Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Page 47
Jólablað 14. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ ONESYSTEMS: Íslenskt fyrirtæki sem þróar íslenskan hugbúnað OneSystems er íslenskt fyr-irtæki sem þróar íslenskan hugbúnað fyrir íslenskar aðstæður og þróar hann á Íslandi,“ segir Ingimar Arndal, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyr- irtækisins frá upphafi. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 og sérhæfir sig í að bjóða upp á upplýsingatækni- lausnir sem bæta og efla starfsemi fyrirtækja og auka skilvirkni og fram- leiðni. „OneSystems stefnir að því að viðskiptavinir og notendur kerfanna geti verið að mestu sjálfbjarga með daglegan rekstur á kerfunum, svo sem að stilla upp ferlum, verkum og sniðum að bréfum, vefeyðublöðum og svo framvegis,“ segir Ingimar. OneSystems fyrir alls konar fyrir- tæki OneSystems býður upp á allt að 70 mismunandi kerfiseiningar sem hægt er að raða saman allt eftir þörfum viðskiptavinarins og með það að markmiði að lausnin henti flestum fyrirtækjum og stofnunum. „Það er því auðvelt og fljótlegt að laga One-kerfin að þörfum viðskiptavinar- ins,“ segir Ingimar og bendir á að hugbúnaðarlausnir OneSystems séu afar sveigjanlegar og falli vel að fyr- irtækjum og stofnunum í örum vexti. „Stækkanlegar hugbúnaðarlausn- ir okkar hjálpa fyrirtækjum við að halda kostnaði og áhættu niðri með því að byrja smátt og stækka síðan auðveldlega eftir því sem aðstæður breytast.“ Meðal ánægðra viðskipta- vina OneSystems má nefna öll helstu sveitarfélög landsins og margar af stærri ríkisstofnunum, en einnig eru mörg einkafyrirtæki búin að taka One-kerfi í notkun. Smíði vefumsókna án forritunar- kunnáttu OneSystems byggir eins og áður sagði á 70 mismunandi kerfisein- ingum sem virka á mismunandi hátt. „OnePortal Self-service vef- gáttin gerir til dæmis fyrirtækjum og sveitarfélögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólarhringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir t.d. íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir geta afgreitt sjálfa sig á sjálfvirkan máta með innsendingu umsókna og erinda á vefnum. Með eyðublaðasmið geta viðskiptavinir sjálfir búið til sín eigin umsóknareyðublöð og tengt þau við innri ferla sem viðskiptavinir geta einnig gert sjálfir,“ segir Ingimar. Samþætting hugbúnaðarkerfa og nýjasta forritunartækni Hugbúnaður OneSystems er hann- aður samhliða nýjustu forritunar- tækni til þess að keyra auðveldlega með helstu uppsetningum, hug- búnaði og stöðlum. „Með nýjustu tækni geta hugbúnaðareiningar OneSystems átt samskipti við hug- búnað frá þriðja aðila í gegnum internetið. Við byggjum lausnir okkar ofan á Microsoft Windows-miðlara, Microsoft SQL-gagnagrunn og vafra fyrir viðmót kerfanna. Einnig sérhæf- um við okkur í hlutbundnum, stækk- anlegum alhliða lausnum. Kerfin nota „Single Logon“ IWA – Inter grated Windows Authentication til auðkenn- ingar og innskráningar. Auk þess vinna kerfin mjög vel á móti Microsoft Office, Outlook, Word og Excel.“ Róbótalausnir – spennandi nýjung OneSystems hefur nýlega tekið upp spennandi nýjung sem bætir enn fremur skilvirkni og sjálfvirkni í opin- berri stjórnsýslu. „OneSystems hefur undanfarin ár þróað lausnir í sjálf- virkum róbótalausnum, sem kemur í stað handavinnu við skjalavinnslu, mál, erindi, umsóknir og umsýslu. Slíkt getur sparað allt að 40% af vinnu starfsmanna sem geta þá sinnt eftirliti fremur en tímafrekri handavinnu. Nánari upplýsingar um OneSy- stems má finna á one.is Síðumúla 21 (Selmúlamegin), 108 Reykjavík. Sími: 588-1050 og 660-8551 Opið alla virka daga 9–17. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.