Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐA
Sandkorn
14. desember 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Vandræðaleg þögn
V
ika er langur tími í póli-
tík. Klaustursfárviðrið er
rétt gengið yfir þó að gera
megi ráð fyrir að einhverjar
vindhviður muni gjósa upp næstu
vikur og mánuði út af mögulegri
glímu uppljóstrarans Báru Hall-
dórsdóttur við íslenskt réttarkerfi.
Óvíst er hvort Bára verði sú sem
þarf að gjalda þá byltu dýru verði.
Strax gýs upp nýr stormur og
ekki síður alvarlegur. Alþingis-
maðurinn Ágúst Ólafur Ágústs-
son sendir frá sér yfirlýsingu þess
efnis að hann ætli að fara í tveggja
mánaða leyfi vegna óeðlilegra
samskipta við blaðamanninn Báru
Huld Beck. Síðar kemur í ljós að
túlkun, eða öllu heldur, upplif-
un Ágústs Ólafs á atburðarásinni
er talsvert léttvægari en upplifun
Báru Huldar. Óvíst er hvort þing-
maðurinn eigi afturkvæmt á Al-
þingi, rétt eins og þingmenn Mið-
flokksins sem einnig fóru í leyfi.
Öll þessi umræða verður til
þess að eldra mál gýs upp á yfir-
borðið. Meint kynferðisleg áreitni
fyrrverandi Alþingismannsins
Helga Hjörvars í garð nokkurra
kvenna. Sögusagnir um slíka hátt-
semi þingmannsins hafa lengi
grasserað án þess að þær hafi birst
á síðum fjölmiðla áður.
Þegar DV og Stundin kepptust
við að birta fréttir upp úr Klausturs-
upptökunum þá var lítill skortur á
fordæmingu Samfylkingarfólks.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, vandaði sexmenn-
ingunum ekki kveðjurnar. Þá lýsti
hann því yfir að hann treysti sér
ekki til þess að senda fundarboð
á Sigmund Davíð Gunnlaugsson
vegna fundar formanna stjórnar-
andstöðuflokka sem fram fór í síð-
ustu viku. Vandlæting Loga var al-
gjör. Flokkssystir hans, Helga Vala
Helgadóttir, tók sama pól í hæð-
ina. Þegar Sigmundur Davíð fór
í ræðupúlt Alþingis og þingkon-
an Þórunn Egilsdóttir gekk út úr
fundarsal Alþingis þá eygði Helga
Vala tækifæri til þess að komast í
fjölmiðla og rauk einnig á dyr.
Þögn þessa sama fólks í tengsl-
um við mál Ágústs Ólafs og Helga
er nánast ærandi. Logi hefur neitað
að tjá sig um hvort Ágúst eigi aftur-
kvæmt á Alþingi og hefur nálgast
málið líkt og jólaköttur í kringum
heitan möndlugraut. DV hefur
ítrekað reynt að ná tali af Loga síð-
ustu daga vegna málsins og hefur
blaðið fengið þau skilaboð að for-
maðurinn hafi sagt allt sem hann
vill segja um málið. Sömu sögu er
að segja af Oddnýju Harðardóttur,
fyrrverandi formanni Samfylk-
ingar, sem hefur ekki svarað DV
vegna málsins.
Það skal enginn halda öðru
fram að en að allir þingmenn Sam-
fylkingarinnar hafi vitað af málum
Helga sem og máli Ágústs. Þögnin
er vandræðaleg en hræsnin bein-
línis yfirgengileg. n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Trúverðugleiki í húfi
Hingað til hefur Samfylkingin
skipað sér sess sem einn helsti
femínistaflokkur landsins, há-
heilagri í jafnréttismálum en
bæði Vinstri græn og Viðreisn-
arfólk. Það er því einstaklega
óheppilegt fyrir flokkinn að
tveir af forystusauðunum á
undanförnum árum hafi ver-
ið sakaðir um að áreita kven-
fólk. Annars vegar Ágúst Ólafur
Ágústsson og hins vegar Helgi
Hjörvar.
Vegna hins síðarnefnda þurfti
Samfylkingin að setja á lagg-
irnar sérstaka siðanefnd, líkt
og Þjóðkirkjan gerði þegar
kvartanir vegna kynferðisbrota
klerka byrjuðu að flæða inn.
Ekki er loku skotið fyrir að fleiri
mál af fjölþreifnum krötum
kunni að dúkka upp.
Ljóst er að í báðum tilvikum
hefði átt að upplýsa fyrr um
málavexti. Því hefur forysta
flokksins þegar brugðist kjós-
endum sínum. Ef Samfylkingin
ætlar að halda trúverðugleika
sínum í jafnréttismálum verður
hún að taka hart og afgerandi
á gerendunum og setja þá af
sakramentinu.
Í hvað fara vegtollarnir?
Ríkisstjórnin hyggst nú keyra
samgönguáætlun í gegn í skjóli
þess að stjórn-
arandstaðan er í
henglum vegna
hneykslismála.
Það sem hæst
ber á góma í áætluninni eru
vegtollar sem munu væntanlega
verða settir upp á helstu um-
ferðaræðum út og inn á höfuð-
borgarsvæðið.
Sigurður Ingi samgönguráðherra
gefur fögur heit um að tollur-
inn renni í „stórt stökk“ í vega-
framkvæmdum á suðvestur-
horninu, sem ekki er vanþörf
á. Í ljósi fyrri reynslu er hins
vegar líklegt að tollarnir verði
fremur varanlegur tekjupóst-
ur fyrir ríkið. Í raun aukaskattur
á þá sem nota vegina. Sérstak-
lega þá fjölmörgu sem búa í
nágrannasveitarfélögunum en
starfa í borginni.
Til samanburðar má nefna út-
varpsgjaldið. Ekki nema brot
af því rennur í raun og veru til
Ríkisútvarpsins. Restin fer í al-
mennan rekstur ríkisins þrátt
fyrir að vera kallað útvarpsgjald.
Spurning vikunnar Hvað myndir þú gera ef þú ynnir milljarð í lottó?
„Ég myndi reyna að hjálpa öllum
sem ég gæti“
Bryndís Hagan Torfadóttir
„Fjárfesta í fasteignum“
Sindri Sveinsson
„Gefa börnunum
mínum“
Margrét Blöndal
„Byggja hús fyrir
útigangsfólk“
Ragnar Breiðfjörð
Ágúst Bent