Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 10
10 14. desember 2018FRÉTTIR
Frost í kortunum?
Ekki láta kuldann koma þér í vandræði
Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn!
TUDOR
Alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
Hr
að
þjónusta
„Án Frú Ragnheiðar væri
ég örugglega dáinn“
n Jaðarsettir hópar eiga öruggt rými hjá Frú Ragnheiði n Ekki bara nálaskiptaþjónusta
V
ið erum að gefa þeim sem
nota vímuefni í æð tæki
færi til að taka ábyrgð á
vímuefnanotkun sinni. Á
síðasta ári förguðum við 2.800 lítr
um af notuðum sprautunálum,“
segir Svala Jóhannesdóttir, verk
efnastýra Frú Ragnheiðar, sem
bauð blaðamanni í heimsókn í
höfuðstöðvar verkefnisins, Rauða
krossinn, þar sem hún og Jenni
ræddu við blaðamann um verk
efnið. Jenni er dulnefni 22 ára
skjólstæðings Frú Ragnheiðar, því
öllum sem til þeirra leita er heitið
100 prósent trúnaði og nafnleynd
og það heit verður ekki rofið.
Heilbrigðisþjónusta á hjólum
og meira
Frú Ragnheiður keyrir um höfuð
borgarsvæðið, alla daga vikunnar
nema laugardaga, frá klukkan 18
til 22. Þjónustunni hefur verið lýst
sem tvíþættri, nálaskiptiþjónustu
og heilbrigðisþjónustu, en í raun
er þjónustan mun víðtækari.
Markmið Frú Ragnheiðar er
að ná til jaðarsettra hópa í sam
félaginu, þá einkum einstaklinga
sem eru heimilislausir og einstak
linga sem nota vímuefni í æð. Í
sérinnréttuðum bílnum kennir
ýmissa grasa. Þar má meðal
annars finna hrein áhöld til vímu
efnanotkunar, vatnsbrúsa, mat,
hlý föt, tjöld, svefnpoka og búnað
til að nota við heilbrigðisþjónustu.
Þrír sjálfboðaliðar standa vaktina
hverju sinni og jafnframt er lækn
ir á bakvakt þeim innan handar,
hjá þeim geta skjólstæðingar
meðal annars fengið almenna
heilbrigðis þjónustu, sálrænan
stuðning og ráðgjöf.
Meðan á vaktinni stendur geta
skjólstæðingar hringt og bíllinn
kemur til þeirra. Einstaklingar
innan jaðarsettra hópa eiga oft
erfitt með að sækja sér heilbrigð
isþjónustu og annað á hefðbundn
um opnunartíma eða treysta sér
ekki til að nýta sér þá þjónustu af
ótta við að mæta fordómum og
skilningsleysi.
„Stundum er líka gott að geta
hringt og fengið bílinn til að koma,
jafnvel þó að maður fái sér bara
súkkulaði, kókómjólk og smá
spjall,“ segir Jenni.
Verkefnið Frú Ragnheiður
miðar þjónustu sína að skjól
stæðingunum og þeirra þörfum.
Þeim hentar betur að sækja sér
þjónustu á kvöldin, svo vaktin er
höfð á kvöldin, þeir hafa oft mætt
fordómum og upplifað útskúfun
úr samfélaginu, en ekki hjá Frú
Ragnheiði.
Ef skjólstæðingar þurfa aðstoð
sem ekki er hægt að veita á vakt
inni þá geta þeir fengið þjónustu
yfir daginn.
„Það er mikilvægt að þau hafi
stað þar sem jaðarsettir einstak
lingar geta fengið fræðslu, sagt
og spurt um hvað sem er, án þess
að eiga á hættu að finna fyrir for
dómum. Frú Ragnheiður er öruggt
rými.“
Starfsemin utan bílsins
Svala verkefnastýra sinnir skjól
stæðingum yfir daginn. Þeir skjól
stæðingar hafa kannski beðið um
hjálp við að komast í meðferð, að
stoð til að fá áfallahjálp, nálaskipta
þjónustu utan hefðbundnu vaktar
innar, og stundum þurfa þeir bara
einhvern sem er tilbúinn að hlusta.
„Í dag til dæmis fór ég með ein
um í viðtal hjá Von, en hann er að
reyna að komast í meðferð hjá SÁÁ.
Ég fór og sótti hann, kom með hann
hingað [í húsnæði Rauða krossins]
og gaf honum að borða fyrir við
talið því hann var mjög svangur.
