Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Síða 32
Jólablað 14. desember 2018KYNNINGARBLAÐ Félagið var stofnað 26. mars árið 2003 þannig að við verðum 16 ára í mars á næsta ári. Þetta er grasrótarfélag sem stofnað var eftir að annað félag var lagt af sem hét Dyslexíu-félag Íslands og stofnað 1994. Skortur á fjármagni hamlaði starf- seminni svo hún fjaraði út. Ég kom að stofnun félagsins 2003 og þá var uppi nokkur ágreiningur um heiti félagsins. Sjálfur vildi ég þá að félagið héti áfram Dyslexíu-félagið en í dag er ég mjög sáttur við nafnið Félag lesblindra því lesblinda er afar gegnsætt orð sem fólk skilur undir eins,“ segir Snævar Ívars- son, framkvæmdastjóri Félags les- blindra, sem er til húsa að Ármúla 7b. Á stofnfundinum var einnig ákveðið að gerast aðili að Öryrkjabandalagi Íslands. Sú aðild hefur haldið lífi í fé- laginu og tryggt því nokkurn tekjustofn. Ákveðin tímamót urðu í starfseminni árið 2008 er Snævar ákvað að helga því alla starfskrafta sína. Starf í grunnskólum Eitt af mörgum verkefnum hans er að veita þjónustu til félagsmanna í formi uppsetningar á forritum og öppum fyrir tölvur, síma og á námskeiðum og einnig að standa fyrir skólaheimsóknum. „Meðal annars heimsækjum við unglingadeildir grunnskóla þar sem við fræðum öll börnin um lesblindu. Það stuðlar að því að börn með lesblindu fá aukinn skilning hjá jafnöldrum sínum sem ekki eru lesblindir,“ segir Snævar. „Við komum að lesblindu á allan mögulegan hátt. Við gætum hlut- leysis og veljum ekki eina aðferð sem á að gilda fyrir allan fjöldann heldur kynnum við hlutlaust þær aðferðir gegn vandanum sem eru til, útskýrum hvernig þær ganga fyrir sig, hvers megi vænta og svo framvegis. Sem félag erum við að benda á lausnir sem við teljum að virki fyrir fjöldann í gegnum tæki eins og tölvur og síma. Við höfum árum saman verið með námskeið fyrir fullorðið fólk með lesblindu í gegnum endurmenntunarstöðvar víða um land. Einnig leiðbeinum við kennurum um hvernig gott sé að nýta sér ýmsa námstækni og tæki. Svo höfum við hitt lesblinda nemendur sem eru að undir- búa sig fyrir framhaldsskóla. Auk þess höfum við haldið erindi í ýmsum fram- haldsskólum. Nýlega fórum við einnig að kynna starfsemi félagsins á vinnu- stöðum og höfum gefið út bækling um hvernig lesblinda birtist á vinnustöð- um,“ segir Snævar um víðtæka starf- semi félagsins. Einstaklingsbundin þjónusta Félagið veitir lesblindum einstaklings- bundna þjónustu: „Félagsmenn geta komið með tækin sín til okkar og fengið uppsetningu á lestrarbúnaði í tækj- unum. Allt sem þú getur valið með músarbendlinum er hægt að hlusta á. Android-símar eru síðan þannig að hægt er að tala við tækið og það skrifar fyrir þig, hægt er að taka mynd af blaðsíðunni og hlusta á hana, en það gildir ekki fyrir iPhone-síma. Við erum með önnur tæki, litla handhæga skanna, sem hægt er að draga inn í nokkrar blaðsíður og tengja við tölvu og smartpennann sem tekur upp hljóð meðan maður glósar.“ Enn fremur beitir félagið sér fyrir því að námsbækur séu annaðhvort til á stafrænu formi eða sem hljóðbækur. Snævar kveðst telja að almennt séu skólar í dag betur vakandi fyrir mögu- legum tilfellum lesblindu en áður enda hafi ákvæði um slíkt verið bundin í lög. „Hins vegar tökum við ekki að okkur greiningar en bendum á sérfræðinga sem annast þær – við erum einfaldlega reiðubúin til aðstoðar við þá sem þurfa hjálp með textann sinn,“ segir Snævar. Jólahappdrætti Það kostar ekkert að vera félagi í Félagi lesblindra en öllum félögum yfir 23 ára eru sendir valkvæðir greiðsluseðlar, 2.500 krónur á ári, til að auðvelda fólki að styðja félagið. „Við miðum við þenn- an aldur vegna þess að þá eru flestir orðnir virkir á vinnumarkaðnum,“ segir Snævar. Að sjálfsögðu er félagið alltaf opið fyrir stuðningi þeirra sem vilja styðja við starfsemi þess og til dæmis er núna í gangi jólahappdrætti félagsins sem getur orðið því drjúg tekjulind. Nánari upplýsingar um það má fá á síðunni lesblindir.is en auk þess er þar að finna mikinn fróðleik um lesblindu. n FÉLAG LESBLINDRA: Merkileg starfsemi – Spennandi jólahappdrætti Tökum vel á móti sölufólki jólahappdrættisins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.