Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 70
70 MATUR 14. desember 2018 L eikkonan og uppistandar- inn Þuríður Elín, eða Ebba Sig eins og hún er oftast köll- uð, er mjög vanaföst þegar kemur að jólum og hlakkar ávallt til jólamatar móður sinnar yfir há- tíðarnar. „Jólin eru yfirleitt þannig að ég, mamma, systir mín og frænka mín erum heima hjá mömmu. Við borðum alltaf klukkan sex og erum alltaf með kalkún. Við höfum ætlað að færa okkur yfir til systur minnar þar sem hún er með meira pláss, en þar sem hvorki ég né systir mín þorir að taka við eldamennskunni erum við heima hjá múttu því hún treystir ekki öðrum ofnum,“ segir Ebba og brosir við tilhugsunina um kalkúninn á að- fangadag. „Kalkúnninn er svo sannarlega ómissandi. Við erum svo með þetta klassíska jólameðlæti sem mér finnst reyndar allt vont. Ég er ein af fáum manneskjum sem ég þekki sem finnst brúnaðar kartöflur vondar, þess vegna gerir mamma alltaf svona „crispy“, saltaðar og smjörsteiktar kartöflur handa mér. Svo er fyllingin sem hún gerir al- veg sjálf algjör snilld. Ég var einu sinni á þakkargjörðarhátíðinni í Bandaríkjunum og var boðið í þrjár veislur en engin kalkúna- fylling jafnaðist á við mömmu. En aðalmálið á aðfangadag er sósan hennar mömmu. Ég get drukkið hana og stend oft yfir pottinum og dýfi kartöflunum sem mamma séreldar fyrir mig ofan í. Get verið þar endalaust. Enda gerir hún soldið mikið af sósu þrátt fyrir að við séum bara fjórar í mat. Helm- ingurinn af sósunni er handa mér.“ Skeiðar á augun vegna bólgu Ein jólin vildi mamman breyta til og það rann alls ekki ljúflega ofan í Ebbu og systur henn- ar. „Mömmu lang- aði til þess að prufa að hafa ham- borgarhrygg. Systur minni leist alls ekki á þetta og mótmælti harð- lega. Ég var svo sem alveg til í það, þar sem ég er sjúk í allt saltað. En jólin voru alls ekki eins. Það vant- aði eitthvað svakalega,“ segir Ebba alvarleg og heldur áfram. „Það var allt sama meðlætið, nema fyll- ingin og sósan var engan veginn eins. Ég og systir mín horfum til baka á þessi jól með fyrirlitningu. Við höfum heitið því að það verði aldrei aftur prufað eitthvað nýtt á aðfangadag. Ég vaknaði líka með svo bólgin augu daginn eftir að ég þurfti að setja skeiðar í ísskáp- inn til að láta bólguna af saltinu hjaðna.“ Hnetusteikin var vond Ebba lærði ekki af reynslunni og nokkrum árum síðar gerðist hún grænmetisæta og var því landslag- ið talsvert annað á jólum. „Ég á það til að prufa ýmis- legt í mataræði, ekki sem megr- unarúrræði heldur frekar bara til að ögra mér. Ég var búin að vera grænmetisæta í nokkurn tíma en þegar jólin voru að nálgast spurði mamma hvað mig langaði í og ég sagðist bara borða meðlæti eða eitthvað. Síðan endaði hún á að kaupa hnetusteik fyrir mig sem er eitt af því versta sem ég hef smakk- að. Það eru reyndar orðin soldið mörg ár síðan og hefur matargerð fyrir grænmetisætur orðið töluvert betri,“ segir Ebba, sem útilokar þó ekki að prófa grænmetisfæðið aft- ur. „Ég gæti vel hugsað mér að vera grænmetisæta aftur með öllu því nýja sem er í boði. Ætla meira að segja að taka þátt í Veganúar eftir áramót.