Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Blaðsíða 47
Jólablað 14. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
ONESYSTEMS:
Íslenskt fyrirtæki sem
þróar íslenskan hugbúnað
OneSystems er íslenskt fyr-irtæki sem þróar íslenskan hugbúnað fyrir íslenskar
aðstæður og þróar hann á Íslandi,“
segir Ingimar Arndal, sem hefur
gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins frá upphafi. Fyrirtækið var
stofnað árið 2002 og sérhæfir sig
í að bjóða upp á upplýsingatækni-
lausnir sem bæta og efla starfsemi
fyrirtækja og auka skilvirkni og fram-
leiðni. „OneSystems stefnir að því að
viðskiptavinir og notendur kerfanna
geti verið að mestu sjálfbjarga með
daglegan rekstur á kerfunum, svo
sem að stilla upp ferlum, verkum og
sniðum að bréfum, vefeyðublöðum
og svo framvegis,“ segir Ingimar.
OneSystems fyrir alls konar fyrir-
tæki
OneSystems býður upp á allt að 70
mismunandi kerfiseiningar sem hægt
er að raða saman allt eftir þörfum
viðskiptavinarins og með það að
markmiði að lausnin henti flestum
fyrirtækjum og stofnunum. „Það
er því auðvelt og fljótlegt að laga
One-kerfin að þörfum viðskiptavinar-
ins,“ segir Ingimar og bendir á að
hugbúnaðarlausnir OneSystems séu
afar sveigjanlegar og falli vel að fyr-
irtækjum og stofnunum í örum vexti.
„Stækkanlegar hugbúnaðarlausn-
ir okkar hjálpa fyrirtækjum við að
halda kostnaði og áhættu niðri með
því að byrja smátt og stækka síðan
auðveldlega eftir því sem aðstæður
breytast.“ Meðal ánægðra viðskipta-
vina OneSystems má nefna öll helstu
sveitarfélög landsins og margar af
stærri ríkisstofnunum, en einnig eru
mörg einkafyrirtæki búin að taka
One-kerfi í notkun.
Smíði vefumsókna án forritunar-
kunnáttu
OneSystems byggir eins og áður
sagði á 70 mismunandi kerfisein-
ingum sem virka á mismunandi
hátt. „OnePortal Self-service vef-
gáttin gerir til dæmis fyrirtækjum og
sveitarfélögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólarhringinn, allt árið
um kring. Rafrænir innri ferlar eru
tengdir við þjónustugátt fyrir t.d. íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir geta
afgreitt sjálfa sig á sjálfvirkan máta
með innsendingu umsókna og erinda
á vefnum. Með eyðublaðasmið geta
viðskiptavinir sjálfir búið til sín eigin
umsóknareyðublöð og tengt þau við
innri ferla sem viðskiptavinir geta
einnig gert sjálfir,“ segir Ingimar.
Samþætting hugbúnaðarkerfa og
nýjasta forritunartækni
Hugbúnaður OneSystems er hann-
aður samhliða nýjustu forritunar-
tækni til þess að keyra auðveldlega
með helstu uppsetningum, hug-
búnaði og stöðlum. „Með nýjustu
tækni geta hugbúnaðareiningar
OneSystems átt samskipti við hug-
búnað frá þriðja aðila í gegnum
internetið. Við byggjum lausnir okkar
ofan á Microsoft Windows-miðlara,
Microsoft SQL-gagnagrunn og vafra
fyrir viðmót kerfanna. Einnig sérhæf-
um við okkur í hlutbundnum, stækk-
anlegum alhliða lausnum. Kerfin nota
„Single Logon“ IWA – Inter grated
Windows Authentication til auðkenn-
ingar og innskráningar. Auk þess
vinna kerfin mjög vel á móti Microsoft
Office, Outlook, Word og Excel.“
Róbótalausnir – spennandi nýjung
OneSystems hefur nýlega tekið upp
spennandi nýjung sem bætir enn
fremur skilvirkni og sjálfvirkni í opin-
berri stjórnsýslu. „OneSystems hefur
undanfarin ár þróað lausnir í sjálf-
virkum róbótalausnum, sem kemur
í stað handavinnu við skjalavinnslu,
mál, erindi, umsóknir og umsýslu.
Slíkt getur sparað allt að 40% af
vinnu starfsmanna sem geta þá
sinnt eftirliti fremur en tímafrekri
handavinnu.
Nánari upplýsingar um OneSy-
stems má finna á one.is
Síðumúla 21 (Selmúlamegin), 108
Reykjavík.
Sími: 588-1050 og 660-8551
Opið alla virka daga 9–17. n