Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 68
68 FÓLK - VIÐTAL 14. desember 2018 F M Belfast hefur verið ein allra vinsælasta stuð- og danshljómsveit landsins um langa hríð og hefur sent frá sér fjórar breiðskífur sem allar hafa slegið í gegn, bæði hér heima og erlendis. Hljómsveitin hefur verið á mikilli siglingu og þá sér- staklega í Þýskalandi þar sem hún hefur öðlast dyggan aðdáenda- hóp. Í kvöld, föstudaginn 14. des- ember, mun FM Belfast halda tónleika á Hard Rock í Lækjar- götu þar sem öllu verður tjaldað til og áhorfendur munu eiga von á miklu „stuðgúllasi.“ DV ræddi við Lóu, söngkonu og textasmið FM Belfast, til að forvitnast um þetta stórskemmtilega band. Byrjaði sem jólagrín „Nafnið FM Belfast kemur eigin- lega bara úr rassgatinu á mér,“ seg- ir Lóa H. Hjálmtýsdóttir. Hún segir að hljómsveitin hafi orðið til sem grínband hennar og Árna Rúnars Hlöðverssonar fyrir þátt sem Andri Freyr var með á Rás 2 fyrir jólin árið 2005. „Hann fékk alltaf til sín tónlist- armenn en stundum hættu sum- ir við á seinustu stundu. Þá var ég alltaf að koma af barnum Sirkus og gaf mér tíma til að sprella og þykj- ast vera annað fólk í þættinum. Ég hafði aldrei verið í neinum hljóm- sveitum áður. Nafnið kom þegar við sátum í bíl og áttum að reyna finna nafn sem átti að hljóma eins og einhver væri að reyna að vera töff en væri ekki alveg að takast það. Þetta var ímynduð hljómsveit og við ætluðum aldrei að fara út úr stúdíóinu.“ Lögin fóru í dreifingu á netinu og fólk fór að taka eftir sveitinni. Árið 2006 var þeim boðið að koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Bættust þá við þrír með- limir í bandið og boltinn fór að rúlla. Óljóst hverjir hafa verið í sveitinni Lóa segir að mannabreytingar hafi verið þónokkrar í gegnum tíðina. Sérstaklega á trommunum. Með- al þeirra sem gripið hafa í kjuð- ana má nefna Björn Stefánsson, úr Mínus, og Sykurmolann Sigtrygg Baldursson. Í gegnum tíðina hefur verið fastur fjögurra manna kjarni í hljómsveitinni. En stundum hafa verið margir á sviðinu og erfitt að henda reiður á hverjir séu raun- verulega í bandinu. „Eiginlega bara þeir sem hafa tíma og langar að vera með. Svo getur fólk alveg tekið sér frí frá þessu. Við höfum spilað án allra nema Árna Rúnarssonar, því hann er sá eini sem kann á tækin,“ segir Lóa og hlær. FM Belfast hefur gefið út fjór- ar breiðskífur, sú nýjasta er Island Broadcast frá árinu 2017. Lóa er stolt af henni en segir að upptöku- ferlið hafi ekki gengið áreynslu- laust fyrir sig. Hún hafi til dæm- is þurft að kljást við erfiðan mann hjá útgáfufyrirtækinu í Þýskalandi. Eruð þið með þemu á plötun- um? „Já, eiginlega. Við tökum upp mjög mörg lög og röðum þeim eft- ir kerfi sem myndast fyrir þau sem passa saman. Það er engin heildar- saga en við pörum lög saman, eftir stemningu. Við röðum þeim upp eins og í línuriti, hvernig stemn- ingin keyrist upp og fer svo aðeins niður.“ Boðið til Karíbahafsins Partísveit eins og FM Belfast hefur vitaskuld lent í ýmsum uppákom- um í gegnum tíðina. Lóa minnist þess þegar þeim var boðið óvænt til Karíbahafsins. „Það var nefnilega sturlað. Við sömdum lag árið 2006 eða 2007 sem fjallaði um að eiga lítið hús í Karíbahafinu. Svo fyrir þremur árum þá var ógeðslega vont veður á Íslandi í febrúar. Þá fengum við tölvupóst frá einhverjum náunga sem vildi fá að nota lagið okkar til að auglýsa húsið sitt í Karíba- hafinu á Airbnb,“ segir hún og hlær. „Hann spurði hvað við vildum fá borgað fyrir það og við svöruðum: „Tíu nætur í húsinu þínu.“ Hann sagði já og við komum okkur til Saint Jam á Bandarísku Jómfrúa- eyjunum. Við vorum þar með DJ sett og beina útsendingu sem við borguðum fyrir með því að spila og býtta.“ Húsið reyndist lúxus tréhús inni í miðjum friðlýstum skógi. „Stundum líður mér eins og þetta hafi ekki gerst í alvörunni. Ef við ættum ekki til myndir þá myndi ég halda að þetta hefði ver- ið ímyndun. Við eigum ekkert mik- inn pening eða þannig. Erum bara að leigja í Reykjavík og ég keyri á bíl foreldra minna. Þetta var æði!