Ég fór síðan í apótek og leysti út
sýklalyf fyrir annan, en við bjóð
um skjólstæðingum upp á sýklalyf,
en við veitum sýklalyfjameðferð í
samstarfi við Hjálparstarf kirkjunn
ar varðandi að greiða fyrir lyfin. Ég
fór í dag á tvo staði með nálaskipta
þjónustu, annar var í mjög erfiðu
fráhvarfi að hann komst ekki út úr
húsi og gat því ekki nýtt sér vaktina
hjá Frú Ragnheiðarbílnum. Næst
fór ég með Frú Ragnheiðarbílinn
í þrif hjá Löðri, þeir styrkja okkur
með þrif. Í dag var ég líka að leita
að tveimur skjólstæðingum okkar,
ég sinni sem sagt líka leitarstarfi,
einn vantaði lyf vegna lifrarbólgu
C og hinn hafði ofskammtað eða
reynt að svipta sig lífi í gær.“
Svala hefur því nóg að gera,
en hluti af starfi hennar felst í að
byggja upp gott meðferðarsam
band við skjólstæðingana, sérstak
lega þá sem eru hvergi annars stað
ar í þjónustu. Þeir geta hringt í hana
og treyst því að hún hlusti og reyni
að aðstoða eftir fremsta megni.
Frú Ragnheiður bjargar lífum
Jenni segir að skjólstæðingar hafi
jafnvel fengið aðstoð við samskipti
við nákomna. „Frú Ragnheiður
hefur líka aðstoðað skjólstæðinga
við að koma aftur á samskiptum
við fjölskyldu. Það eru ekki allir
sem geta hringt í fjölskyldu sína
til að sjá til dæmis hvernig yngri
systkinum þeirra gengur í skóla og
frístundum.“
Jenni á erfiða reynslu að baki.
Hann hefur nýtt nálaskiptaþjón
ustu Frú Ragnheiðar í rúmt ár þótt
hann hafi aðeins verið barn þegar
hann komst fyrst í návígi við vímu
efni sem er sprautað í æð. Hann
segir að verkefnið hafi bætt hrein
læti í vímuefnanotkun mikið.
„Það er allt miklu hreinna.
Þegar ég var yngri var ég innan um
fólk í neyslu og þá var algeng sjón
að nálar væru notaðar svo oft að
mælieiningarnar og merkingar á
hliðunum höfðu máðst af. Núna er
þetta allt öðruvísi. Ég hef til dæmis
bara svona þrisvar fjórum sinnum
þurft að nota sömu nálina tvisvar
sinnum og þá geri ég það bara á
sjálfum mér.
Án Frú Ragnheiðar er ég viss
um að mikið meira væri um bæði
lifrarbólgu og HIV í samfélaginu.“
Jenna finnst starfsemi Frú
Ragnheiðar afar mikilvæg fyrir
samfélagið og það heyrist glöggt
að verkefnið hefur reynst honum
ákaflega mikilvægt.
„Mér finnst Frú Ragnheiður
og Svala eyða öllum deginum í
að hjálpa mér, samt eru þau líka
að aðstoða marga vini mína og
svo náttúrlega líka fjölda einstak
linga sem ég þekki ekki einu sinni.
Hvernig er það hægt?
Mér þætti rétt að það yrði tekinn
annar bíll í notkun, þá gætu þau
sinnt fleirum, en það er kannski
svolítið mismunandi hversu
margir eru að nýta sér þjónustuna
á hverjum tíma. Svo finnst mér
að Svala ætti að fá medalíu, hún
er svo æðisleg, án hennar og Frú
Ragnheiðar væri ég alveg pottþétt
dáinn.“
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar
eru alls konar. Þeir koma úr öllum
stéttum samfélagsins, öllum stig
um menntunar og á öllum aldri.
Þau eiga það sameiginlegt að líf
ið hefur verið þeim erfitt, og eins
og flestir einstaklingar, vilja þau
mæta skilningi og samkennd. Það
fá þau hjá Frú Ragnheiði.
Legðu verkefninu lið
Í dag er nóg að gera á vaktinni hjá
Frú Ragnheiði og starfsemin hef
ur aukist að umfangi ár frá ári.
Því er mikilvægt að verkefnið hafi
nægt fjármagn til að halda sínu
góða starfi áfram og geta hjálpað
einstaklingum á borð við Jenna,
en opinberir styrkir sem verkefnið
hefur hlotið nægja ekki og þarf
Rauði krossinn að borga með ver
kefninu. Styrkir námu um 10 millj
ónum á árinu á meðan starfsem
in kemur til með að kosta um 19
milljónir.
Sjö fræknir slökkviliðs og
sjúkraflutningamenn, í samstarfi
við Frú Laufeyfélag um skaða
minnkun, ætla að róa á róðrarvél
stanslaust í heila viku til að afla fjár
fyrir Frú Ragnheiði. Fénu verður
meðal annars varið til tækjakaupa,
kaupa á hjúkrunarvörum og
sýklalyfjum. Hægt er leggja söfn
uninni lið með því að:
n Senda skilaboð í símanúmer
1900 með textanum TAKK til að
gefa 1900 krónur
n Mæta í Under Armour búð-
ina og taka róður fyrir 1000 krón-
ur
n Með því að fara inn á
slóðina: gefa.raudikrossinn.is og
velja þar Frú Ragnheiði n
Erla Dóra
erladora@dv.is
Svala Jóhannesdóttir Verk-
efnastýra Frú Ragnheiðar.
Í Frú Ragnheiði er hægt að fá hreinan
búnað til vímuefnanotkunar.