Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 29
KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Jólabl ð Storytel er áskriftar-veita fyrir hljóðbækur þar sem notendur greiða eitt áskriftargjald fyrir ótakmarkaðan aðgang að tugþúsundum bóka. Storytel fór í loftið á Íslandi í febrúar og viðtökurnar hafa farið fram úr allra björtustu vonum. „Þetta ár hefur verið ævintýri líkast, þökk sé frá- bærum viðtökum Íslendinga sem sannarlega eru tilbúnir fyrir þá sprengingu sem orðið hefur í útgáfu hljóð- bóka,“ segir Stefán Hjör- leifsson, landsstjóri Storytel á Íslandi, og bætir við að fyrirtækið hafi náð mark- miðum sínum og framleitt yfir 200 íslenskar hljóðbæk- ur á árinu. Á næsta ári er ætlunin að gera enn betur, en stefnt er að því að yfir 1.000 íslenskar hljóðbæk- ur auk rafbóka verði í boði innan þjónustunnar ásamt tugþúsundum erlendra bóka. Nýtt efni í farvatninu Stefán segir að Storytel hafi nú þegar hafið undirbúning að ýmsum nýjungum í út- gáfu sem líta munu dags- ins ljós strax á næsta ári. „Við munum gefa út bækur sem aðeins munu koma út sem hljóðbækur, alls kyns efni í ætt við frétta- mennsku, styttri grein- ar og ýmsa áhugaverða umfjöllun sem er styttri en hefðbundnar bækur.“ Hann segir fyrirtækið einnig vera að skoða hlaðvarp innan þjónustunnar en hlaðvörp hafa notið aukinna vin- sælda hérlendis undanfarið. „Þarna erum við vitanlega að mæta ákveðinni þörf, en viðtökurnar hafa sýnt að Íslendingar er sólgnir í hljóð- bækur af öllum stærðum og gerðum.“ Stefán bætir við að sama þróun eigi sér stað hér og erlendis þar sem framleiðsla og notkun slíks efnis hefur margfaldast undanfarin ár með tilkomu snjallsímans. Fjölskylduáskrift og „Kids Mode“ Storytel hóf nú í desember að bjóða nýjar áskriftar- leiðir sem gera allri fjöl- skyldunni kleift að hlusta á sama tíma og byggja upp sína eigin bókahillu. Með Storytel Family fylgja tveir fullorðinsaðgangar og tveir barnaaðgangar og með Storytel Family Plus fylgja þrír aðgangar fyrir fullorðna og þrír fyrir börnin. Einnig er boðið upp á „Kids Mode“ með hverri einstaklingsá- skrift, þannig að barnið geti hlustað á sama tíma í öðru tæki. Ungir hlustendur Í notendakönnunum sem Storytel hefur gert hefur komið í ljós að stór hluti þeirra sem hlusta á hljóð- bækur er yngra fólk en einnig fólk á öllum aldri sem ekki hefur lesið hefð- bundnar bækur í frítíma sínum áður, þótt vissulega sé líka um að ræða lesend- ur sem eru að færa sig yfir úr hefðbundnum bókum eða notar hvort tveggja samhliða. Hljóðbækur eru enda þægilegur valkostur þegar kemur að því að nýta tímann betur og njóta afþreyingar eða fræðslu í leiðinni. „Eftir að ég byrjaði að hlusta á hljóðbækur hef ég komist yfir miklu meira magn af bókmenntum. Þannig hlusta ég hvort sem ég er að keyra í tíu mínútur, fara í lengri hjólatúra eða á kvöldin heima fyrir, jafnvel í vinnunni – en ég vinn jú við þetta,“ segir Stefán að lokum. Nældu þér í ótakmarkað- an aðgang að tugþúsund- um bóka á www.storytel. is n Fjölskyldan sameinast yfir hljóðbókum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.