“ Eins og murano-fiskur Hver er verkaskiptingin í hljóm- sveitinni? „Ég geri allt sem er leiðinlegt, eins og skipuleggja myndatöku með sjö manns sem eru allir upp- teknir og búa ekki í sama landinu, og rífast við einhvern gaur hjá þýsku framleiðslufyrirtæki. En ég sem líka texta sem er skemmtilegt. Árni semur flest öll lögin. Hann er búinn að halda þessu gangandi af því að hann er með meiri drifkraft en ég. Ívar spilar á trommur og er jákvæðasta manneskja í heimin- um þannig að hann sér um að allt fari ekki í volæði. Örvar sér um að halda uppi staðlinum og sem- ur líka texta og laglínur. Hermi- gervill kemur fyrir aukaspil og Egill kemur til þess að gera þetta enn skemmtilegra. Hann dans- ar og gerir alls konar fyndna hluti. Hann samt sparimeðlimur af því að hann er skritsfofublók í Brussel og á erfitt með að losna úr vinnu. Mér finnst best þegar við erum öll, þá finnst mér þetta fullkomið.“ FM Belfast-liðar hafa verið í pásu frá utanlandstúrum í ár en fara út næsta vor. Þá spila þau á snjóbrettahátíð í svissnesku Ölpunum. Eigið ykkur ykkur aðdáendur sem eru tryggari en aðrir? „Þjóðverjar,“ segir Lóa ákveðin. „Við höfum spilað á stærstu há- tíðunum í Þýskalandi. Stærstu tónleikarnir voru hins vegar í Sydney í Ástralíu. Þar spiluðum við fyrir tuttugu þúsund manns og hituðum upp fyrir Flaming Lips. Við höfum alltaf verið svo- lítið utan gátta hérna á Íslandi. Við vorum með þýskan útgefanda og vorum þess vegna mikið erlendis. Margir hérna heima halda að við séum hætt.“ En þið eruð alveg á fullu enn- þá? „Jú. Við erum oft í ólíkum verk- efnum en segjum yfirleitt já þegar einhver biður okkur um að spila. Við erum ekkert ofboðslega dríf- andi og þetta byrjaði ekki sem dríf- andi verkefni. Við erum eins fiskur sem heitir murano. Það er ránfisk- ur sem liggur í leyni og veiðir að- eins ef það kemur eitthvað fyrir framan holuna sem hann dvelur í,“ segir hún og hlær. Ætli þið að taka nýju plötuna í kvöld eða verður þetta samtvinn- ingur af nýju og eldra efni? „Það er eiginlega ekki hægt að taka aðeins nýjar plötur af því að fólk vill ekki aðeins heyra eitthvað sem það hefur ekki hlustað mikið á. Við reynum bara að hafa þetta eitthvert stuðgúllas.“ Um upphitun sér hljómsveitin The Post Performance Blues. Elektrónískt „performans“-band sem áður hefur hitað upp fyrir FM Belfast. Miðar eru fáanlegir á tix. is. n i gömlu höfnina Ei ingja Kæst stórskata og tindabykkja með öllu tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 2.350 kr. Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn. Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 1.950 kr. Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá 4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00. Sægreifinn við Geirsgötu Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500 við gömlu höfnina Eilíf hamingja Kæst stórskata og tindabykkja með öllu tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 2.350 kr. Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn. Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 1.950 kr. Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá 4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00. Sægreifinn við Geirsgötu Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500 við gömlu höfnina Eilíf hamingja Kæst stórskata og tindabykkja með öllu tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 2.350 kr. Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn. Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 1.950 kr. Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá 4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00. Sægreifinn við Geirsgötu Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500 vi gö lu höfnina Eilíf amingja Kæst stórskata og tindabykkja með öllu tilheyrandi. Steingrímur í ef irrétt á aðeins 2.350 kr. Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn. Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 1.950 kr. Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá 4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00. Sægreifinn við Geirsgötu Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500 Kæst stórskata og tindabykkja með öllu tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins 2.350 kr.  Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn „Margir hérna heima halda að við séum hætt“ n FM Belfast með tónleika á Hard Rock n Boðið til Karíbahafsins„Nafnið FM Belfast kemur eiginlega bara úr rassgatinu á mér Guðni Einarsson gudnieinarsson@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.