Fréttablaðið - 09.01.2019, Síða 49
Roma (spanish w/eng sub) .................... 17:20
Erfingjarnir//The Heiresses (ice sub) ...17:30
First Reformed (english-no sub) .... 17:40
Suspiria (ice sub) ..................................... 19:30
One Cut of the Dead (ice sub) ....... 20:00
Heavy Trip // Hevi Reissu (eng sub) 20:00
One Cut of the Dead (eng sub) ...... 22:00
First Reformed (english-no sub) ... 22:00
Plagi Breslau (polish w/eng sub) .....22:20
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
9. JANÚAR 2019
Tónlist
Hvað? Metal-Miðvikudagur – Heavy
Trip/Hevi Reissu. Aðeins EIN sýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Turo er 25 ára sveitapiltur sem er
drullusama um allt og alla nema
hljómsveitina Impaled Rektum
sem hann eyðir öllum frítíma
sínum í, en þar er hann söngvari
harðasta (og eina) metalbandsins
á svæðinu. Turo og hljómsveitar-
meðlimunum býðst óvænt tæki-
færi lífsins að komast úr sveitinni
og út í hinn stóra heim. Fram
undan bíður þeirra eitt svaka-
legasta ferðalag allra tíma með
þungarokki, grafarránum, vík-
ingaparadís og vopnuðum átökum
á milli Finnlands og Noregs.
Hvað? Josephine Foster
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Tónlistarkonan Josephine Foster
mun koma fram í Mengi mið-
vikudaginn 9. janúar en þetta
er í þriðja sinn sem hún spilar á
Óðinsgötunni. Í tónlist hennar
renna saman margir tímar og
heimar enda hefur hún komið
víða við í tónlistarsköpun sinni og
tilraunum.
Hvað? Tíbrá tónleikaröð – Klassík á
nýju ári
Hvenær? 20.00
Hvar? Salurinn, Kópavogi
Nýju tónleikaári er fagnað með
fiðluleikaranum Rannveigu Mörtu
og píanóleikaranum Jane Ade. Þær
flytja fjölbreytta dagskrá með eftir-
lætisverkum sínum.
Hvað? Samsöngur á miðvikudögum
Hvenær? 17.00
Hvar? Parkinsonsamtökin, Hátúni
Samsöngur alltaf á miðvikudögum
kl. 17-18 í Setrinu, Hátúni 10. Sam-
söngurinn er fyrst og fremst hugs-
aður sem raddþjálfun því flestir
sem greinast með parkinson finna
fyrir einkennum á rödd og tali.
Þórunn Sigurðardóttir tónlistar-
kennari stjórnar og sér um undir-
spil. Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn. Ekki þarf að skrá sig – bara
mæta.
Viðburðir
Hvað? Vöxtur og vellíðan
Hvenær? 19.45
Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði
Fræðsla, innsýn og hvatning tengd
Boðið er upp á vínsmakk á Skelfisk-
markaðnum, veitingastað Hrefnu
Sætran. Kíktu við og fáðu að smakka
það nýjasta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
auknum vexti og vellíðan í eigin
lífi og lífi fjölskyldunnar. Hvað er
gott að hafa í huga? Hverju langar
þig að breyta? Hvernig getum við
komist í betri tengsl við okkur sjálf
og fundið hvernig við getum orðið
betri útgáfa af okkur sjálfum?
Þátttakendur fara heim með efni,
dæmi um aðferðir og hvetjandi
reynslusögur sem segja okkur að
svo margt er hægt ef vilji er fyrir
hendi, sjálfstraustið í lagi og mark-
miðin skýr.
Hvað? Miðvikudagsvínsmakk í vetur
Hvenær? 17.00
Hvar? Skelfisksmarkaðurinn, Klappar-
stíg
Ertu í stuði og langar þig til þess að
smakka góð vín? Þá er heimsókn
á Skelfiskmarkaðinn málið. Alla
miðvikudaga í vetur ætlum við að
hafa vínsmakk á léttu nótunum
með Adda Páls hjá Vínmark-
aðnum, en hann hefur áratuga
þekkingu þegar kemur að vínum.
Kíktu við á milli 17.00 og 18.30 í
Sirkus setustofuna okkar og fáðu
að smakka það nýjasta sem Vín-
markaðurinn hefur upp á að bjóða
ásamt þeirra vinsælustu vínum.
Hvað? Menning á miðvikudögum I
Silkiormar
Hvenær? 12.15
Hvar? Náttúrufræðistofa Kópavogs,
Hamraborg
Miðvikudaginn 9. janúar klukkan
12.15 mun Signý Gunnarsdóttir,
silkiormabóndi og fatahönnuður,
flytja fyrirlestur um silkiormarækt-
un og silkiframleiðslu í Náttúru-
fræðistofu Kópavogs. Í erindi sínu
segir Signý frá orminum og ferli
ræktunar hérlendis sem og erlend-
is. Þá mun hún segja frá vinnslu á
silki og silkiiðnaðinum erlendis,
möguleikum í vinnslu og notkun
hráefnisins, líftækni, nýsköpun og
fleira. Erindið er liður í dagskrá
menningarhúsanna í Kópavogi,
Menning á miðvikudögum. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Hvað? Félagsvinir eftir afplánun –
opið hús
Hvenær? 19.00
Hvar? Rauði krossinn í Kópavogi,
Hamraborg
Opið hús er hluti af verkefninu
Félagsvinir eftir afplánun og er
einu sinni í viku, alla miðvikudaga
frá klukkan 19.00 til 21.00. Þar er
hægt að fá upplýsingar og stuðning
og jafnvel hitta annað fólk sem
hefur sömu reynslu að baki. Þar
verður einnig boðið upp á stutt
fræðsluerindi og ýmiss konar
aðstoð svo sem við gerð ferilskrár,
atvinnuleit, áhugasviðskönnun
og fleira sem nýtist við daglegt líf.
Léttar veitingar í boði.
Sýningar
Hvað? Hjálmar Guðmundsson – Éttu
eða vertu étinn
Hvenær? 13.00
Hvar? Gallery Port, Laugavegur
Hjálmar skapar litríkan og líf-
rænan myndheim með vísanir
og tengingar við ýmis vísindi og
fræði, náttúruna, mannkyns-
söguna og listsöguleg fyrirbæri og
hugmyndir. Hjálmar hefur þróað
sérstaka tækni þar sem hann beitir
ýmsum efnum og aðferðum til að
hafa áhrif á ásýnd málningarinnar.
Hvað? Closeups: Exhibition by Ingunn
Vestby
Hvenær? 14.00
Hvar? Norræna húsið
Norska listakonan Ingunn Vestby
opnar sýningu á verkum sínum
í Black Box Norræna hússins
9. janúar kl. 17. Boðið verður upp
á léttar veitingar. Allir velkomnir!
Það er alveg hellingur í gangi í menningarhúsunum í Kópavogi.
SKRIFSTOFAN
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um skrifstofur og
skrifstofuvörur kemur út 12. janúar.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um auglýsingar og umfjallanir fyrir blaðið veitir;
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Netfang, jonivar@frettabladid.is – B inn sími 550 5654.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M I Ð V I K U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-8
1
A
8
2
1
F
7
-8
0
6
C
2
1
F
7
-7
F
3
0
2
1
F
7
-7
D
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K