“ Kvíðin, einhleyp kona á Íslandi Það er nóg að gera hjá Ebbu í að- draganda jóla. Ekki bara þetta týpíska jólastress því hún heldur uppistand á Hard Rock Café föstu- daginn 15. desember klukkan 21. Ebba hefur vakið talsverða athygli síðustu misseri fyrir uppistöndin sín og má segja að jólauppistandið sé brot af því besta. „Seinni helmingurinn er al- veg splunkunýtt efni, þannig að þau sem hafa séð efnið mitt áður munu líka sjá alveg glænýtt efni sem ég er mjög spennt að sýna. Þetta uppistand er mjög mikið byggt á mínum veruleika. Hvort sem það er að vera einhleyp á Ís- landi eða kvíðann minn, en einnig ætla ég að ræða um ýmislegt sem er í gangi í samfélaginu. Svo fæ ég hina frábæru Kimi Tayler, sem er bresk stelpa sem ég kynntist á Kaffi Laugalæk, til að hita upp,“ segir Ebba. Í framhaldinu hlakk- ar hún til að njóta þess sem jólin þýða fyrir hana. „Fyrir mér þýða jólin að eyða tíma með famelíunni og vinum. Mér finnst dásamlegt að vakna eftir hádegi, eyða deginum á náttfötunum og „tjilla“ allan daginn. En svo er líka alltaf gam- an að fara og hitta fólk, spila og hafa gaman.“ n Þegar mamma n Ebba Sig á hryllilega jólaminningu n Mamman skipti kalkúni út fyrir hamborgarhrygg „Ég og systir mín horfum til baka á þessi jól með fyrirlitningu. n Gott er að setja kalkún í salt- pækil í heilan sólarhring fyr- ir eldun. Sagt er að þá verði hann safaríkari. n Bringan á fuglinum skal snúa upp þegar hann er steiktur. n Best er að elda kalkúninn í lokuðum ofnpotti eða á grind í ofnskúffu og breiða þá yfir hann álpappír. n Steikja á ófylltan kalkún við 150°C í 30 mínútur fyrir hvert kíló, eða þar til kjarnhiti í bringu er 71°C. n Á heilum fylltum kalkúni er steikingartími miðaður við um það bil 40 til 45 mínútur fyrir hvert kíló við 160°C. n Einhverjir segja að gott sé að gegnbleyta viskastykki með smjöri og hafa ofan á kalkún- inum allan eldunartímann. Margir ausa einnig smjöri yfir kalkúninn. n Mikilvægt er að leyfa kalkúni að hvíla í þrjátíu mínútur utan ofns áður en hann er borinn fram. n Nauðsynlegt er að ausa fuglinn nokkrum sinnum í lok steikingartíma. Ef fuglinn er fullsteiktur fyrir áætlaðan tíma skal taka hann úr ofninum og vefja viskastykki utan um steikingarílátið. Einföld sósa með kalkúni Hráefni: n safinn af kalkúninum í pottin- um n 2–3 bollar kjúklinga- eða kalkúnasoð n 3 msk. smjör n ¼ bolli hveiti Aðferð: Hellið safanum úr pottinum í stórt glas eða skál og leyfið hon- um að hvíla þar til fitan flýtur upp á yfirborðið. Takið mest af fitunni og hendið. Bætið nægu soði í skálina eða glasið þannig að það jafngildi fjórum bollum af vökva. Bræðið smjör á pönnu yfir meðalhita. Bætið hveitinu saman við og þeytið vel til að búa til smjörbollu. Haldið áfram að þeyta þar til smjörbollan er orðin brún og ilmandi. Bætið soðinu saman við og þeytið vel. Hækkið hitann og látið koma upp suðu á meðan þið þeytið. Lækkið hitann við suðu og hrær- ið reglulega í sósunni þar til hún er orðin eins þykk og þið viljið. Smakkið til og berið strax fram. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is eyðilagði jólin Svona eldarðu kalkún Ebba ásamt systur sinni, Stefaníu. Stefanía og Ebba á góðri stundu um jól.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.