Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 43
Jólablað 14. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
ALLORA:
Grimmdarlaus snyrtivara á góðu verði
Þegar Cover Girl var stofnað 1961 var áherslan lögð á góð dagkrem. Hægt og rólega fór fyrirtækið að
hanna og innleiða snyrtivörur í línur sínar
samhliða því að framleiða fyrsta flokks
dagkrem. Það gleður okkur sérstaklega
að Cover Girl er orðið 100% grimmdar-
laust eða „cruelty free“. Wet n Wild var
stofnað 1979. Snyrtivörumerkið hefur
unnið fjöldann allan af verðlaunum þar
sem vörurnar frá þeim eru svo mjúkar
og góðar á svo marga vegu. Formúlan
er endingargóð, merkið er grimmdar-
laust, margar vörur frá þeim eru vegan
og svo eru vörurnar á ótrúlegu verði!“
segir Sigríður Arnfjörð, eigandi netversl-
unarinnar allora.is.
Fagna fjölbreytileikanum
„Við hjá Allora seljum snyrtivörur frá
þessum tveimur stóru snyrtivörumerkj-
um, sem eins og sést, eru að gera mjög
góða hluti úti. Í dag erum við öll, og
sérstaklega unga kynslóðin, undir stöð-
ugu áreiti samfélagsmiðlanna þar sem
misjákvæðum boðskap er stanslaust
miðlað um fegurð og staðalímyndir. Mér
fannst mikilvægt að vera góð fyrirmynd
og koma jákvæðum skilaboðum á fram-
færi um hvað það er dásamlegt að vera
alls konar. Mér fannst þessi tvö merki
eiga heilmikið erindi á íslenskan markað
enda frábærar vörur á enn betra verði.
Á sama tíma leggja bæði merkin upp úr
fagmennsku og vönduðum vörum auk
þess að fagna fjölbreytileikanum. Við
hjá Allora neitum að trúa því að fegurð
sé föst í staðalímynd, hún er ekki innan
neins ramma og hún felst svo sannar-
lega ekki í því að allir séu eins.“
Fullkominn grunnur að flottri förðun
Fyrir góðan grunn undir förðun er fyrst
og fremst mikilvægt að nota serum og/
eða gott rakakrem undir allan farða
enda er veðrið hér á landi síbreytilegt og
húðin viðkvæm fyrir snöggum hita- og
kulda breytingum.
„Wet n Wild Photo Focus meikið er
vinsælast hjá okkur, enda ótrúlega mjúkt
og endingargott. Það er lykilatriði í því að
fá fallega húð sem gerir allt heildarútlitið
svo glæsilegt. Við eigum mjög fjölbreytt
litaúrval af þessu meiki og því ættu allir
að geta skartað fallegri, heilbrigðri og
jafnri húð yfir hátíðarnar.“
Geggjaður varalitur sem helst á allan
daginn
„Það sem setur klárlega punktinn yfir i-ið
er Cover Girl Melting pout Mattes vara-
liturinn sem vann einmitt til Allure-verð-
launa núna 2018. Hann er ótrúlega
mjúkur þótt hann sé mattur, þurrkar
ekki upp varirnar og svo endist hann
og endist, allan daginn. Við mælum
sérstaklega með honum í jólaboðunum
þar sem maður er að smakka á góðum
mat í góðum félagskap. Það er ekkert
leiðinlegra en að þurfa að fylgjast með
varalitnum allan daginn og bæta reglu-
lega á.“
Rauðar varir yfir hátíðarnar
„Það er svo gaman að gera sig fína fyrir
jól og áramót og þá sérstaklega þegar
kemur að förðun, því hún getur haft svo
mikil áhrif á heildarútlitið. Það er auðvit-
að mjög einstaklingsbundið hvað hentar
hverjum og einum og við hjá Allora
leggjum upp úr og fögnum fjölbreytileik-
anum með breiðu vöruúvali. En það sem
er sígildast yfir hátíðarnar er auðvitað
rauðar varir. Þær eru bara svo afskap-
lega fallegar og jólalegar. Við mælum
sérstaklega með Cover Girl Melting
pout mattes og Wet n Wild Mega last
liquid catsuit matte sem endast út allt
jólaboðið.“
Glitrandi augnförðun til að toppa
eldrauðar varir
„Í augnförðun eru brúnir og gylltir litir
alltaf vinsælir. Litirnir passa líka fullkom-
lega með rauðum hátíðlegum vörum.
Við eigum svo fallegan gylltan Vitalist
Healthy Glow Candlelit highlighter frá
Cover Girl sem er fullkominn á augnlokin.
Áferðin er frábær og hann glitrar svo
hátíðlega.“
Fallegar gjafaöskjur
„Vörurnar okkar koma í fallegum svört-
um öskjum sem auðveldar þeim sem
ætla að gefa vörurnar frá okkur í
jólagjafir. Þá nægir einfaldlega að setja
fína slaufu á öskjuna og þá er gjöfin
tilbúin. Annars óskum við hjá Allora
landsmönnum fallegra og gleðilegra
jóla!“ segir Sigríður.
Hægt er að kaupa Wet n Wild og
Cover Girl vörurnar frá Allora á allora.is
Skoðaðu: Instagram og Facebook
Sími: 848-2234
Netfang: allora@allora.is n