Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Qupperneq 29
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Jólabl ð
Storytel er áskriftar-veita fyrir hljóðbækur þar sem notendur
greiða eitt áskriftargjald
fyrir ótakmarkaðan aðgang
að tugþúsundum bóka.
Storytel fór í loftið á Íslandi í
febrúar og viðtökurnar hafa
farið fram úr allra björtustu
vonum.
„Þetta ár hefur verið
ævintýri líkast, þökk sé frá-
bærum viðtökum Íslendinga
sem sannarlega eru tilbúnir
fyrir þá sprengingu sem
orðið hefur í útgáfu hljóð-
bóka,“ segir Stefán Hjör-
leifsson, landsstjóri Storytel
á Íslandi, og bætir við að
fyrirtækið hafi náð mark-
miðum sínum og framleitt
yfir 200 íslenskar hljóðbæk-
ur á árinu. Á næsta ári er
ætlunin að gera enn betur,
en stefnt er að því að yfir
1.000 íslenskar hljóðbæk-
ur auk rafbóka verði í boði
innan þjónustunnar ásamt
tugþúsundum erlendra
bóka.
Nýtt efni í farvatninu
Stefán segir að Storytel hafi
nú þegar hafið undirbúning
að ýmsum nýjungum í út-
gáfu sem líta munu dags-
ins ljós strax á næsta ári.
„Við munum gefa út bækur
sem aðeins munu koma
út sem hljóðbækur, alls
kyns efni í ætt við frétta-
mennsku, styttri grein-
ar og ýmsa áhugaverða
umfjöllun sem er styttri en
hefðbundnar bækur.“ Hann
segir fyrirtækið einnig vera
að skoða hlaðvarp innan
þjónustunnar en hlaðvörp
hafa notið aukinna vin-
sælda hérlendis undanfarið.
„Þarna erum við vitanlega
að mæta ákveðinni þörf, en
viðtökurnar hafa sýnt að
Íslendingar er sólgnir í hljóð-
bækur af öllum stærðum
og gerðum.“ Stefán bætir
við að sama þróun eigi sér
stað hér og erlendis þar
sem framleiðsla og notkun
slíks efnis hefur margfaldast
undanfarin ár með tilkomu
snjallsímans.
Fjölskylduáskrift og
„Kids Mode“
Storytel hóf nú í desember
að bjóða nýjar áskriftar-
leiðir sem gera allri fjöl-
skyldunni kleift að hlusta á
sama tíma og byggja upp
sína eigin bókahillu. Með
Storytel Family fylgja tveir
fullorðinsaðgangar og tveir
barnaaðgangar og með
Storytel Family Plus fylgja
þrír aðgangar fyrir fullorðna
og þrír fyrir börnin. Einnig
er boðið upp á „Kids Mode“
með hverri einstaklingsá-
skrift, þannig að barnið geti
hlustað á sama tíma í öðru
tæki.
Ungir hlustendur
Í notendakönnunum sem
Storytel hefur gert hefur
komið í ljós að stór hluti
þeirra sem hlusta á hljóð-
bækur er yngra fólk en
einnig fólk á öllum aldri
sem ekki hefur lesið hefð-
bundnar bækur í frítíma
sínum áður, þótt vissulega
sé líka um að ræða lesend-
ur sem eru að færa sig yfir
úr hefðbundnum bókum
eða notar hvort tveggja
samhliða. Hljóðbækur eru
enda þægilegur valkostur
þegar kemur að því að
nýta tímann betur og njóta
afþreyingar eða fræðslu í
leiðinni. „Eftir að ég byrjaði
að hlusta á hljóðbækur hef
ég komist yfir miklu meira
magn af bókmenntum.
Þannig hlusta ég hvort sem
ég er að keyra í tíu mínútur,
fara í lengri hjólatúra eða á
kvöldin heima fyrir, jafnvel
í vinnunni – en ég vinn jú
við þetta,“ segir Stefán að
lokum.
Nældu þér í ótakmarkað-
an aðgang að tugþúsund-
um bóka á www.storytel.
is n
Fjölskyldan sameinast
yfir hljóðbókum