Rekstur neðanjarðarlestakerfis Lundúna hefst.
1879 Úmbertó 1. krýndur konungur Ítalíu.
1900 Íþróttafélagið Società Sportiva Lazio stofnað.
1935 Lög um aldurshámark opinberra starfsmanna og
embættismanna eru sett.
1957 Anthony Eden segir af sér sem forsætisráðherra Bret-
lands. Harold Macmillan tók við daginn eftir.
Merkisatburðir
Gauti Geirsson, nemi í sjávar útvegsfræðum, heldur erindi á fræðsluf u n d i V i t a f é l a g s i n s – íslensk strandmenning í kvöld klukkan
20. Í tilkynningu frá félaginu segir að
hann muni þar segja frá áhugamanna
félaginu Hreinni Hornstrandir sem held
ur utan um hreinsunina og árangri þess.
Jafnframt setur hann hreinsunina í sam
hengi við þann gríðarlega stóra vanda
sem plast í hafi er og hvað við teljum að
þurfi að gera til þess að laga ástandið.
Gauti er nemi í sjávarútvegsfræði við
Háskólann í Tromsø. Hann er frá Ísa
firði og hefur undanfarin 5 ár staðið
fyrir hreinsun á plasti og rusli á Horn
ströndum á Vestfjörðum. Hornstrandir
eru eitt einangraðasta svæði landsins
en þar lagðist byggð í eyði árið 1952.
Þangað liggja engir vegir en vegna
strauma í kringum landið hafa þetta
verið miklar rekastrendur. Framan af
var það aðallega rekaviður upprunninn
í Síberíu sem rak á fjörurnar. Á seinni
árum hefur rekaviðurinn minnkað en
nýr reki komið í staðinn en það er plast.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir um hverfis
efnafræðingur er einnig með erindi á
sama fræðslufundi um skólphreinsun
og örplast í skólpi þar sem hún mun
fjalla um niðurstöður norræns sam
starfsverkefnis þar sem rannsakað var
hvort skólphreinsun væri nægjanleg til
að hefta för öragna og örplasts úr skólpi
út í umhverfið. Verkefnið var samstarf
Matís á Íslandi, sænsku Umhverfisstofn
unarinnar, finnsku Umhverfisstofnunar
innar og Aaltoháskóla og var styrkt af
Norrænu ráðherranefndinni.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að
íslenskar skólphreinsistöðvar sem eru
með 1. stigs hreinsun ná ekki að hreinsa
örplast úr skólpi og þessar agnir sleppa
því óhindrað út í umhverfið.
Hrönn er umhverfisefnafræðingur
með B.Sc. í efnafræði frá HÍ og svo
M.Sc. og Ph.D. frá Stokkhólmsháskóla
í umhverfisefnafræði þar sem hún sér
hæfði sig í efnagreiningum á umhverfis
mengun og áhrif á lífverur. Hún hefur
starfað hjá Matís frá árinu 2009 og er í
dag sviðsstjóri Mæliþjónustu og innviða.
Í dag er hún helst að vinna með mat
vælaöryggi, áhættumat, stefnumótun
og áhættumiðlun ásamt rannsóknum á
umhverfismálum.
benediktboas@frettabladid.is
Fjallað um hinn nýja
reka á Hornströndum
Á fræðslufundi Vitafélags-
ins í kvöld verður fjallað
um vágestinn plast sem
nú rekur á fjörur á Horn-
ströndum.
Áður fyrr rak rekavið á fjörur Hornstranda en nú er þar plast sem við hendum í sjóinn.
Gauti Geirsson, nemi í sjávarútvegsfræðum.
Framan af var það aðal-
lega rekaviður upprunn-
inn Síberíu sem rak á fjörurnar.
Á seinni árum hefur rekaviður-
inn minnkað en nýr reki komið í
staðinn en það er plast.
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-5
A
2
8
2
1
F
7
-5
8
E
C
2
1
F
7
-5
7
B
0
2
1
F
7
-5
6
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K