Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 32
Jólablað 14. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Félagið var stofnað 26. mars árið 2003 þannig að við verðum 16 ára í mars á næsta ári. Þetta er
grasrótarfélag sem stofnað var eftir
að annað félag var lagt af sem hét
Dyslexíu-félag Íslands og stofnað 1994.
Skortur á fjármagni hamlaði starf-
seminni svo hún fjaraði út. Ég kom að
stofnun félagsins 2003 og þá var uppi
nokkur ágreiningur um heiti félagsins.
Sjálfur vildi ég þá að félagið héti áfram
Dyslexíu-félagið en í dag er ég mjög
sáttur við nafnið Félag lesblindra því
lesblinda er afar gegnsætt orð sem fólk
skilur undir eins,“ segir Snævar Ívars-
son, framkvæmdastjóri Félags les-
blindra, sem er til húsa að Ármúla 7b.
Á stofnfundinum var einnig ákveðið
að gerast aðili að Öryrkjabandalagi
Íslands. Sú aðild hefur haldið lífi í fé-
laginu og tryggt því nokkurn tekjustofn.
Ákveðin tímamót urðu í starfseminni
árið 2008 er Snævar ákvað að helga
því alla starfskrafta sína.
Starf í grunnskólum
Eitt af mörgum verkefnum hans er að
veita þjónustu til félagsmanna í formi
uppsetningar á forritum og öppum fyrir
tölvur, síma og á námskeiðum og einnig
að standa fyrir skólaheimsóknum.
„Meðal annars heimsækjum við
unglingadeildir grunnskóla þar sem við
fræðum öll börnin um lesblindu. Það
stuðlar að því að börn með lesblindu
fá aukinn skilning hjá jafnöldrum sínum
sem ekki eru lesblindir,“ segir Snævar.
„Við komum að lesblindu á allan
mögulegan hátt. Við gætum hlut-
leysis og veljum ekki eina aðferð sem
á að gilda fyrir allan fjöldann heldur
kynnum við hlutlaust þær aðferðir
gegn vandanum sem eru til, útskýrum
hvernig þær ganga fyrir sig, hvers megi
vænta og svo framvegis. Sem félag
erum við að benda á lausnir sem við
teljum að virki fyrir fjöldann í gegnum
tæki eins og tölvur og síma. Við höfum
árum saman verið með námskeið fyrir
fullorðið fólk með lesblindu í gegnum
endurmenntunarstöðvar víða um
land. Einnig leiðbeinum við kennurum
um hvernig gott sé að nýta sér ýmsa
námstækni og tæki. Svo höfum við hitt
lesblinda nemendur sem eru að undir-
búa sig fyrir framhaldsskóla. Auk þess
höfum við haldið erindi í ýmsum fram-
haldsskólum. Nýlega fórum við einnig
að kynna starfsemi félagsins á vinnu-
stöðum og höfum gefið út bækling um
hvernig lesblinda birtist á vinnustöð-
um,“ segir Snævar um víðtæka starf-
semi félagsins.
Einstaklingsbundin þjónusta
Félagið veitir lesblindum einstaklings-
bundna þjónustu: „Félagsmenn geta
komið með tækin sín til okkar og fengið
uppsetningu á lestrarbúnaði í tækj-
unum. Allt sem þú getur valið með
músarbendlinum er hægt að hlusta
á. Android-símar eru síðan þannig
að hægt er að tala við tækið og það
skrifar fyrir þig, hægt er að taka mynd
af blaðsíðunni og hlusta á hana, en
það gildir ekki fyrir iPhone-síma. Við
erum með önnur tæki, litla handhæga
skanna, sem hægt er að draga inn í
nokkrar blaðsíður og tengja við tölvu
og smartpennann sem tekur upp hljóð
meðan maður glósar.“
Enn fremur beitir félagið sér fyrir því
að námsbækur séu annaðhvort til á
stafrænu formi eða sem hljóðbækur.
Snævar kveðst telja að almennt séu
skólar í dag betur vakandi fyrir mögu-
legum tilfellum lesblindu en áður enda
hafi ákvæði um slíkt verið bundin í lög.
„Hins vegar tökum við ekki að okkur
greiningar en bendum á sérfræðinga
sem annast þær – við erum einfaldlega
reiðubúin til aðstoðar við þá sem þurfa
hjálp með textann sinn,“ segir Snævar.
Jólahappdrætti
Það kostar ekkert að vera félagi í Félagi
lesblindra en öllum félögum yfir 23 ára
eru sendir valkvæðir greiðsluseðlar,
2.500 krónur á ári, til að auðvelda fólki
að styðja félagið. „Við miðum við þenn-
an aldur vegna þess að þá eru flestir
orðnir virkir á vinnumarkaðnum,“ segir
Snævar.
Að sjálfsögðu er félagið alltaf opið
fyrir stuðningi þeirra sem vilja styðja
við starfsemi þess og til dæmis er núna
í gangi jólahappdrætti félagsins sem
getur orðið því drjúg tekjulind. Nánari
upplýsingar um það má fá á síðunni
lesblindir.is en auk þess er þar að finna
mikinn fróðleik um lesblindu. n
FÉLAG LESBLINDRA:
Merkileg starfsemi –
Spennandi jólahappdrætti
Tökum vel á móti sölufólki
jólahappdrættisins