Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 76
76 FÓLK 14. desember 2018
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
DV velur Mann ársins 2018 og gefst lesendum DV
kostur á að taka þátt í valinu.
Valið stendur á milli 20 einstaklinga af öllum kynj-
um, sem vakið hafa mikla athygli í fréttum ársins.
Netkosning hefst á DV.is í dag, föstudaginn 14. des-
ember og stendur til miðnættis sunnudaginn 16.
desember.
Val lesenda á Manni ársins 2018 verður birt í helgar-
blaði DV föstudaginn 21. desember.
Þeir einstaklingar sem valið stendur á milli eru eftir-
taldir í stafrófsröð:
DV VELUR MANN ÁRSINS 2018
- TAKTU ÞÁTT Í VALINU
Arnór Sigurðsson
er aðeins 19 ára og okkar helsta von á knattspyrn-
usviðinu. Hann leikur með CSKA Moskvu og skor-
aði eitt mark og lagði upp annað á móti stórliði
Real Madrid í vikunni. Var Arnór í liði umferðarinn-
ar í Meistaradeild Evrópu fyrir frammistöðu sína.
Áslaug Thelma Einarsdóttir
vakti athygli á árinu eftir að henni var sagt
upp hjá Orku náttúrunnar, dótturfélagi
Orkuveitu Reykjavíkur. Hún hafði kvartað
undan hegðun Bjarna Más Júlíussonar
framkvæmdastjóra. Við tók löng barátta
við kerfið til að fá skýringar á uppsögninni,
barátta sem rataði alla leið á toppinn í
borgarkerfinu.
Bára (Marvin) Halldórsdóttir
var orðin ein umtalaðasta manneskja ársins áður en
hún steig fram í dagsljósið. Bára var stödd á Klaustur
Downtown Bar þriðjudagskvöldið 20. nóvember
þegar hún heyrði sex þingmenn tala niður öryrkja
og minnihlutahópa. Í stað þess að leiða það hjá
sér ákvað Bára að sitja sem fastast og taka upp
samræðurnar á símann sinn. Upptökurnar sendi hún
fjölmiðlum undir dulnefninu „Marvin“. Á upptökunum
heyrast þingmenn tala um samþingmenn sem „tíkur,“
og „kuntur“ og hæðast að þeim sem minna mega sín.
Nú hefur Bára verið boðuð fyrir héraðsdóm og á yfir
höfði sér refsingu fyrir uppátækið.
Bára Tómasdóttir og Óskar Vídalín
Einar Darri, sonur þeirra Báru og Óskars, lést aðeins 18 ára gamall í maí á þessu ári
eftir neyslu róandi lyfja. Í kjölfarið setti fjölskylda Einars Darra á laggirnar minn-
ingarsjóð sem styrkir baráttuna #égábaraeittlíf sem berst gegn fíkniefnum, með
áherslu á misnotkun lyfja meðal ungmenna á Íslandi.
Bjarki Már Sigvaldason og Ástrós Rut Sigurðardóttir
Bjarki Már hefur gengið í gegnum ótrúlega erfiðleika en hann greindist með
krabbamein fyrir sex árum. Fyrir um þremur mánuðum eignaðist hann dóttur
ásamt eiginkonu sinni, Ástrós Rut Sigurðardóttur. Viðtal við Bjarka og Ástrós
vakti mikla athygli þegar hann greindi frá því að ný æxli hefðu myndast í heila.
Ekki er hægt að skera meinin burt og er Bjarki hættur á lyfjum. Var viðtalið bæði
átakanlegt og fallegt og hægt að draga mikinn lærdóm af þessum ungu hjónum
um hvernig tekist sé á við lífið.
Einar Hansberg reri 500 kílómetra róður á 50 klukkustundum í CrossFit Reykjavík
til styrktar Kristínu Sif Björgvinsdóttur og börnum hennar og til að vekja athygli á
Útmeða og Píeta sjálfsvígssamtökunum. Með framtakinu minnti Einar á að engum á
að líða illa og sitja einn uppi með það. Tölum við einhvern og nýtum þau úrræði sem
eru í boði.
Elísabet Margeirsdóttir
langhlaupari vann nýlega það afrek, fyrst íslenskra kvenna, að hlaupa 40 maraþon á fjórum
sólarhringum í Góbíeyðimörkinni í Kína. Utanvegahlaup eru ær og kýr Elísabetar, sem er
frábær fyrirmynd og sterk bæði líkamlega og andlega í sinni íþrótt.
Freyja Haraldsdóttir
hefur staðið sig frábærlega í baráttunni fyrir réttindum fatlaðra hér á landi. Hún hefur þurft
að þola mikið mótlæti á árinu, fyrst þegar hún var upplýst um smánandi myndir af sér í
lokuðum hópum á samfélagsmiðlum, svo þegar hún tapaði máli gegn Barnaverndarstofu
um að fá að gerast fósturforeldri. Svo í lok árs var hún ein af þeim fjölmörgu sem voru tekin
fyrir af þingmönnunum sex á Klaustur Bar. Freyja lét engan bilbug á sér finna og skilaði
skömminni þangað sem hún á heima.
Einar Hansberg Árnason